9.5.2009 | 21:33
2009 versus 1989.
Á ţví herrans ári 2009, ber ýmislegt
fyrir augu á fréttasíđum málgagnanna.
Ef marka má "Moggann" hinn eina og sanna,
í dag 9. maí 2009, er "upploginn ísbjörn af "skrítnu norđlensku ćtterni",
svínaflensa í Norsurum, kreppuađgerđir
hálfskapađrar ríkisstjórnar, söngvaseiđur Pútins
og angrandi salernisferđir, ađalmáliđ!
Og dagana ţar á undan kom einnig "Ísbjargar-máliđ" (ţ.e Icesave)
hans "Mister Brúns" í Bretaveldi ásamt Eurovision söngvakeppninni
sterk inn.
Flaug ţá húsfreyju í hug, hvađ viđ hefđum veriđ ađ brasa
hér upp á litla Fróni fyrir einum 20 árum síđan.
Hvađ var eiginlega í gangi hér úti á ballarahafi,
á okkar litlu eyju áriđ 1989?
Jú, Gúmmivinnustofan brann til kalda kola,
međ gassprengingum og djöfulgangi.
Hemmi Gunn var skotin í Elsu Lund.
"Strákarnir okkar" í handboltanum unnu gulliđ
í "B-heimsmeistarakeppni" í París.
"Bjórdagurinn" hinn eini og sanni rann upp
bjartur og fagur, öldrykkjumönnum öllum til sannrar
gleđi og ánćgju.....og bjórinn vart runniđ af mönnum síđan
hér á litla Fróni....en ţynnkuna daginn eftir rćđum viđ ekki frekar
en "hvenćr" fyrrum auđmenn okkar Frónbúa, munu skila
okkur "földum" eđa "uppgufuđum" milljörđum íslenskra króna.
Sovéskir sjómenn voru brjálađir í "gömlu Lödurnar" okkar,
og sá mikli heilagleiki Ólafur Skúla varđ biskup....jamm, eigum
viđ ađ rćđa ţetta eitthvađ?
Ţrjátíu og fimm höfđu látist af völdum berkla, frá ţví '75
og fimm úr "eyđni"....gamalt orđ yfir alnćmi.
Valgeir og Daníel fengu heil "0" stig í Euro
fyrir lagiđ "Atkvćđin sem engin sá".....nei, smá
innsláttarvillur hér..."Ţađ sem engin syng...nei, sér".
Páfi allra heilagra katolikka, Jóhannes Páll páfi annar,
kom og messađi fyrir húsfreyju, ţar sem hún stóđ
á svölunum á gjörgćsludeildinni á Landakoti,
og fór svo og blessađi hiđ fornheiđna Alţingi á Ţingvöllum.
Jói Kalli Spánarkóngur vísiterađi og fór međ Viggu forseta
í Kringluna og kaffihús Myllunnar.....ooooo...Myllan...namm
heit rúnstykki međ íslensku smjöri og osti....snökt...hvar
er Myllan nú?
Flugfreyjur stóđu í harđvítugum kjaradeilum.
Ásteitingarefniđ voru fatapeningamálin...ţćr
voru bara međ helvíska frekju og ósanngirni
freyjurnar, og heimtuđu heilar "tvennar sokkabuxur"
FRÍTT!
Ţađ gátu samningamenn aldeilis ekki sćtt sig viđ,
svo útkoman varđ "einar fríar nćlonsokkabuxur".
Fríir sokkar handa flugţjónum fengust ekki einu sinni rćddir!
Allt fór til helvítis í Húnaveri um verslunarmannahelgina,
á međan allt var ţokkalega rólegt á ţjóđhátíđ í Eyjum.
Sprengjumađur fór á kreik í miđbć höfuđborgarinnar viđ
sundin bláu, en síđustu tveir sveitasímarnir hurfu
á óminnisbraut í Arnarfirđi.
Dabbi kosinn vara í "bláa flokknum", en Jón Baldvin
varđ ćstur í kampavín....skellti sér á einar 106 flöskur
til ađ halda upp á afmćli vinar síns.
Hrikaleg glćpamál voru leyst:
Lögreglan í Reykjavík var kvödd ađ húsi einu
í borginni um sexleytiđ í gćrmorgun til ađ
fjarlćgja óbođinn gest sem áreitti húsráđanda.
Var hér á ferđinni fiskifluga nokkur, sem truflađ
hafđi svefn hans. Sá lögreglan engin önnur ráđ en
ađ bana fluguhelvítinu.
Víkingasveit lögreglunnar var síđdegis í gćr kölluđ
ađ húsi viđ Karfavog. Ţar hafđi mađur lokađ sig inni,
og sagđist vopnađur skammbyssu. Eftir hálfrar
klukkustundar umsátur gafst mađurinn upp og
kom út úr húsinu. Kom ţá í ljós ađ "byssan"
svokallađa var "kertastjaki".
Francois Mitterand kom og vísiterađi, og salmonella komst í
10.000 sviđahausa (engin tenging milli ţessara tveggja frétta).
Og hafnar voru umrćđur um ađ stćkka álveriđ í Straumsvík,
og síđast en ekki síst, hinn arfavinsćli virđisaukaskattur
var tekinn upp!
Jamm, svona er nú áriđ 1989 í huga húsfreyju, og svei
ef ţađ kemur bara ekki ţokkalega út í samanburđi
viđ áriđ 2009....svona ţađ sem liđiđ er af ţví.
Einhvern veginn svolítil "nostalgia" í gangi viđ
upprifjun á atburđum ţessa löngu horfna árs.
Vorum viđ Frónbúar betra fólk áriđ 1989?
Höfđum viđ betri húmor?
Vorum viđ oftar edrú?
Voru nćlonsokkabuxur og fiskifluguvargar stórmál hér á landi?
Jamm, ekki laust viđ ađ húsfreyju renni ýmislegt í grun.....
Góđar stundir á árinu 2009, megi allar ykkar fiskiflugur
vera hljóđlátar á nćturnar, og sokkabuxurnar ykkar
lykkjufallslausar!
Ísbjörninn blekking | |
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt |
Bćta viđ athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.