11.6.2009 | 20:43
Rifin nögl og glóðarauga...
... á leiðinni til húsfreyju aðra helgi.
Systir í Eyjum sendi eldri peyjana sína
tvo upp á land til múttu húsfreyju og systur
í Þorlákshöfn í vikunni.
Bættust frændurnir Aron (9 ára) og Árni (8 ára)
við fríðan hóp systur í Þorlákshöfn, og afraksturinn
lét ekki bíða eftir sér: Ein afrifin nögl á fingri og
fjólublátt glóðarauga ala Rocky!
Peyjarnir hennar systur í Þorlákshöfn eitthvað
að fá að kenna á því...en peyjar systur í Eyjum eru
skyndilega mjög "heyrnadaufir"...þegar spurt er út
í atburðarrrás!
Sjálfsagt öll "sjávarseltan" í Eyjunum....breytir venjulegum
eyrnarmerg í "steinsteypu"....þurfi eitthvað að
útskýra "stórslys eða meiðsl".
Svo aðra helgi ætlar systir í Þorlákshöfn að smella
sér með hinn "glóðaraugaprýdda" Vigra á fótboltamót
á Skaganum, með viðkomu hjá húsfreyju.
Svalan, Aron, Siggi Freyr og Árni Bæron munu
verða eftir og gista eina 2 sólarhringa.
Átta ára djásnið er alsælt.
"Ooooo...mamma ég hlakka svo til.....hlakkar
þig ekki líka til"??
O jú, húsfreyju hlakkar til....alltaf gaman að hafa
líf og fjör í kringum sig...og það fylgir svo sannarlega
litla liði þessu.
Þrælar liðinu í fjölskyldugarða....fjöruferðir....bíóferðir...
og skipuleggur matar- og háttatíma grimmt.
Æsir sig óstjórnlega fjölgi afrifnum nöglum á fingrum
og fjólubláum glóðaraugum....og tryggir það að
"steinsteypa" sé fjarlægð úr eyrum þá hún
mælir af vörum sér vísindi og visku!
Tekur fram "þolinmæðisgenið" sitt, fínpússar það
og hressir við!
Athugar hvort "jaxlarnir" séu ekki vel bithæfir í
óvæntum uppákomum, og athugar hvort hár
sé ekki í fínu lagi fyrir smá "hárreytingar" af
örvæntingu af og til.
Og hún stendur klár í slaginn.
Verður stuð, líf og fjör!
Vesen?
Ekki spurning.
Nóbelsverðlaunahafar í veseni,
húsfreyja og hennar stórfjölskylda.
En það verður bara að hafa gaman af því líka.
Góðar sumarstundir.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.