3.12.2008 | 17:42
Hefur einhver séð....
..."skýjahöll" með nafni húsfreyju
á "rúllandi" ráfi og reiðuleysi
um litla Frón?
Samkvæmt Sörensen hinum danska,
á húsfreyja að hafa byggt sér
eina slíka fyrir annarra manna fé,
og vill hún gjarnan fá að berja
herlegheitin augun áður en
höllin sú verður tekin upp í gjaldþrot!
Vonar húsfreyja að finna höll þessa í tæka tíð,
svo að henni takist að selja hana í hvínandi hvelli,
til að geta greitt afborganir af sinni
venjulegu þriggja herbergja íbúð
í Grafarvoginum næsta árið.
En líklega hefur húsfreyja aulast til
að hafa höll sína "rúllandi á hjólum", svo
engin kæmist að því hvað hún væri að
bauka í "fjármálaóráðsíuköstum "sínum,
og sífellt flutt hana til og frá á milli
landshluta.
En nú er sem sagt "æðið" runnið af húsfreyju,
og hefur engar minningar um "skýjahallir"
hér uppi á litla Fróni,
eða "Matadorpeningaspil" í breskum bönkum.
Eina sem húsfreyja "man" að hafa haft upp úr "góðærinu",
er eitt stykki herlegur sólpallur, og eitt stykki "nýleg" þvottavél.
(Gamla þvottavélin framdi að sjálfsögðu "harakiri", því bóndi
húsfreyju var að þvo, þá hún gaf upp öndina. Annars hefði
húsfreyja auðvitað "myrt" vélina með vitleysisgangi.)
Lýsir hún hér með eftir "skýjahöll" sinni.
Nokkuð öruggt að húsfreyja hefur fjármagnað
höll sína með dönskum eða breskum Matadorpeningum,
og brostið á í tryllingslegan hlátur af og til og bölvað upp á
bæði dönsku og ensku, með hamarinn á lofti, þá hún
smíðaði í gríð og erg.
Hafi einhver séð til húsfreyju við hallarsmíðarnar, og
viti hvar höll hennar er niðurkomin, er hann
vinsamlegast beðinn um að láta hana vita....
hið snarasta.
Gæti hún altént tekið höllina niður í smá
einingum, og sent Sörensen hinum danska,
svona sem smá skaðabætur og með
bestu kveðjum frá:
"Litla Fróni".
"Ræpu úr iðrum jarðar no 1" (reyndar hugmynd frá Noregi),
"101 Helvíti".
Nei, grínlaust skilur húsfreyja vel svekkelsi
Sörensen.
Enda voru útrásarvíkingar ekki beint
bljúgir og auðmjúkir í Danaveldi og Bretlandi.
En það voru þeir heldu ekki hér á landi.
Og ekki telur húsfreyja að "meirihluti
þjóðarinnar" hafi grætt á "góðærissukkinu",
eða sýnt öðrum þjóðum hroka og græðgi.
Sitjum í sama djúpa skítnum og danir þar.
Ef ekki dýpri.
En alltaf gott að fá "uppbyggjandi" gagnrýni
frá frændum okkar dönum.
Kann húsfreyja Sörensen kærar þakkir fyrir, og
óskar honum alls hins besta í krepputíð.
Góðar stundir.
Frekja og hroki aðgangsorð íslenska helvítisins | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Solla Guðjóns, 4.12.2008 kl. 10:22
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.