20.7.2015 | 14:44
Aldeilis vel þenkjandi vegfarandi.
Blessuð konan má þakka fyrir að að vera á lífi,
því flestir aðrir en björgunarmaður hennar,
voru of uppteknir við að mynda "yfirvofandi" andlát hennar.
Æði þetta með símamyndatökur virðist farið að
skerða vitsmuni fólks,
og getu þeirra til að framkvæma
lífsbjargandi athafnir.
Ekki hefði húsfreyju litist vel á það,
ef Eyjamenn allir hefðu
neitað að fara upp á land 23 janúar 1973!
"Erum bara svolítið...klikk....klik..
uppteknir við að mynda eldgosið,
klikk...klikk...
fara ekki fiskibátarnir allir ...klikk...
klikk..aftur upp á land á morgun"?
KLIKK!
Frábært að blessuð konan komst úr bílnum lítið meidd,
og björgunarmaðurinn á heiður skilinn.
Sæl að sinni
Bjargaði í stað þess að taka mynd | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.3.2014 | 20:11
Ný hugsun.... ný fátækt?
Húsfreyja er grátklökk af einskæru þakklæti og gleði.
Nú má hún, fyrir yfirþyrmandi náð fjármálaráðherra, hætta að
safna sér séreignasparnaði til elliáranna.
Jessurríbobb!
Brúka aurana í staðinn í það að greiða inn á höfuðstól
húsnæðismálaláns hennar ("kaup við fyrstu eign" gasalega smart orðað).
Allt að eina komma fimm milljón króna.
Þvílík dásemd og alsæla.
Býttar engu þó lífeyrissjóður hennar skerði greiðslur til hennar um 10-30%
þegar hún kemst á ellilífeyrisaldur, og hún fái greiðslur sem nema helmingi
fyrri mánaðalauna, og duga hvorki fyrir salti í grautinn, rafmagni og hita
né skófatnaði, (en reddar henni máske rúmstæði inni á tveggja manna stofu
á niðurskornu öldrunarheimili) bara ef hún fær að eyða séreignasparnaðinum
sínum í höfuðstólinn á láninu sínu.
Séreignasparnaðinn sem á að bjarga henni fjárhagslega, þegar
skertar lífeyrisgreiðslur blasa við mánuð eftir mánuð, og húsfreyja
er of gömul til að vinna lengur.
Séreignasparnaðinn sem á að tryggja henni mannsæmandi líf síðustu
æviárin, salti í grautinn, notalegt og hlýtt húsnæði, nýjan skófatnað af og til
og björt rafljós á myrkum vetrum.
Séreignasparnaðinn sem á að gera húsfreyju kleift að skreppa
með Herjólfi til Eyja yfir helgi í sumarfrí, kaupa smá afmælisgjafir handa
börnum og barnabörnum, splæsa á sig einni Dominós extra einu sinni
í mánuði og kannski fara einu sinni í leikhús á ári og tvisvar í bíó.
Já, svei, svona nýtingu á séreignasparnaði!
Þá er mun betra að brúka þessa aura í höfuðstólinn...sem kannski lækkar
eitthvað smá, um eina til tvær milljónir...nema auðvitað að verðbólgan
tryllist....en það hefur ALDREI gerst á litla Fróni....eða hvað?....já og ef
að ný kreppa skelli á....eða eitt lítið sætt BANKAHRUN dynji aftur á oss
örmum fjármálavitfyrringum...en þetta tvennt getur AUÐVITAÐ allls EKKI GERST...
og það að vertryggingin verði EILÍFÐAR-martröð á litla Fróni,
er "nottla bara KJAFTÆÐI"!
Já, séreignasparnaðinn okkar í höfuðstólinn STRAX.
En þar sem STRAX er orðið svona hrikalega "teygjanlegt" hugtak í íslensku máli,
ætlar húsfreyja að "teygja" á öllum ákvörðunum sínum
varðandi séreignasparnað sinn, og þar sem til staðar er
"pólitískur ómöguleiki" á efndum kosningaloforða hjá þessari ríkisstjórn,
þá hyggst hún aðeins þiggja lækkun á höfuðstól láns hennar að svo stöddu.
Annars er næsta víst að séreignasparnaðurinn húsfreyju verði horfinn í
verðbólguhafaríi og verðtryggingarsukk, útþurrkaður,
glataður og tapaður að eilífu í hafsjó nýrra reglugerða og frumvarpa
sem snúast mest um að hyggla þeim peninga- og valdagráðugu.
Jamm, húsfreyju er um og ó.
Margir Frónbúar urðu að nota séreignasparnað sinn í bankahruninu
2008, til að bjarga húsum sínum, og eiga því ENGAN séreignasparnað lengur.
Þeir hafa ekkert val, þó þeir vildu fórna séreignasparnaðinum upp á von og óvon.
Margir öldungar á litla Fróni eru að fá skertan lífeyrir mánaðarlega, sem dugir þeim
fyrir framfærslu í 10-12 daga, ef þeir lifa SPART.
Súrefni og H2O er svo á "menu" dagsins það sem eftir lifir mánuðs,
komi börn og barnabörn þeim ekki til bjargar.
Sumir þessara "greiðsluskertu" öldunga eiga ekki börn eða barnabörn, það
kemur þeim ENGINN til bjargar.
Húsfreyja hefur hitt einstæðinga, erna öldunga í heimahjúkrun, sem geta ekki lengur
annast sína matseld vegna líkamlegra sjúkdóma, að veltast með matseðil
í höndum, reynandi að velja 1-2 máltíðir á viku af heimsendum mat,
svo þeir fái eitthvað að borða. Fjárhagur þeirra leyfir ekki fleiri máltíðir,
þó ekki sé máltíðin dýr.
Blóðugt.
Séreignasparnaður hefði komið þessu fólki vel í ellinni.
Jamm en brilliant, að LEYFA oss fjármálavitfyrringum að nota okkar EIGIN
sparnað til að BJARGA heimilum okkar.
Góðar efndir þetta á kosningaloforðum.
Sumt er bara SNILLD.
Góðar stundir, og í guðanna bænum notið séreignasparnaðinn ykkar í
eitthvað sem þið ÓSKIÐ að nota hann í.
Felur í sér nýja hugsun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.1.2014 | 21:42
VARÚÐ! HÆTTA! Bretadrepandi hjónabönd.
HROÐI.
HRYLLINGUR.
HRYÐJUVERK.
Voveiflegar fréttir berast nú frá hinu mikla veldi Betu Bjútí,
drottningu Bretanna.
Þar æddu í desember síðastliðinn yfir Breta stórstreymis flóð
í fárviðrum miklum
með illvígum stormveðrum, og það yfir helgustu hátíð allra
sanntrúaðra biskupakirkju-Breta, Jólin sjálf.
Allt flaut á brott sem flotið gat: Bílar, hús, bátabryggjur,sófar,
flatskjáir, hrífur, sláttuvélar,
jafnvel fólk og langsamlega verst, gólfkerrur.
Allt í tjóni og tjöru þar með yfir jólahátíðina hjá breskum.
Menn svömluðu þetta blautir upp í klof með jólapakkana á milli húsa, urðu
að "róa" á pöbbinn dauðþreyttir eftir vinnu á móti stríðum vatnsstraumi,
en var reyndar nokk sama eftir nokkra "ískalda", hvort þeir flytu heim aftur
eða á haf út, og eyddu löngum stundum í biðsölum húðlækna með
mergjaðan "fótasvepp".
Enginn komst í GOLF.
ROSALEGT.
Svaðalegt að eyða Jólum í svona hrylling.
Og enginn botnaði neitt í neinu.
Hvað höfðu breskir gjört af sér, sem hefndi sín svo rækilega með
"Nóaflóði" í öðru veldi?
Menn stóðu á gati.
Klóruðu sér í haus og botn, óðu svelginn með sandpoka á bakinu,
og horfðu á eftir sófasettinu á hraðri siglingu á haf út, á vit ævintýra í suðrænum höfum.
Vesen og vonleysi.
En lengi er von, og EUREKA!
Hinn snjalli og vísi bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokks Breta (Ukip), herra David Silvester
er með málin á tæru, samkvæmt ágætri frétt í DV okkar Frónbúa.
Aldeilis búinn að kryfja flóðamartröðina og bévítans fárviðrisstormana í tætlur þar
í ríki Betu Bjútí.
Jú, þetta bévítans veðurfá meðr tómu vatnstjóni,
er að "sjálfsögðu" HJÓNABÖNDUM SAMKYNHNEIGÐRA að kenna.
SEGIR SIG SJÁLFT!
Jamm.
Allt síðan að Beta Bjútí og herleg ríkisstjórn hennar hófu að pússa saman
homma og lessur, hefur hver stórlægðin gengið yfir Stóra Bretland,
íbúum þess til armæðu og tjóns.
Er nú hinn eitursnjalli hugsuður og "sjálfstæður" bæjarfulltrúi, David Silvester,
þess fullviss að von sé á öðrum og mun meiri djöfulgangi, haldi Beta Bjútí sig
við efnið, og gifti mann og annan, og konu og aðra, af sama kyni villt og galið.
Megi nú hin "hjónabandaóða", bersynduga breska þjóð búast við
styrjöldum, pestum og bráðafári á heimsendamælkikvarða, því
"fagnaðarerindið" hefur bannað slík "samsyndug" hjónabönd.
Samanber III Mósesbók 20: ...eitthvað. Hefur þetta húsfreyja í Biblíunni
upp á engilsaxnesku: Leviticus 20:3 - "If a man lays with another
man, he should be stoned".....en húsfreyja fann reyndar
brilliant skýringu á fésinu á þessu versi nú á dögunum:
It makes sense, now that gay marriage and marijuana are being
legalized at the same time, we've just been misinterpreting it.
Hér að sjálfsögðu vísað í tvímerkingu orðsins "STONED" :
1. Grýta til bana. 2. Út úr vímaður.
En þetta var útúrdúr.
Aftur að æruverðugum sjálfstæðismanni breskra, herra David Silvester
og ærnum áhyggjum hans af framtíð breska heimsveldisins.
Samkvæmt honum eru hjónabönd samkynhneigðra að ganga að
Betu Bjútí og allri hennar slekt dauðri í komandi framtíð.
Má þá að líkindum, á næstu mánuðum vænta
"Stóru Bólu, Svarta Dauða, Gin- og Klaufaveiki, Sárasóttar,
Holdsveiki og Fótasveppafárs í landi Breta, ásamt stórfelldum
nattúruhamförum, ofsastormum, flóðabrjálæði með dassi af
snjóbyljum í því landinu. (Djíss...ferðamannabransi þeirra bresku er DAUÐUR
þar með.)
Í kjölfarið munu sjálfsagt koma engisprettufaraldur, froska offjölgun og
flugnafár með mergjuð mýbitsveseni.
Þykir húsfreyju ekki ólíklegt, hafi herra Silvester hinn sjálfstæði rétt fyrir sér,
að einnig megi rekja síðustu "ísöld" beint til tveggja homma að
bindast heitböndum í íshelli, og uppgangi lessa sé alfarið um að kenna hnignun
hins mikla griska veldis til forna.
Og auðvitað hlýtur þá einnig fall Rómverja til forna að vera samkynhneigðum að kenna,
galdrafárið á miðöldum (ekki spurning), kóngaleysi Betu fyrstu Bretanna,
báðar heimstyrjaldirnar, Hiroshima, Nakasaki, Spánska veikin,
gosið á Heimaey/ í Eyjafjallajökli ásamt ýmsum öðrum eldgosum, og
allar heimskreppur og öll bankahrun sögunnar eru á þeirra ábyrgð,
sem og því að húsfreyja asnaðist í vinnuna í morgum
í einum hvítum sokk og einum rauðum.
Já, á þeirra SAMKYNHNEIGÐU herðum sé eiginlega öll óáran, fár, tjón, hamfarir
og vesen hér á jörð í fortíð, nútíð...og já, um alla ókomna tíð.
Ja, SVEI þessu öllu.
Móðir Jörð væri sjálfsagt bísna FÍNN staður að dvelja á, ef ekki væri
fyrir bévítans samkynhneigðu vandræðagemlingana.
Já, tarna eru slæmar fréttir af blessuðum snillingnum honum
David Silvester.
Húsfreyju dettur í hug, hvort hún ætti ekki að koma honum í
samband við Gunnar "fyrrum Krossins", og fá Gunnar til að rifja
upp "afhommun og aflessun" Krossins með honum.
Sé húsfreyja fyrir sér að Gunnar hljóti að hafa lært "listina" í sérlegum
"Harry Potter afhommunarskóla", veifi hann staf sínum
og hrópi þrumandi raust í "Darth Vader-stíl" yfir hópi
af vesölum samkynhneigðum, hjónabandselskandi einstaklingum breskra:
"LUMINUS AFHOMMUS! DING DONK OG GENGJA"!
Og DÚBBÍ DÚ þú ert hommi og lessa NO MORE.
Jamm.
Aldeilis magnað hvað fólk lætur hafa eftir sér í fjölmiðlum, væri húsfreyja
herra Silvester, gengi hún nú og alla tíð framvegis með hauspoka á höfði sínu.
Góðar stundir, og í guðanna bænum verið ekki að vaða í það að gifta ykkur
í Bretlandi...gagnkynhneigðir sem og samkynhneigðir.
Allur er varinn góður......
Spaugilegt | Breytt s.d. kl. 21:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.11.2013 | 18:37
Tannatitrandi víruð upplifun.
Háskólabíó virtist nötra þegar húsfreyja,
systir í Þolló ásamt 12 ára djásninu, Svölu (15), Sigga Frey (13) og
Vigranum (10), mættu á svæðið til að fylgjast með
Fitnesmodel-keppni nú nýverið.
Mergjaðar drunur með "RUDDU RUDDI VÍRBASSI"-
músík organdi í eyrum tóku á móti þeim inni í sal.
Tennur í munni húsfreyju byrjuðu að titra....BOMM BOMM BOMM-
takturinn olli henni hrikalegum hjartslætti og
"HLUSTASKEMMANDI VÍRSÖNGUR"
kom af stað hrikalegum stresshnút í maga hennar....
"RUDDU RUDDI VÍRBASSI....BOMM BOMM".
Húsfreyju lá við öngviti af stressi.
Mikið hrikalega var hún orðin FORN og GÖMUL.
Blóðið strax farið að streyma úr eyrum hennar af álagi,
eftir hálftíma setu í salnum.
Sjitt! Hún yrði að reyna að bera sig vel.
Ekki hægt að missa af systurdóttur í modelkeppninni.
Þau hin myndu skammast sín ægilega, ef hún færi að kvarta undan
mús...HÁVAÐ.....GARGANDI ORGINU... "RUDDU RUDDI
VÍRBASSI....BOMM BOMM BOMM"!
Húsfreyja reyndi að kyrra nötrandi tennur sínar, og gjóaði
augum á systur í Þolló við hlið sér....errr...hvar var systir í
Þolló eiginlega?
Var þetta bara úlpan hennar í sætinu...en Nei.
Allt í einu móaði í þjáð andlit systur í vetrarflíkinni.
Systir virtist einhvern veginn skroppin saman í sætinu, úlpa
hennar komin "upp fyrir eyru".
Argvítans eyrnablæðandi bassinn djöflaðist sem aldrei fyrr....
"Váv", stundi systir í Þolló,og galaði síðan: "Nú ætla þeir algjörlega
að tryggja að við verðum endanlega heilabiluð þegar við komum út".
Eða það þóttist húsfreyja skilja og heyra með því að hreinsa mesta blóðið
úr eyrum sér, en mest þó með því að lesa orðin af vörum systur.
Galaði síðan á móti: " Já, og þarna stendur "PLÖTUSNÚÐUR DAUÐANS"
vel varinn af heyrnaskjólum".
Og mikið rétt, sá með tónlistina stóð og reyndi að ná sambandi við
mann upp við sviðið, sem virtist gjörsamlega heltekinn af
því að spila "Candy Crush" í tölvu sinni.
Samskiptin gengu eitthvað stirt hjá þeim tvemur vegna
þess hve oft gargandi tal þeirra var borið ofurliði af
"RUDDU RUDDI VÍRBASSI..BOMM BOMM".
Tólf ára djásnið sat og hafði troðið vísifingrum í eyru sér,
sem og Vigrinn, Sigginn var eitthvað fölur og galaði að
"tónlistin" væri "ekkert spes".
Salurinn var nánast fullur af fólki og sat í rólegheitum
og GARGAÐI saman.
Eftir að fyrstu keppendur í fitness höfðu farið á svið,
hóf smávaxin ljóshærð stúlka á sirka áttunda ári,
og sem sat fyrir miðjum bekk húsfreyju, sína sjálfsagt
reglulegu MARÞON-kvöldgöngu....fram og til baka...
fram og til baka eftir bekknum....húsfreyja og kó
stóð upp....settist niður....stóð upp...settist niður osfr.
alls 17 sinnum. Fínar fitnessæfingar í gangi.
Eftir að fitneskeppendur höfðu lokið að koma fram,
ruddist kona á að giska þrítug eftir bekknum fyrir
ofan húsfreyju og ýtti náfölri unglingsstúlku á undan sér,
sem hélt báðum höndum þétt fyrir eyru sér (.."ein með
eyrnablæðingu, eins og ég" hugsaði húsfreyja samúðarfull),
og gargaði konan nokkur orð við tvo herramenn beint fyrir ofan
húsfreyju: "Ég verð að fara með hana heim, við erum að ÆRAST
hérna".
"En þú kemur aftur og sérð úrslitin"? orgaði annar maðurinn.
"NEI, ég held að ég láti þetta duga í kvöld" gargaði konan
og var síðan horfin á braut með sína eyrnablæðandi dóttur,
og þær sáust ekki meir.
En nú var komið hlé.
Fólk RUDDIST fagnandi út úr salnum, og niður í
blessunarlega tiltölulega hljóðlátan forsalinn.
Þar að vísu mikið skvaldur, en vegna "nýlegra" hlustunarskemmda
flestra áhorfenda kom það ekki að sök.
Var svona meira eins og notalegt "hvískur" í eyrum húsfreyju.
Tólf ára djásnið gaf út yfirlýsingu (tveimur lögum goðsins
Michel Jacksons hafði verið hroðalega misþyrmt inn í sal stuttu fyrir hlé):
"Þeir eyðileggja 80% af sýningunni með þessari hryllilegu músík".
Siggi Freyr skellti út sinni yfirlýsingu: "Ég ætla ALDREI að hlusta á
svona músík aftur"!
Svalan reyndi að vera jákvæð:" En þeir spiluðu þó TVÖ góð lög".
Tólf ára djásnið gaf hvergi eftir: "Já, en þau voru svo hátt spiluð að maður
varla þekkti þau fyrr en í lokin".
"HALLELÚJA" hugsaði húsfreyja. "Við systur erum kannski ekki svo
fornar og gamlar eftir allt, fyrst unga fólkið er líka að brjálast
yfir músíkinni"!
En það var komið að hápunktinum.
Systurdóttir Henný (26) að koma fram á sviðið,
að keppa í fitnesmodel.
Stelpan sú svakalega flott, að gera góða hluti, svo
húsfreyju og systur í Þolló tókst næstum að gleyma
blæðandi eyrum og heilabilun í heilar 10 mínútur.
Og það voru ofboðslega þakklát og hamingjusöm 12 eyru sem
yfirgáfu Háskólabíó upp úr klukkan átta um kvöldið...lemstruð
og með bólgnar hlustir að vísu...en GLEÐIN einskær yfir því
að komast út.
Húsfreyja SLÖKKTI á útvarpinu í bílnum...hafði ekkert með
vesalings starfsfólk Bylgjunnar að gera...en þögnin var æði.
Tólf ára djásnið hringdi í föður sinn og rukkaði eftir mat....og lýsing hennar
á atburðum kvölds hljómaði svona....."Henný var rosaflott, pabbi, en
músíkin var HRÆÐILEG...hvernig...jú, þeir tóku einhver lög og blönduðu þau með..
...þau með... DAUÐA".
Húsfreyja glotti með sjálfri sér undir stýri þó hún væri farin að hafa smá
áhyggjur af því að hafa ekki sloppið með "heilabilun" eftir í kvöldið.
Því í huga hennar ómaði nú jólalag þeirra Baggalúta..."Ég kemst í jólafíling..
klikkaðan jólafíling...( en ó, vei..truflun)...RUDDA RUDDI VÍRBASSI..
...Jólin...jólin....ég kemst í jólafíling"...BOMM BOMM BOMM.
Góðar stundir og hafið það sem allra best á komandi jólaaðventu.
Spaugilegt | Breytt s.d. kl. 22:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.10.2013 | 21:53
Harmaspá, heimsendafregnir, voveifleg framtíð.
Ó vei!
Arga örvænting!
Hroðbjóður!
Panikk!
Súkkulaði í heiminum BÚIÐ!
FINE!
FINISHED!
CAPÚT!
Og ekki seinna en korter fyrir tvö 2.október 2020.
Eftir aðeins 7 stutt ár!
Hvaða DJÖFULLEGA dagsetning er þetta?
Hvurslags framtíðarsýn er þetta?
Á húsfreyja eftir að vakna upp að morgni annars október 2020,
í "Serotoninfalli", með mergjaða þokuhugsun, heiladoða og utangátta-þankagang?
Af SÚKKULAÐISKORTI!?
Ó, húsfreyju arma og vesæla.
Hún sem hefur af harðýgi og dugnaði einsett sér að breyta vökvabúskap
síns skrokks með aflmiklu súkkulaðiáti upp á dag hvern,
og telur næsta víst að sér hafi tekist að breyta vökvamagninu í blóði
í eðal 75% "kakómassa", á nú lenda í tómum öfugsnúning og fyllast
af vatnsgutli og steinefnaglundri á nýjan leik.
Allt hennar erfiði fyrir bí.
DAUÐI OG DJÖFULL!
VATN OG TÓMATSSÓSA!
ANGIST OG SVÍNARÍ!
Þetta líst húsfreyju ekkert á.
Gæti orðið hennar banabiti...eða réttara skortur á súkkulaðibita
gæti orðið henni að aldurtila.
Húsfreyja vill biðla til þjóða heims að taka nú höndum saman, og
bjarga eðal-kakótrjám og ýndislegum kakóbaunum frá útrýmingu og
plöntupestardauða, koma þessari "fæðu guðanna" í hús hið snarasta,
og rækta villt og galið.
Og þar með tryggja það að húsfreyja deyji afgamalt hró
á tíræðisaldri, með bros á vör og sól í hjarta, á meðan brúnir
súkkulaðitaumarnir leka frá munnvikum hennar niður hökuna
og síðasti Síríus-súkkulaðimolinn með rúsínum bráðnar í visinni hönd hennar.
Aaaaa... súkkulaði og rúsínur...þvílík sæla.
Það er einlæg von húsfreyju að hún þurfi ekki að fara að hamstra
súkkulaði....yrði ROSALEGA STÓRTÆK, húsfreyja þá.....ekki víst
að bílskúrinn dygði undir gæðanammið, og það þó hún tæmdi hann
af öllu öðru dótaríi.
En góðar stundir og megi öll ykkar ár verða súkkulaðirík.
Súkkulaðiskortur yfirvofandi í heiminum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 13.11.2013 kl. 18:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.10.2013 | 22:04
Sjúkir og slasaðir skulu borga.
Það var og.
Aldeilis brilliant fjárlagafrumvarp þetta.
Húsfreyja sér fyrir sér atburðarásina.
Húsfreyja fýkur um koll í næstu albrjáluðu vetrarlægð,
skellur beint á hausinn á steinsteypta stéttina og KRASS,
hausinn brotinn.
Þegar hún rankar aftur við sér á Landspítala Háskólasjúkrahúsi,
10 dögum seinna, reifum vafin um höfuðið, með þrefalt boxaraglóðarauga og
heilastarfsemi í mergjuðum hægagangi, verður hún þegar í 12.000 króna
skuld við sjúkrahúsið.
Og treysti hún sér þar með ekki, að rusla sér fram úr rúminu samstundis og
út af spítala, með þvaglegginn lafandi niður úr klofinu, handlegginn tengdan
við stöng á hjólum með næringu í æð og gasalega illvígan hausverk, og þarf
þá að gista 6 nætur í viðbót, er 20 þúsundkallinn fljótur að fjúka.
Nú á húsfreyja ekki marga 20 þúsundkalla þegar hún er búin að borga
hús, bíl, faseignagjöld, hússjóð ofl.
Í góðum mánuði á hún kannski 60.000 eftir í mat, fatnað o.þ.h.
fyrir sína þriggja manna fjölskyldu og matgrannan kött.
Í slæmum mánuði er hún heppin að eiga 10.000 krónur afgangs....og þá er
að svína á VISA...og svína...og allt vindur upp á sig endalaust.
Það er aðeins blessað orlofið sem reddar húsfreyju frá þvi að
sökkva fúlan óborganlegan skuldapytt, og hjálpar henni
aftur upp að núllinu.
Jamm, orlofið sem á að notast í sumarfríinu, fer allt í skuldir, og hefur
farið þá sömu helvísku leið í mörg ár, eða alveg frá bankahruni hér hjá oss
örmum fjármálavitfyrringum út í miðju ballarahafi.
Sumarfríið verið í mínus fjárhagslega alla tíð síðan, og húsfreyja lengi
að ná andanum í því fjárhagslega drulludýki, eftir frí. SVEI!
Já, því fer fjarri að húsfreyja hafi efni á því að borga 1200 krónur á
dag fyrir það eitt að velgja rúm á spítala fárveik og voluð. skyldi
næsta vetrarlægð ná henni.
Sei, sei nei.
Samt eru þau hjónaleysin, bóndi og húsfreyja bæði að streða dag hvern,
virka sem um helgar, við að vinna, og reyna að láta enda ná saman.
En hvað þá með fólkið sem enga hefur vinnuna?
Öryrkja?
Öldunga...afa og ömmu?
Eru þá máske öldungar og öryrkjar allir á litla Fróni svo vellauðugir
og moldríkir af seðlum, að ekki sér högg á vatni, þurfi þeir
að verma rúm á spítala í mánuð, tvo eða þrjá?
Altént veit húsfreyja, að það er langt því frá að öldungar okkar
hér uppi á litla Fróni vaði allir í peningum.
Einn og einn á stangli á margra ára fresti sem hún hittir,
með Rolexúr á úlnliðnum og farandi 2 ferðir utan á ári í mánaðarsiglingu.
Flestir hinna eiga vart milli hnífs og skeiðar og láta sér nægja að
"ferðast gangandi" niður í bókastofu að spila Vist.
En það er þá skilyrði að þeir búi í þjónustuíbúð...
ekki víst að sumir þeir öldnu hafi kost á
ferðalagi gangandi í bókastofu, búi þeir enn í húsi sínu eða íbúð.
Neipp, ekki margir öldungar sem hafa efni á því að gista dögum saman hjartveikir,
nýrnaveikir, slasaðir, nýuppskornir eða lamaðir jafnvel, í rúmi á
deild á Landspítala Háskólasjúkrahúsi, telur hún.
Færu frekar heim, fárveikir, hundslappir og nánast ósjálfbjarga, heldur en að
setja sig og sína í fjárhagslegar ógöngur vegna sjúkrahússlegu, öldungar vorir.
Jamm.
Ríkið græðir seint peninga á öldungum, þeir hreinlega "vilja ekki" gista voru
frónversku spítala, eigi þeir þess nokkurn annan kost.
Ja, nema......
Kannski að ríkisstjórnin (djö.... snillingar sem hún er) setji nú fram frumvarp,
um að setja "sérstakt gjald" á ellilífeyrisþega? (Alltaf hægt að plokka af þeim aurana.)
Svona eins konar "elligjald".
Þannig gæti stjórnin gert öldungum að greiða ríkinu 1000 krónur á mánuði,
12.000 krónur á ársgrundvelli fyrir hvert ár sem þeir "lifa fram yfir" 67 ára aldur.
Ríkið græddi grimmt, ekki spurning.
Við erum að tala um 240 milljónir á ári ef 20.000 ellilífeyrisþegar hjara uppi
á litla Fróni.......1200 milljónir á 5 árum.
Munar um minna.
Gæti jafnvel borgað sig fyrir spítalana að bjóða öldungum FRÍA innlögn í viku
á spítala "tvisvar á ári", þeim til lækninga og hressingar, svo þeir
lifi sem "allra lengst" og BORGI sem allra mest þar með.
Jamm.
En altént ætlar ríkisstjórn vor að lækka álögur á EINNOTA BLEYJUM.
SNILLD!
GLEÐI!
Húsfreyja á ekkert bleyjubarn, 12 ára djásnið sjálfbjarga á salerni fyrir löngu.
En húsfreyju datt þá í hug að skella sér samt á einn bleyjupakka "hræbillegan",
og athuga hvort hún gæti ekki nýtt sér eitthvað þessi "gæði" nýju stjórnarinnar.
Kannski er hægt að "krydda bleyjurnar eitthvað til og steikja á pönnu" og snöfla
í sig...... nú eða klippa niður í óróa í stofugluggann úr mismunandi stærðum,
skúra með þeim parkettið eða sauma úr þeim rúmteppi.......BLEYJUR- JÓLAGJÖFIN
Í ÁR!
Möguleikarnir eru óþrjótandi.
Nei, bara svona smá pæling hjá húsfreyju sem er með orðið "NIÐURSKURÐUR"
tattúverað þvert yfir enni sér, brennimerkt í hjarta sér og lekandi út úr báðum
eyrum sér, eftir hartnær 30 ára starf í heilbrigðiskerfinu.
Góðar stundir og guðanna bænum gætið heilsunnar...nema auðvitað þið
eigið 1200 kall á lausu.
Innheimta gjald fyrir legu á sjúkrahúsi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Heilbrigðismál | Breytt 5.10.2013 kl. 18:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.9.2013 | 21:34
Storkur Bond í Egyptalandi.
Snar í snúningum, veiðimaðurinn við ána Níl,
þegar hann varð var við læðupúkalegan og
dularfullan stork að sniglast við árbakkann.
Aha! Storkur að gjóa fráum augum á veiðimann af og til, teygja sig
álkulega og "læðast" um á háum leggjum sínum.
"Storkur að leita sér að smáfisk, pöddum og öðru smotteríi að éta við
árbakkann......segðu mér annan....MAMMA ÞÍN HVAÐ".
Neipp, hinn egyptski veiðurmaður lét ekki aldeilis plata sig upp úr skónum.
Ekki þegar hann sá logarauða "njósnabúnaðinn" festan á
"Stork Bond", á áberandi stað, svo allir athugulir
Nílarveiðimenn gætu haft varann á og auga með mergjuðum
spæjara þessum.
Veiðimaður setti í fimmta gír, hljóp uppi hinn furðuslegna
njósnara, sem auðvitað vissi ekki að upp hann hafði komist,
fangaði fiðurfénaðinn og kom síðan logarauðu njósnatæki með
fugli og öllu saman beina leið í hendur lögreglu.
Og hananú.
Sjálfsagt einhverjir herjans "útgerðarbófar" sem gert hafa
illfyglið síspæjandi út af örkinni, til að tryggja að veiðimenn
Egypta veiði eigi langt umfram "kvóta" í ánni Níl.
Einhverjir gráðugir fiskibarónar búnir sölsa undir sig allan
Nílarkvótann, svo ekki einu sinni fátækir veiðimenn með
10 börn og 4 konur á framfæri sínu mega veiða meira fimm fiska á
dag.
Veiðimaðurinn snöggi var aldeilis sigri hrósandi er hann kom
með spæjarfanga sinn á lögreglustöðina.
"Þessu pakki kemur sko ekkert við hvað ég veiði mikið".
En þá fór heldur að harðna á dalnum með veiðimann og stork.
Uppnám, öngþveiti og panikk.
Var fjandans storkurinn ekki aðeins stórtækur ofurnjósnari,
heldur bévítans "terroristi" í ofanálag.
SPRENGJA!!
L0gregla dundaði við það lengi dags að skoða ókennilega
"rauða" hlutinn sem festur var á storkófétið.
Hrikalegur hryðjuverkafuglinn, snyrti fjaðrir sínar á meðan og goggaði
ergilegur í fótleggi og arma þegar hann gat, og baðaði út
breiðum vængjum vonskulega af og til.....gerði
hvað hann gat til að skreyta lögreglustígvélin með
gulgrænu driti sínu.
"Var verið að gera árás á egypska fiskimenn í stórum stíl með
sprengjuberandi storkaflokk"?
Og hverjum þá, var svona illa við fisveiðimenn Egypta"?
Stóðu máske "Samtök Fólks með Fiskofnæmi" fyrir árásinni?
Og hvar voru þá hinir ófétis sprengjuberandi storkarnir?
Varla hafði "árásarliðið aðeins sent EITT fjaðrað kvikindi?
Höfðu þeir fljúgandi og fiðruðu máske
villst inn á skotæfingasvæði Egypska hersins,
þar sem allt væri þá farið í bál og brand, í stað þess að
flykkjast að bökkum Nílar að salla niður fiskveiðimenn?
Var þetta "árás"...eða kannski bara eitthvað allt annað?
Hehehehe.
Stóðst ekki mátið húsfreyja.
Skondin frétt atarna.
Auðvitað var rauða tækið ekki sprengja, aðeins saklaust
fuglamerkingatæki frá fuglaskoðara.
En storkræfillinn Nílarfisksglaði mátti dúsa lengi enn
í fangelsi Egypta.
Efast húsfreyja stórlega að hann leggi nokkru sinni aftur í það aftur,
að næla sér í hádegissnarl í ánni Níl.
Gerist vetrarsetufugl í Danaveldi og betlar sardínur í dós
af dönskum bónda.
Góðar stundir á þriðjudegi.
Storkur grunaður um njósnir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 26.3.2014 kl. 22:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.8.2013 | 22:33
Banamein: RASSFYLLING.
Tarna er ljóta fréttin.
Húsfreyja er rasandi á grátlegri frétt þessari.
Fimmtán manns dáið á tveimur árum vegna þess
að þeir létu troða stórhættulegu sílikondrasli
"inn í" rasskinnarnar á sér.
RASSKINNARNAR!
Hvurslags ofurfegurðardýrkun er í gangi úti í hinum stóra heimi?
Ungt fólk að deyja drottni sínum langt fyrir aldur fram,
vegna þess að það missti sig í sjálfsútlitsdýrkuninni?
Troða inn í sig einhverju drasli, svo rassinn sé kúlulagaðri og
línulegri....og hlýtur þá einnig að verða STÆRRI....og síðan
hvenær er það rosalega smart að vera með "risastóran rass" danglandi
og dinglandi út og suður í hverju skrefi?
Er það þá orðið stórkostlega flott, bara ef bévítans rassinn er
KÚLULAGA?
Svo fer allt á versta veg.
Þrútnar rass út, getur fólk ekki sest á botninn á sér, svo jafnvel salernisferðir
verða stórmál.
Síðan sýkingar, sársauki og jafnvel dauði.
Ja, tarna er furðulegt uppátæki...og stórhættulegt.
Þá er skömminni skárri önnur fegurðarvitfirring, sem húsfreyja
hefur fregnað af að sé orðin bísna vinsæl erlendis.
Jú, nefnilega ENDAÞARMSBLEIKINGIN.
AHA!
Endaþarmsbleiking.
Húsfreyja fregnaði af fyrirbæri þessu ekki alls fyrir löngu, og var þá
ekki viti bornari en svo um málið, að hún sá fyrir hugskotssjónum sínum
fólk sitja í "lange baner" með beran rassinn ofan í bala fullum af KLÓR,
að bleikja á sér rassgatið þannig.
Neipp.
Svo einfalt er þetta ekki.
Herlegir og rándýrir lýtalæknar koma hér til sögu.
Þeir krukka í rassgatið á fólki í hartnær klukkustund, "sanda" það
og fínpússa, þar til það skín sem" neonbleik" afmælisblaðra í
barnaafmæli.
Kostar einhver hundruði þúsunda aðgerðin.
Jamm.
Er víst mun notalegra og hlýlegra fyrir þá sem endaþarmskynlíf
stunda grimmt og galið, að hafa "bleikan" lit á þessu svæði.....mun
huggulegra en drapplitað, ljósbrúnt, fjólað eða rauðleitt rassgat....
eða það hlýtur að vera málið....eða hvað?
Ekki er fólk að æða um utandyra berrassað, með sundurglenntar
rasskinnar á mannamótum, til þess eins að státa sig af nýbleiktu rassgati?
Eða er það?
Ja, sei.
Hvað veit húsfreyja?
En altént er "endaþarmsopsbleikingaraðgerðin" ekki þekkt af því að strádrepa
ungt fólk elskt að bleikum rassgötum, í hrönnum,
líkt og rasskinnafyllingarnar í Venesúela.
Það er vel.
Er bara eitt sem böggar húsfreyju lítillega, þegar hún veltir þessum
kostulegu endaþarmsbleikingum fyrir sér:
Hvað með "litblinda" einstaklinga og "bleikt" rassgöt?
Erum við að tala um "GRÆN" endaþarmsop hérna eða......?
Góðar stundir og í guðanna bænum verið ánægð með ykkur eins og þið eruð
frá náttúrunnar hendi... "óbleikt", rasssmá, gullfalleg og SPRELLLIFANDI .
Fegurðin dýru verði keypt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Spaugilegt | Breytt 2.10.2013 kl. 13:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
31.7.2013 | 13:45
Þyrnirós var besta barn...besta nafn?
Það var og.
"Þyrnirós" orðið gott og gilt nafn samkvæmt Mannanafnanefnd
uppi á litla Fróni.
Telur húsfreyja að næst liggi þá fyrir að samþykkja nafnið "GARÐABRÚÐA"
sem eðal fínt nafn á stúlkubarni, enda tekur það nafn íslenskri
beygingu í eignarfalli..."til GARÐABRÚÐU".....og sjálfsagt bullandi
" mannanafnalöglegt" einnig, eins og nafnið Þyrnirós .
Nú og fyrst Mannanafnanefnd er komin á myljandi fart í "ævintýrabransanum"
mannanafnalega séð, væri ekki úr vegi að lögleiða einnig nafnið
"RUMPUTUSKI" sem arfa flott nafn á drengi og nafnið ÖSKUBUSKA á
stúlkur.
Sterkt kæmi þá einnig inn nafnið JÁRN-HINRIK á drengina.
Það nafn með bandstriki, sem þótti aldeilis flott hjá
breskum aðli hér í eina tíð.
Nú og þá eru kvennanöfnin MJALLHVÍT og RAUÐHETTA klassísk.
Húsfreyja velkist hinsvegar í vafa með nöfnin SNJÁKA, HANS KLAUFI
og KJÁNN, og telur að þau munu ekki ná vinsældum hér í landi elds og ísa...
og ævintýra.
Já, en aldeilis flott framtak og gott framlag þetta hjá Mannanafnanefnd til
auðgunar á íslenskum mannanöfnum.
Og styttist óðum í það að PRINS og PRINSESSA verði orði fullgild og
viðurkennd mannanöfn á litla Fróni.
Hins vegar vill húsfreyja vara nefnd mannanafna hérlendis við því,
að vaða síðan beint úr Grimmsævintýrunum inn í frónversku þjóðsögurnar.
GILITRUTT, MÓRI, GARÚN, ÞORGEIRSBOLI og SKOTTA
svona ekki beint nöfn sem heilla
húsfreyju, sem nöfn á blessuð börnin okkar Frónbúanna.
En kæra frónverska þjóð, til hamingju með nafnið ÞYRNIRÓS.
Megi það skreyta skírnavottorð margra um alla ókomna tíð.
Góðar sumarstundir.
Nafnið Þyrnirós samþykkt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
5.7.2013 | 21:51
Skemmtilega STÓRKOSTLEG skilaboð.
Merktur áberandi rauðu "upphrópunarmerki".
Húsfreyja fékk nettan stresshroll.
Hann var frá ...segjum félagsþjónustunni "Skafgarði", svo alls velsæmis sé gætt.
Þar grannvaxinn maður með hornspangargleraugu og oddhvasst nef að senda mjög
svo áríðandi tilkynningu.
Hann var að bresta á í sumarfrí ekki seinna en kl.17:00 þann sama dag,
og nú reið á að hann fengi öll uppgjörsblöðin.
Húsfreyju rámaði í einhver eyðublöð sem hún hafði fyllt út snemma síðastliðið vor,
þá hún leysti deildarstjóra tímabundið af.
Síss!
Það hafði verið hrikaleg tímafrekt "óhjúkrunarlegt" föndurdútl...
breyta dagsetningum og leiðrétta krónutölu miðað við fjölda stunda per mánuð,
sem öldungar höfðu fengið í þjónustu.
Jaso.
Deildarstjóri hafði ekkert sett húsfreyju neitt fyrir hvað þetta mál varðaði,
þá hún hvarf á brott í sumarfrí að þessu sinni.
Húsfreyja bjallaði í deildarstjóra.
"Ég redda þessu á mánudaginn þegar ég kem úr fríi, hlýtur að duga" var svar stjóra.
"Sendu honum ímeil, og spurðu hvort það sé ekki í lagi"......
Stutt þögn.
Síðan:
...."Heyrðu, er þetta hann Jakob Sólmar sem sendi þér póstinn"?
Húsfreyja játti því.
"Hann verður nú kannski ekki par hress, að bíða fram á mánudag...
en þú sérð það á póstinum frá honum. Stafastærðin verður sífellt stærri
og upphrópunarmerkin fleiri..... en reyndu samt".
Húsfreyja kvaddi deildarstjóra, og snaraði sér í að senda "Skafgarðsherranum"
ímeil.
Svarið kom þremur sekúndum seinna. Stafastærðin komin úr 10 í 14,
upphafsstafir og upphrópunarmerki.
ENGINN gat tekið við þessu uppgjöri næsta
mánudag, því hver einasti "uppgjörskjaftur" var þá
farinn í sumarfrí.
Póstarnir urðu 7 í allt frá herranum....skilaboðin
skýr, skoriðnorð og umfram allt STÓR!
UPPGJÖRSPAPPÍRANA, gjörðu svo vel,
í póst til hans STRAX!
Húsfreyja sá sitt óvænna, gróf og gramsaði í minni sínu og rámaði loks
nóg í málið til að byrja að yfirfara tíma, tölur og dagsetningar
og senda hinum háæruverðuga Skafgarðsherra, af auðmýkt, andakt, lítillæti
og þrælslegri undirgefni....húsfreyja hreinlega getur ekki minnkað stafastærðina meira.
Sat klukkutíma fram yfir vanalegan vinnutíma, húsfreyja og náði að komast
eina yfirferð yfir allt krónubókhaldið og senda.
Sjálfsagt gert einhverjar hrikalega meinlegar villur, enda húsfreyja
orðin löðursveitt af "upphrópunarkvíða", "stóraletursangist" og
mögnuðum "mánudagstímaskorti".
Hafði náð að fara tvisvar yfir um vorið þá hún bókhaldaðist
fyrsta sinni, en því náði hún ekki þetta sinn.
Verður húsfreyja að biðja auðmjúklega forláts, hafi henni orðið á
hroðaleg mistök, og hún "vanrukkað" um lágmark 8 milljarða,
eða verra, smurt heilum þúsundkalli ofan á bókhaldið
hjá einhverjum öldungnum.
Gerði sitt besta, húsfreyja, og snör handtök hafði hún, ekki spurning.
Átti síðan húsfreyja von á mergjuðu þakklætisbréfi í nú vikulokin
frá Skafgarðsherranum, með SKRAUTRITUÐUM HÁSTÖFUM,
FJÓRTÁN UPPHRÓPUNARMERKJUM OG AÐ MINNSTA
KOSTI EINU MYLJANDI FLOTTU "HALLELÚJA"!!!!
En Skafgarðsherrann hinn nefmjói klikkaði alveg.
Sendi ekki svo mikið sem eitt SVEI, ÞÉR!!
O, jæja.
Húsfreyja lifir vanþakklætið af.... "Ég á líf, ég á líf...".
Gaman að þessu.
Húsfreyja í miðri mikilli vinnulotu, og fer um víðan völl í störfum sínum.
Gefur sér kannski tíma til að sinna "sínu bókhaldi" þá hún kemst
í frí.
Góðar stundir, og gangi ykkur vel með heimilisbókhaldið.
Spaugilegt | Breytt s.d. kl. 21:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)