Færsluflokkur: Bloggar
9.6.2010 | 19:06
Friðsamir friðarspillar?
Frónbúar manna friðelskastir, friðsamir
og friðsælir, samkvæmt könnun þessari.
Aðeins Nýsjálendingar friðsamlegri.
Jaso!
Dettur þá húsfreyju í hug, "hvernig" alþjóðlegu
könnunarsnillar þessir framkvæmdu könnun þessa,
og fengu út þessa líka brilliant útkomuna?
Fyrir oss arma, forsmáða, arfareiða og snarvitlausa
fjármálavitleysinga hér úti í miðju ballarahafi.
Hafi þeir bara bjallað og spurt menn beint út,
er auðvitað von að niðurstaðan hafi verið svo
"friðsæl" oss "Ísbjargarokuðum" þrælum litla Fróns.
Það er vitað mál, að þjóð húsfreyju kann að "ljúga"
og hefur gert frá örófum alda...sjáið bara Íslendingasögurnar,
kirkjubækurnar og nú á síðustu árum "heilbrigðisvottorð"
frónversku bankanna frá bæði Dabba og Fjármálaeftirliti!
Enda eins gott lengi framan af, að ljúga GRIMMT þá
Baunar voru hér við völd, því vor "friðsama" þjóð væri
annars löngu útdauð....já, og útdauðari en "Geirfuglinn",
því enginn danskur kóngsi hefði nennt að láta "stoppa upp"
eitt eintak af Íslendingi!
Svo auðvitað hefur hver einasi Frónbúi svarað því til aðspurður,
að hann væri "friðsamari" en dauður hundur úti skurði á
öskugráu túni undir Eyjafjallajökli!
Jamm!
En máske hafa Frónbúar ekki verið spurðir út í friðsæld sína,
heldur aðeins barið á dyrum þeirra, og þeir beðnir
um að sýna "alþjóðlegum könnunarsnillum" öll sín
"beittustu og hættulegustu VOPN"!
Þegar þeir svo mættu út á hlað með "sleifar, potta og pönnur",
í bland við bitlausa búrhnífa og ryðgaða rjúpnabyssuhólka,
hefur könnunin auðvitað steinlegið!
Snillarnir hafa sett upp eitursnjalla formúlu með hraði:
"VOPNLAUS MAÐUR ER FRIÐSAMUR MAÐUR"!
Það var og.
Greinilegt að könnunarsnillarnir hafa ALDREI lent í
neinum hremmingum uppi á litla Fróni.
ALDREI!
Eins og að ÞRASA við Íslending um pólitík eða trúmál!
Eða að fá Frónbúa til að selja þeim "frímerkjasafnið" sitt!
Reyna að fá Frónbúa til að LEYFA hundahald í Reykjavík.
Fá þá til að "tvöfalda" þjóðveg 1 "allan hringinn"!
Og svo mætti lengi vel halda áfram!
Jamm!
En friðsamastir allra friðsamlegra erum við semsagt
á "alþjóðavísu"!
HALLELÚJA!
"Almættið" verður þá aldeilis að spýta í lófana og "hjálpa"
öllum þeim þjóðum sem eru "ófriðsamari" en við!
Næsta víst, að þriðja heimstyrjöldin sé annars á næstu grösum!
En græja kjúlla næst í kvöldmatinn.
En eigið friðsamar, friðhelgar, friðsælar og "friðlausar" góðar stundir í sumar.
![]() |
Íslendingar eru friðsamir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 15.6.2010 kl. 22:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.6.2010 | 21:37
Sjónvarpssorgir?
Heilög stundin nálgaðist
á heimili húsfreyju.
Sjónvarpsfréttir.
Veifandi, aspa-hatandi Gnarr orðinn
borgarstjóri og Dagur "víraður" að fá
að spila með.
Bóndi húsfreyju kengspenntur að fá fréttir
af nýja "stjóranum" með viðtölum og alles
í sjónvarpi.
Djásnið með "heilögu" málin á tæru, komin með "heddfóna"
fyrir framan kompjúterinn og horfinn á vit
tölvuleiks með smávöxnum rauðum djöfli að
skjóta málningarkúlur.
Húsfreyja náði í gömul málgögn sem
henni höfðu áskotnast í vinnunni, og ákvað
að hafa hjá sér í hægindastól sínum ef fréttirnar
skyldu verða afspyrnu fúlar og leiðinlegar.
Fréttir hófust...dududdd...þið kunnið stefið.
Nýi borgarstjórinn mættur á skjáinn,
síminn hringdi.
Húsfreyja greip tólið og heilsaði.
Vinkona frá Noregi að bjalla.
Húsfreyja flúði inn í stofu með tólið, því
sjónvarpið hafði steindrepist, og bóndi
var á háa séinu að leita að fjarstýringu sem
mögulega húsfreyja "sæti á"..fann ekki, eða sem
djásnið hafði af tómri stríðni slegið hnefa á alla takka!
Fann ekki heldur.
Bóndi krossbölvaði, var sjálfur með aðalfjarstýringuna.
Djásnið varð vart við hamagang og læti bónda:
"Pabbi, prófaðu að slökkva á öllu, og kveikja svo aftur"!
Bóndi hlýddi...BINGÓ..það birtist mynd!
Hamingja!
Gleði!
En borgarstjórafréttin að klárast!
Húsfreyja lauk símtali, settist aftur í sinn góða stól.
Kíkti á grein sem einhver heitur út í "trúða og ísbirni"
hafði skrifað, og hvatt menn til að vera "ábyrgir" í kosningum:
"Jahá, og kjósa gamla "bakstungu-bankastjóri-í-dag-liðið",
hugsaði húsfreyja og glotti.
"Ekki gekk það í borgarbúa í þetta sinn".
Síminn hringdi.
Húsfreyja greip símtólið við hlið sér.
Tengdó í símanum.
Bóndi var að tapa sér!
Sjónvarpið steindautt enn og aftur.
Húsfreyja flúði í stofuna, en kom símanum
til bónda eftir stutt spjall.
Bóndi ræddi við foreldrana svolitla stund.
Kvaddi.
Heppinn!
Íþróttafréttir að hefjast.
H.M. og þjálfarar í djúpum skít.
Síminn hringdi.
Húsfreyja svaraði.
Fóstursonur í símanum spurði eftir föður sínum.
"Þegar ég næ honum niður úr ljósakrónunni"
svaraði húsfreyja glettin.
Sjónvarpið steindautt...AFTUR, og bóndi hafði stokkið
hæð sína í loft upp og hékk í ljósakrónunni af einskærri vonsku.
"Helv....djö.....drasl alltaf hreint", hvein í bónda.
"Hva..voru þið ekki að skipta yfir í Símann með allt dótið"
spurði fóstursonur, þegar húsfreyja útskýrði sjónvarpsraunir bónda.
"Jú", húsfreyja varð að játa því, hún og bóndi voru nýbúin
að skipta yfir úr "VOÐAFÓN" yfir í Símann.
"Og á þetta ekki allt að vera pottþétt"? spurði þá
fóstursonur.
Hugmynd fór að fæðast hjá húsfreyju, er hún rétti bónda
símann, og hún gekk í það að "slökkva á öllu og kveikja aftur".
Síðan illur grunur.
Átti húsfreyja að láta bónda vita af grun sínum eftir samtalið
við soninn, eða átti hún að bíða eftir að friður og sjónvarpsró
færðust yfir bónda?
Húsfreyja beið.
Daginn eftir fór bóndi út að þrífa bílinn, enda helgi.
Húsfreyja kveikti á sjónvarpi.
Nú skyldi láta á reyna hvort grunur húsfreyju reyndist réttur.
Hún greip gemsa sinn og hringdi í "sjálfa sig", svaraði
og sjónvarpið steindó!
AHA!
Húsfreyja gutlaði og gaufaði í húsverkum.
Síminn hringdi, og sjónvarpið dó er húsfreyja svaraði!
JASO.
Bóndi mætti eftir mikinn bílaþvott enda öskufall hálfa vikuna á undan.
Húsfreyja sagði bónda grun sinn: "Síminn drepur á
sjónvarpinu er við svörum"!
Bóndi þreytulegur sagðist þurfa að skoða málin betur!
Náði sér í fjarstýringu.
"En við getum einnig beðið ættingja og vini að hringja ekki
á fréttatima í okkur" stakk húsfreyja upp á.
Og bætti svo glaðhlakkalega við: "Og svona minnst á það
í leiðinni, að það sé "dauðasök" að hringja á meðan
fótboltaleikur er í sjónvarpinu".
Beið svars en bóndi svaraði engu.
Hann hafði fundi mann að sparka tuðru á SKY.
Húsfreyja næstum heyrði steinsteypta hljóðmúrinn
smella fyrir hlustir bónda, sá augu hans verða glaseyg
og fjarræn, hann féll nánast hljóðlaust í sófann.
SLÖKKT!
Einu merki þess að bóndi væri ekki í öngviti, eða hefði orðið örendur
voru opin augun og andardrátturinn.
Húsfreyja horfði á "sjónvarps-samsamaðan" bónda sinn
stutta stund.
"Jamm, ekki spurning: Hringing í miðjum fótboltaleik í sjónvarpinu.....
..DAUÐASÖK"!
En njótið sumarkvöldsins og veðurblíðunnar....nú
eða ef þið hafi góða sportrás og fáið fáar símhringingar...
fótboltans í sjónvarpinu....hehe!
Góðar stundir.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.6.2010 | 19:02
Erum við á Íslandi?
"Þessi staður er ekki í útlöndum"?
spurði hugfangin 12 ára systurdóttir
húsfreyju eitt sinn.
Húsfreyja hafði brugðið sér í Þórsmörkina
með bónda, systurdóttur og fósturdóttur.
Blíðviðri, með sólskini og 20 stiga hita tók
á móti ferðalöngum í Þórsmörkinni.
Systurdóttir sem var að koma í sitt fyrsta skipti
í Þósmörk, átti bágt með að trúa að svo
fagur staður væri til uppi á litla Fróni.
Og varð alveg rasandi hissa þega húsfreyja
sagði Þórsmörkina ekki einkaeign, heldur eign
allrar þjóðarinnar, og þangað mættu allir koma og tjalda.
Það var og.
Eitthvað telur húsfreyja að ótöluleg tonn af grárri
eldfjallaösku geti breytt upplifun manna í Þórsmörkinni.
Skortur á tilbreytingu í litum, væri eitt.
Annað sem gæti skipt máli inni í Þórsmörk væri að standa
kolblár á öndinni, vegna öskufoks þá vind hreyfir.
Og í þriðja lagi gæti verið bévítans basl að
arka í hnédjúpri öskunni, og eiga að tjalda í
sótgráum öskudamminum.
En þrátt fyrir djöfulgang í Eldfjallajökli með glóandi
hrauni, aurflóðum, öskuregni og hraunbombum
á fljúgandi ferð, verður Þórsmörkin ætíð ein af
okkar glæsilegustu og fegurstu náttúruperlum.
Öskufjandinn mun hverfa smám saman út í veður og vind,
verða jafnvel gróðri til góðs þegar fram líða stundir.
Stórbrotið landslagið mun njóta sín sem aldrei fyrr,
þegar afleiðingar af sjónarspili elds og íss blasa við.
Þannig að þó að Þórsmörkin skarti ekki sínum
fallegasta pels um þessar mundir, mun hún
fljótt kasta af sér gráu kápunni og verða söm sem fyrr
...en samt svo stórkostlega breytt.
Jökullinn mun hafa markað sín spor enn og aftur í
Þórsmörk.
En þannig á það líka að vera.
Þórsmörk, Eyjafjallajökull, móðir náttúra... ein órofin stórbrotin heild.
Lífið sjálft.
Góðar stundir.
![]() |
Áfall að sjá ástand Þórsmerkur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.6.2010 | 11:31
Mergjuð skriffinnska!
Í Indlandi!
Jæja, húsfreyja getur sosum ekki
sagt að það komi sér á óvart.
Lenti einu sinni á indverskum skósölumanni
á ferð sinni um hin víðfeðmu ríki Obama.
Sölumaður sá íbúi í Orlando Florida,
hafði "liðugan" talanda, svo vægt sé til orða tekið.
Talaði ágæta ensku...nema að húsfreyja lenti í bévítans vandræðum
með orðið ..ABÚL sem sá indverski skreytti orðræðu sína
grimmt með, á 4 sekúndu fresti.
Það var ekki fyrr en eftir 40 mínúta "ákafar"
umræður um skó, Ameríku, Indland og staðsetningu
Íslands, sem sá Indverski var kristaltær á að væri
staðsett næst Rúmeníu (theríss NÓ æland in the North-
Atlantic ósjon, jú are "incomprehensABÚL" ), að húsfreyja kveikti á
orðinu ..ABÚL!
Þannig voru skórnir "comfortABÚL",
okkur ferðavinkonum greindi á um lit á skóm
og vorum þar með "disagreeABÚL",
verslunin var aðeins með bestu "certifiABÚL" merki
í skóm og skipti engu hvort hægt væri að bæta
..."able" við lýsingarorðið eður ei.
Þegar svo ræðusnillingurinn og skósölumaðurinn
náði takmarki sínu, og seldi vinkonu húsfreyju
eina herlega Nike-sportskó fór hann að afgreiðsludeski sínu
og dvaldi þar góða stund við skriffinnsku í þríriti,
svo skósalan yrði honum pottþétt reiknuð til tekna.
Vinkona skrifað svo undir allt saman, og gengu
þær þrjár frónversku vinkonur út úr skóverslun þessari,
allar "comfortABÚL", "agreeABÚL" og "certifiABÚL"....
heilli klukkustund frá því að þær stigu inn í verslunina.
Og vinkona á glænýjum Nikes!
Jamm.
En elskulegur var Indverjinn, það er ekki spurning...en
merkilegt, að hann var fæddur í Ameríku, og hafði aðeins
skroppið til Indlands í fjölskylduheimsóknir.
Húsfreyja og vinkonur hafa aldrei, hvorki fyrr né
síðar á tíðum ferðum sínum á erlendar grundir,
lent í jafn "tímafrekum" (timeconsumABÚL )og flóknum skókaupum,
svo ekki sé minnst á "ofurhraðar og flóknar",
"incomprehensABÚL" samræður og í Orlando, Florida.
En þá dettur húsfreyju í hug:
Ætli starfsfólk T.R hafi ekki ALLT verið sent á eitt
magnað "comfortABÚL", "disagreeABÚL", "incomprehensABÚL"
og "certifiABÚL" skriffinnsku-námskeið til Indlands hér
á árum áður?
Og því tímafrekara/timeconsumABÚL því betra!
Húsfreyja telur það svona fremur líklegt, því hremmingar hennar
sem og annarra Frónbúa í "æðislegri skriffinnsku"
Tryggingarstofnunar Ríkisins, eru martraðarvaldandi
löngu eftir að samskiptum við starfsfólk T.R lýkur...
árum saman!
"NightmareABÚL".....are you sure lady...they look
very comfortABÚL to me??
Góðar stundir og njótið sólarinnar svo þið verðið fallega brún...
"tanABÚL"!
![]() |
Indverjar að drukkna í skriffinnsku |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.6.2010 | 13:27
Siðleg pils...
..siðlegar slæður,
siðlegar andlitsblæjur,
siðlegar búrkur með augnagluggum!
Tarna eru ljótu "ólögin", sjaríalögin.
Virðast ganga mikið út á það að "kúga" konur.
Altént sér maður ekki mikið í fréttum að
karlmönnum islama sé "refsað" harðlega
fyrir að ganga í buxum, láta sól skína á
frjáls höfuð sín eða ber andlit.
Aðeins konum.
Islamatrúaðir ættu að BANNA sjaríaólög þessi,
því þau gera líf kvenna að kvöl,
og uppskera aðeins fyrirlitningu umheimsins
í garð islama.
Já, því það er svo, að hófsamir islamar losna aldrei
við svartan blett þennan út á við, á meðan sjaríalagaliðið
getur vaðið uppi með kúgun, forneskjulegar reglur, refsingar
og ofbeldi!
Svo mörg voru þau orð.
Góðar stundir.
![]() |
Siðlegum pilsum dreift til kvenna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
29.5.2010 | 18:18
Þarftu að kjósa....
...mamma"?
Níu ára djásnið horfði spyrjandi
á móður sína.
Húsfreyja var í óða önn eftir notalegt
bað, að skipuleggja daginn.
"Huh....jú, eitthvað er nú skárra að ég mæti
og kroti vilja minn á blað" svaraði húsfreyja.
"En þú MÁTT alveg sleppa því ef þú vilt", djásnið
gaf sig ekki.
"Jú, auðvitað, má ég það" svaraði húsfreyja
að bragði, "en þetta er nú einu sinni borgin okkar
og ég vil fá að hafa eitthvað um stjórnun hennar að segja"!
Djásnið hnyklaði brýr, en lét síðan gott heita...."en mamma,
FYRST förum við í Húsdýragarðinn"!
Húsfreyju setti hljóða.
DJÍSUSS!
Hér var hún að telja níu ára djásninu trú um
að kosningar hefðu einhver áhrif, þegar kæmi að borgarstjórn.
KRÆST!
Ekki höfðu síðustu borgarstjórnarkosningar verið
neitt til að hrópa húrra fyrir.
"Borgarstjóri í dag-leikur" með mergjuðum "samsærum" og
"bakstunguplottum" tvist og bast, mánuðum saman.
Og síðan varð "kvennabréfavinur" númer 1, Hanna Birna
stjóri, án þess að kjósendur hefðu nokkuð um málið að segja!
JEMINN!
"Ég hef ekki hugmynd um hvaða flokk ég á að kjósa,
og kosningarnar eru Í DAG"!
Húsfreyju sundlaði af kosningaörvæntingu!
"Við drífum okkur bara í Húsdýragarðinn" ákvað
húsfreyja við níu ára djásnið í snarheitum.
Gætti þess vel að taka ekki með sér nein
"höfuðföt" húsfreyja, eins gott að ná sér í
einn mergjaðan "sólsting" með meðfylgjandi
"bjartsýnishausverk" í garðinum.
Í garði dýra var ekki þverfótað fyrir "hárlausa
tvífætta liðinu" eins og köttur húsfreyju nefnir
það gjarnan.
Húsfreyja og djásn voru heppnar og fundu bílastæði
tæplega kílómetra frá garði.
Svo var rölt í góðviðrinu.
Þar var mikil Stöðvar-2 hátíð komin af stað og ÖLL Reykjavík
mætt á svæðið!
Eitthvað voru miklar pælingar í gangi hjá
yngra fólkinu, yfir því hve mikð
BREYTT Solla stirða og Íþróttaálfur voru orðin,
en hopp og hí og húllum hæ með Skoppu og
Skrítlu.
Húsfreyja og djásn náðu sér í fría pylsu á meðan
regnskúr "grét" bévítans ónæðið hjá húsdýrum
og öndum.
En stuttu seinna skein "sú gula" sem aldrei fyrr,
og Sveppi og Villi rauluðu lítil lög og skemmtu.
Húsfreyja reddaði djásninu frírri fjólublárri blöðru
í lokin, var búin að redda sér einum herlegum
sólsting, með tilheyrandi bjartsýnis-hausverk
og þær héldu heim á leið, mæðgurnar.
Bóndi beið spenntur eftir því að komast á kjörstað.
Húsfreyja var að sigla í þægilega "tilbúin-að-kjósa-
hvað-sem-er"-höfuðpínu, og dreif sig á kjörstað.
Þokukennd sjón hennar grillti tæplega alls konar
nöfn og bókstafi á kosningaseðlinum, hlakkaði í henni
er hún smellti x-inu nokkurn veginn á miðjan kassa...dududu..
...flokksins!
Málið DAUTT!
Aaaaa...þvílík sæla.
Panodýl og kaffi svo að redda hausverknum,
og nú er bóndi að grilla eðal steik, spjót,
bakaðar kartöflur og alles.
Namm!
Svo ÆTLAR Hera að sigra í kvöld....máske að það
verði...konan er mikil söngpípa, þó lagið sé lengi
að venjast.
Vonar samt húsfreyja að það verði ekki, þó hún óski
löndum sínum góðs gengis.
Það væri að æra óstöðugan að eiga að halda
massíva og fokdýra Eurovision-keppni í
hálfkláraðri tónlistarhöll út við sjó, með
kerlingarfáluna hana "Ísbjörgu" á hælunum
og snillana hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum "geltandi"
skipanir um leið og þeir "bíta" í hælana á
oss aumum "vitfirringum í fjármálum"!
Nah!
Þá er skárra að sú volduga rauðglóandi Hera
vermi 3- 20 sætið!
Eða það er mat húsfreyju.
En kæru samlandar gangið glaðir til kosninga,
þær eru hvort eð er alltaf heilmikið grín....DÆS!
Og góðar stundir yfir Eurovision í kvöld!
![]() |
Fleiri kosið í Reykjavík |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
27.5.2010 | 22:50
Aldrei má köttur...
...redda sér smá starrasteik í matinn
uppi á þaki, án þess að allt brjálist.
Já, og það hálf Keflavík!
Mannfólkið kemur æðandi babú-babú
á heilum slökkvibíl með krana og körfur,
djöfulgang, læti og alles, svo jafnvel mávarnir í bænum
tapa sér í "samúðarflippi" og ráðast
á sársvanga kisu.
Og akkúrat þegar kisi var búinn að fullkomna
"húsþaka-tæknina"!
Hnífbeittar ofurklær, kattliðugur skrokkur,
rosalegur stökk-kraftur og mögnuð snerpa
verið slípuð og æfð daglega, og svo loksins...
UPP Á ÞAK!
Nú skyldi sko kisi fá væna starraveislu!
En nei!
SVEI!
Tóm afskiptasemi, mávatjón og mannatjara!
Og kisi mátti beita ofurtækninni við það að klífa
niður húsvegginn....matarlaus og ofursvangur!
Það getur verið "hundalíf" að vera köttur uppi á þaki.
Húsfreyja vonar að einhver góðhjartaður Keflvíkingur hafi
splæst soðningu á ofurkisa þennan.
Á það skilið, kisi, eftir allt erfiðið!
![]() |
Fuglar hröktu kisu ofan af þaki |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
27.5.2010 | 18:19
Mikilvægar upplýsingar...
...þetta, um oddvitana í Reykjavík!
Og er nú alveg hreint á kristaltæru
hvaða flokk húsfreyja mun kjósa í
komandi kosningum!
Hefur verið í bévítans vandræðum, húsfreyja....eiginlega
hefur hún verið að bíða eftir "hugljómun".
Og nú sér hún í hendi sér,
að hana bráðvantaði "slagsmálaferils-upplýsingar" þessar
um oddvita borgarinnar.
Þetta eru auðvitað upplýsingarnar sem þjóðin
hefur "beðið eftir" og munu hjálpa hverjum og einum
kjósenda að gera upp hug sinn,
á degi örlaganna.
Ekki nokkur spurning!
Skiptir auðvitað höfuð máli að menn séu búnir
með "ofbeldiskvótann", hafi verið
sundurlamdir og handleggsbrotnir,
ætli þeir sér að verða borgarstjórar.
Gott væri einnig ef þeir hefðu lent
í mergjuðu einelti, orðið fyrir innbroti
með tjóni upp á hundruði þúsunda...
og langsamlega best væri auðvitað ef
allt hefði brunnið að minnsta kosti einu sinni, ofan af þeim.
Og valið verður oss kosningaþjáðum fjármálavitleysingum AUÐVELT!
Kjósum að sjálfsögðu þann vesalinginn sem við VORKENNUM mest!
Jamm!
Aldeilis brilliant að fá fréttir þessar af oddvitum vorum á silfurfati
rétt fyrir kosningar.
Húsfreyja var farin að örvænta!
Í ALVÖRU!
Góðar kosningastundir!
![]() |
Ólafur F. handleggsbrotnaði í slagsmálum við vin sinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.5.2010 | 18:12
Öskurok og sandbyljir.
Ekki lítur þetta gæfulega út.
Sei, sei nei.
Ófært á Sólheimasandi!
Og nýja höfnin Eyjamanna á Bakka?
Ætli þar sé allt "grænt og uppgróið",
hugggulegt, fínt og tilbúið fyrir vaxandi
umferð bíla, þá Herjólfur fer að mæta
þangað á klukkustundar fresti...í sumar?
Ætíð heiðskírt og bjart?
Máske búið að "spá" blankalogni og bongóblíðu
á Bakka og næsta nágrenni um "alla ókomna tíð"?
Einhverjir ægilegir veðurfræðingasnillar, jafnvel með málin á tæru?
Eða verða Eyjamenn og ferðalangar allir er með Herjólfi
ferðast, að fá sér eitt herlegt "GPS-tæki" í bílinn svo
þeir rati um Suðurlandið í brjáluðum öskustormi
og sandbyl?
Munu Eyjamenn máske ALDREI finna höfuðborgina við
sundin bláu aftur?
Ramba beina leið austur á Horn í Hornafirði,
á 12 kílómetra hraða, í gegnum öskusortann....
kolbikasvart helvíti, aðeins brotið upp af
draugalegum gráum hrossum norpandi við
öskugrafnar girðingar.....úúú!
Verður "Horn" máske nýja höfuðborgin Eyjamanna?
Verður "bílasprautun" aðalatvinnuvegur Hornfirðinga þar með?
Eða verða mattir, silfurgráir og vel "öskuskafnir" bílar "inn" í Eyjum?
Næstu 20-30 árin!
Verða bændur undir Eyjafjöllum RÍKIR menn?
Af því að selja Eyjamönnum sem og ferðamönnum öllum
"öskugráar" andlitsgrímur, úr eðalgrárri sauðarullinni?
Núll komma núll fimm grömm af ösku fylgir "FRÍTT" með hverri grímu!
Verða allar draugamyndir HOLLYWOOD teknar upp
undir Eyjafjöllum og nágrenni næstu 10 árin?
"RED AND BLOODY-BLACK SUNSET" 1-5 verða þá nýjustu
hryllings-drauga smellirnir frá Hollywood-smiðjunni
ár eftir ár.....ALLAR teknar upp á litla Fróni í mergjuðu
"öskuroki"!
Hætta bændur Eyjafjalla að hokra í öskusvartri sveit,
með baulandi gráar kýr og jarmandi kindur, nema sem hobbý,
og gerast allir sem einn, "aukaleikarar" í amerískum stórmyndum?
Jamm.
Margt á huldu í öskugrárri þoku framtíðar.
Ýmislegt sem birgir sýn!
Líkurnar á sunnlensku koppalogni árum saman,
eru álíka miklar og líkurnar á því að húsfreyja
skelli sér í ferð upp á Everest-tind í þessu lífi!
(Astmaveik kuldakreista, húsfreyja!)
Svo öskustormurinn blívur á Sólheimasandi, Bakka og víðar!
ÓFÆRT!
Hallelúja!
Góðar stundir.
![]() |
Sólheimasandur nánast ófær |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
22.5.2010 | 12:11
Down to earth raunveruleiki...
...getur verið erfiður og sár ýmsum.
Og raunin er sú að við búum öll
á "móður Jörð".
Og "móðirin" er sko alls ekki einhver steindauð
"kúla" á rólegu sveimi í kringum sólu.
Ó nei.
Bullandi virk eldfjöll þvers og kruss út
um allt á móður Jörð.
Heilu jarðarflekarnir á stöðugri hreyfingu og iði
undir okkur mannanna börnum, sem og öðrum
lífverum jarðar....allt á stöðugu ruggi og róli.
Jarðskjálftar, eldgos og flóðbylgjur eru skýr
skilaboð frá "Móðurinni" að hún sé langt frá því
að vera dauð úr öllum æðum.
Þvert á móti er hún bara asskoti hress og ern kerling,
sem hefur gaman að því að "hrista" upp í hlutunum.
Og af því að láta "okkur börnin hennar" vita, HVER ræður í raun!
Varðar hana lítið um grát okkar og angist yfir TAPI
á einhverjum seðlum, búnir til úr niðurhöggnum trjám hennar,
enda langt síðan hún "grét" missi sjálfra trjánna.
Og hún tekur sig til reglulega og minnir okkur á eitt, og eitt aðeins!
VIRÐINGU!
Virðingu fyrir ógnarkrafti hennar og hamförum.
Fyrir ægivaldi því sem hún hefur yfir okkur og
öllum þeim lífverum sem í hennar skjóli búa.
Ferðaþjónustufólk, ferðamenn og heimshornaflakkarar
verða eins og allir aðrir hér á jörð,
að gera sér grein fyrir "alvarleika" málsins,
þegar "Móðirin" blæs öskustrók upp í himingeiminn á einni
fjölförnustu flugleið okkar mannanna.
Grátur, gól, reiði, angist yfir töpuðu fé,
langtíma dvöl á flugstöðvum,
frestuðum ferðum, aflýstri eða mikið breyttri
ferðaáætlun hefur ekkert upp á sig nema leiðindi.
Mun betra að halda stóískri ró, líkt og öskugráir
Eyjafjallabændur, finna aðrar leiðir til að ferðast
yfir Atlandshafið og njóta þess vera þrátt fyrir allt
nokkuð öruggur í faðmi "móður Jarðar".......næstu
daga....eee...daginn í dag....altént þessa mínútuna.
Svo ef við jarðarbúar verðum að þjást tímabundið af smávegis
"pain in the ASH", so be it!
En húsfreyja ætlar "til ferða" í dag...á bifreið sinni,
á kaffiboð hjá systur í Þorlákshöfn.
Hefur heyrt því fleygt, húsfreyja að "móðirin" sé
eitthvað farin að róast þar uppi á jökli....
Góðar "ferðastundir" í sumar!
![]() |
Íslenskur öskuverkur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)