27.4.2010 | 18:16
Fínt!
Við Frónbúar skellum okkur
þá í að kaupa hana þegar
hún verður boðin til sölu á "e-bay".
Veitir ekki af, okkur löndunum, að hafa nú
vaðið fyrir neðan okkur, eftir það
sem undan er gengið síðustu 2 árin.
Einkavæðingarhelvíti með pólitískri kreppu,
bankahruni og útrásarpakki rænandi og rupplandi,
var það fyrsta.
Í annan stað fóru svo öll heimilin í landinu
á hausinn af því að þau höfðu öll fjárfest
í "flatskjám" ( Þjóðin bara "brjálaðist"
í æðislegri eyðslu, sagði einn kreppusnillinn)!
Og í þriðja lagi er "sótsvartur djöfull" hlaupinn
í Eyjafjallajökul með tilheyrandi þrumum,
eldingum, eldspýjum, hraunrennsli og
öskuskít.
Næsta víst að að næst á dagskrá á litla Fróni
verði helvískur "40 daga rigningaskúr" ala
Gamla testamentið, með stórflóðum,
úthafsöldum og vatnsfárviðrum í kjölfarið.
Þá er skárra að hafa til taks sæmilegan "stóran bát"
til að redda okkur "örmum fjármálavitleysingjum"
úti í ballarahafi, sem vart eigum bót fyrir rassgatið á okkur,
en eigum einhvern helvítis haug af flatskjám.
Getum við altént notað einhvern slatta af margtéðum flatskjám
til að fylla í holur og göt sem kunna að vera á stórfleyi þessu,
eftir ríflega 4000 ára dvöl upp á þurru landi.
Lestum svo hross, kýr, kindur og gæludýr í "káetur"
ljónanna, flóðhestanna og dúfnanna og getum við svo
þjóðin gist fyrrum káetur fíla, gíraffa og strúta,
en ríkisstjórnin, núverandi bankastjórar og aðalleikarar
í "sótsvartri 3000 síðna skýrslu" gista káetur slanga,
órangúta og asna.
Restina af bátskelinni er svo öruggara að nota undir
dýrafóður og eitthvað matarkyns fyrir oss vesæla.
Nú svo er bara að njóta þess að vera á lúxus- "siglingu"
næstu 40 daga....aldrei að vita hvenær hægt verður
að skella sér í "siglingu" næst.
Verður samt brjálað að gera um borð, því að í nógu
verður að snúast við að fóðra allan dýraskarann
og svo okkur sjálf, plús það að snúast í
kringum ælandi og spúandi sjóveika farþega.
Hehehehe!
Stóðst ekki mátið húsfreyja.
En að lokum.
Frétt þessi vakti upp gamla pælingu hjá húsfreyju:
Ef Nói og frú, ásamt 3 sonum, eiginkonum þeirra og börnum,
já, og kannski nokkur hundruð auðtrúa sálir,
voru einu mannverurnar um borð í örkinni,
hvernig "í ósköpunum" tókst þeim að fóðra "öll"
dýrin um borð í örkinni...tvö af hverri tegund
sem hér á móður Jörð dvelja, í heila 40 daga???
Þúsundir landdýra í öllum stærðum og gerðum!
Moka undan þeim skítnum?
Halda lífi í "mauraætunum"?
Og hver í ósköpunum um borð hafði áhuga á
að bjarga tveimur "tarantúllum" frá því að deyja út?
Jamm.
Merkileg saga atarna.
Kvöldmatast næst.
Góðar stundir á þriðjudegi.
Örkin hans Nóa fundin | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Þau höfðu nú talsverðan tíma til að undirbúa þetta... kannski var þetta bara voðalega þægilegt... eða bara búið að koma fyrir fullt af mat sem dýrin svo átu á sínum hraða.
jamm (IP-tala skráð) 27.4.2010 kl. 18:44
Já, jamm, sjálfsagt haft ríflegan tíma í undirbúning blessaður Nóinn....en mikið rosalega hafa þeir þurft að koma MIKLUM mat fyrir, handa blessuðum dýrunum öllum. Þakka þér kærlega fyrir innlitið!
Sigríður Sigurðardóttir, 28.4.2010 kl. 17:59
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.