27.8.2009 | 17:10
Betra seint en aldrei!
Blessaður öðlingurinn hann
Hannes Hólmsteinn sem vaðið
hefur þoku og reyk frjálshyggju,
einkavæðingar og útrásar er bara
mættur með sparipottinn sinn og
hrísgrjónagrautssleifina niður
á Austurvöll.
Enn sætt!
Þokunni hjá honum loksins að létta,
og nú sér hann kristaltært, að þetta
var "doldið vanhugsað" og geyst farið
í allri frjálshyggjunni síðustu 16 - 20 árin.
En bara pínu bara smá vanhugsað....og er mest
helvísku pakkinu sem tók við að leysa
úr öllum hroða Haarderans og kó, að kenna
að svona illa fór.
ALLS EKKI Dabba að kenna!
Því Dabbinn var búinn að tróna LENGI sem mýfluga á mykjuhaug
við stjórn landsins fyrst,
og síðan í Seðlabanka,
og vara við mann og annan...sem
honum hugnuðust vel að vara við,
hve illa gæti farið í frjálshyggjusukkinu.
Var gjörsamlega misskilinn "Nostradamus" litla Fróns, Dabbinn
sem enginn hlustaði á...nema auðvitað Hannes blessaður Hólmsteinn.
Meira að segja flokksbræður "bláu handarinnar" skelltu
skollaeyrum við varnarorðunum.
Og því fór sem fór.
Ekki við Dabba að sakast.
En helvítið hann Steingrímur og argintætan hún Jóhanna!
Þar eru sko einstaklingar með brennimarkið "SEK" þvert
yfir ennið.
Fíflin bara búin að "rústa" fjárhag litla Fróns á
örfáum mánuðum.
Setja heimilin á hausinn!
Gera fyrirtækin gjaldþrota!
Bankastjórar, útrásarvíkingar....hvað?
Núverandi ríkisstjórn er búin að klúðra öllu
heila ekkisens klabbinu, það segir sjálft....ekki satt, Hannes?
Yndislegt að Hannes Hólmsteinn skuli hafa
séð "ljósið"....betra seint en aldrei, Hannes!
Berðu þína potta á Austurvelli!
Niður með Icesave!
Búsáhaldabyltingin lifi!
Bláa höndin blívur!
Amen.
Aðsúgur að Hannesi Hólmsteini | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Var blessaður maðurinn ekki bara að auglýsa bókina sína og fá smá "athyglissprautu"?
Agla, 27.8.2009 kl. 18:14
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.