25.3.2009 | 20:16
Gítarhjólið heillaði...
...húsfreyju rosalega.
Getur alveg hugsað sér að
skella sér einn herlegan og
sólríkan sumardag niður í miðbæ,
á "risavöxnu gítarhjóli"...
"YOU AI'NT NOTHING BUT A HOUND DOG"..
Presley að sjálfsögðu í botni í
græjunum sem hún kæmi fyrir í gítarnum.
Demba sér svo í eina reisu með tjald
á bögglaberanum á gítarhjólinu...
"...tjaldi upp að slá,
fjöllin eru grá,
nú liggur ekki lengur lífið á...
..ég hef allan daginn glímt við þjóðveginn"..
Að sjálfsögðu Sléttuúlfarnir með undirspilið
í þeirri ferðinni.
Þetta yrði svona "nostalgíu-músíkalskt ferðahjól"
fyrir húsfreyju.
Faðir húsfreyju var mjög söngelskur maður.
Lék á gítar,samdi lög og texta, tækifærisvísur og
var lengi vel fyrsti tenór í karlakórum Eyjamanna.
Svo "gítarhjól" væri vel við hæfi handa húsfreyju.
Góðar hjólreiðastundir í sumar.
Hornótt hjól | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
gítarhjólið er flottasta hjólið ekki spurning -
en by the way - hugmyndarflugið hjá einum manni
Sigrún Óskars, 28.3.2009 kl. 10:26
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.