24.8.2008 | 10:49
Þvílíkar hetjur!
Að standa á verðlaunapalli á Ólympíuleikum,
og taka við silfri fyrir hönd litla Fróns, hlýtur að
fylla hvern mann stolti.
Og þjóðin er að springa úr monti.
Sjálf er húsfreyja eitthvað meyr og grátklökk.....
.....sniff, sniff. Einhver silfruð glýja í augum
hennar, og líkt og kvikasilfur bærist í brjósi...snýýýt!
Og hrikaleg löngun til að faðma allan heiminn hefur
gripið hana.....snýýýt!
Hmmmm...kannski að húsfreyja sé að fá flensu......!
Íslendingar taka við silfrinu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Já maður er búin að sjá nokkur tár gleðinnar í morgun......Frábært hjá drengjunum
Solla Guðjóns, 24.8.2008 kl. 11:49
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.