29.7.2009 | 18:20
Sjúkkit!
Hélt eitt skelfingaraugnablik, húsfreyja,
að "Tjallarnir" hefðu hætt sér
inn í hið herlega Alþingishús
allra landsmanna hér uppi á litla Fróni.
Hefðu verið snarlega "spottaðir" af
Jóhönnu "for", Steingrími "ofurbjartsýna"
og nokkrum kraftalegum sjálfsæðismönnum
í stjórnarandstöðuham.
Og þar með lamdir í spað Tjallarnir,
síðan fleygt inn í gamla fataskápinn
hans Hannesar Hafsteins hálffullum af
"Ísbjargarpappírum", tvílæst á eftir þeim
og lyklinum kastað ofan í "andarsalernið" eina og sanna
Tjörnina, þar sem hún er dýpst.
Til allra lukku voru þetta ekki landar húsfreyju
sem trompuðust vegna "prúðmannlegrar" framkomu
Tjallanna, heldur Grikkir.
Vill húsfreyja að samlandar sínir séu kurteisir og beiti ekki
ofbeldi, þó þeim sárni eitthvað við náungann eða mislíki.
Tjallinn á svo nógu erfitt fyrir heima sínu breska heimsveldi,
í helv...mígandi rigningu sumar eftir sumar...og með
arfasnillingin Mister Brown við stjórnvölinn.
En máske "sá Brúni" taki fyrir umferðarmenningu og
sér í lagi reglur um vélhjól næst í sínu heimalandi.
Vonar bara að enginn hafi slasast illilega í hrömmum
skapheitra Grikkja, húsfreyja, og Tjallarnir komist
heilir heim í rigninguna.
Breskir ferðamenn lamdir og læstir inni í skáp | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.