9.9.2008 | 14:38
Séð fyrir endann á styrjöldinni...
...um sjónvarpið fyrir botni Grafarvogs.
Eftir hartnær þriggja vikna stöðuga
bardaga þá fréttatími nálgast á
RÚV, með skæruhernaði og og stöku
loftárás um helgar þá íþróttir eru
sýndar á sama tíma og barnaefni, er
friður loks í augsýn.
Fór svo að vopnaðar sveitir B.G.S höfðu
betur, með grát, hurðaskelli og mömmuklaganir
sem leynivopn.
Varð vösk sveit "þreyttra húsfeðra" að lýsa yfir
algerum ósigri, og fjárfesta í 14 tommu sjónvarpstæki
fyrir sigursæla sveit B.G.S, og það með "innbyggðum"
DVD-spilara.
Græjan sett í gagnið á "nótæm", og svei mér ef ekki
heyrist aftur fagur fuglasöngur síðdegis í húsum
húsfreyju, hér fyrir botni Grafarvogs.
Regndropar heyrast falla á síðkvöldum í góðum
regnskúr, og húsfreyja er aftur farin að heyra
"hleyptu-mér-inn-mjálmið" hennar kisu á kvöldin.
Bergmál hurðaskella er fjarlæg minning, og þrumuraust
bónda með góðri eldingu á eftir, er hætt að berast grönnunum.
Sér nú húsfreyja fram á betri tíð, með sölnuðum skrjáfandi
laufblöðum í haga, sæta langa haustdaga.
Stöð tvö "friðarspillirinn" alræmdi, er komin til að
vera, segja fyrrum ófriðarseggir, svo annað
sjónvarp var það eina sem hægt var að sættast á
í stöðunni.
Og húsfreyja getur aftur hætt sér fram á "vígvöllinn",
þ.e. sjónvarpsholið, og duddað sér svolítið í
kompjúternum.
Þarf ekki lengur að kúra öll kvöld inni í rúmi og
syngja á háa séinu...
Blátt er blárra en blátt.
Hátt er hærra en hátt.
Hæst ber jökulinn
og fjær er haf og strönd.
Hátt ber jökulinn
með ókunn víðfeðm lönd.
....með Agli Ólafss. eða "Kossa án vara" með Bubba.
Allt fallið í ljúfa löð, komin á ró og spekt með
friðsemd og einhug.
Húsfreyja reyndar dottin í astmaskít, enda mætt aftur
til starfa.
Alveg magnað hve "eitrað" loftið getur orðið
á heilbrigðisstofnunum.
Allt vaðandi í kvefvírusum, magapestarvírusum,
hitapestavírusum og allrahanda fúlum
haustvírusum.
Vill sem minnst af slíku "hústökuliði" inn í sitt
"lífræna" kerfi, húsfreyja, því þá rifnar upp
helv...astmaskíturinn, sem aldrei fyrr.
Sér húsfreyja einnig fram á annasamt og
gestkvæmt haust og vetur.
Tengdó í augnsprautum tengdamúttu einu
sinni í mánuði, og systir úr Eyjum með sinn elsta
prins í læknaeftirliti einu sinni í viku, fram að
áramótum.
Svo hún hreinlega hefur ekki tíma í bévítans
ekkisens astmaskít, slen og veikindi.
Og svo er hún á leið til Prag í nokkra daga,
nú í Septemberlok, svo það er eins gott að
heilsutetrið verði þá upp á sitt besta....enda
húsfreyja á leið til síns heimilislæknis í fyrsta
sinn í 4 ár í vikulok.
Hana!
Það hlaut að koma að því!
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.