3.11.2009 | 17:43
Það er kannski öruggara...
...að húsfreyja bjalli í systur
í Þorlákshöfn og athugi hvort
hún og mútta séu ekki enn
þar búandi....eða hvort þær
hafi flutt með allt heila klabbið,
bíla, börn og "hús" til Þórshafnar...
... eða Húsavíkur....eða þá Önundarfjarðar
í skjóli nætur.
En þá flýgur húsfreyju í hug að þetta sé
aldeilis "brilliant" hugmynd.
Að flytja ALLT sitt í heilu lagi á milli byggðalaga....
reglulega...eða eins oft og þarf til að
"ríkið" með sínar "Ísbjargarhamfarir" finni aldrei
aftur viðkomandi.
Séu þar með týndir með öllu.
Finnist aldrei meir.
Sífellt að "flytja".
Heimilisfangslausir!
Nýfluttir!
Að flytja...og óvíst um næturstað!
Týndir bönkum.
Týndir skattinum.
Týndir ríksbákninu öllu.
Hvergi hægt að festa á þeim hendur.
Verður að "afskrifa" allt þeirra skuldadótarí,
því enginn finnst aðilinn til að borga.
Jamm.
Þið segið nokkuð.......
Bjalla í þá Þorlákshafnarmenn næst,
og athuga hvort þeir taki það að sér að flytja
"fjölbýlishús" næstu nótt eitthvert austur á land.
Góðar stundir.
Hús flutt milli landshluta | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.