14.8.2008 | 20:51
Sársaukafull borgarstjórn.
Húsfreyju sárverkjar í munnvikin, eftir hverja
grenjandi fyndna uppákomuna eftir aðra, í borgarstjórn
borgarinnar við sundin bláu.
Jakkaföt út um alla borg í tætlum eftir "rýtingsstungur" í bakið.
Endalaus fjöldi af borgarstjórum, sem annað hvort
eru nýhættir, nýbyrjaðir, stungnir í bakið, skrítnir
til augnanna, farnir á tauginni, týnandi minnismiðum,
búnir að skíta á sig í REI-málum,
og sem þurfa að fá að "vinna í friði"!
Og allt stóðið á myljandi fínum launum, eða á enn
betri biðlaunum.
"Bakstungufundir" haldnir reglulega, og
fundnir nýir "endastaðir"....(ætli það séu "rassgöt"?).
En á meðan er framkvæmdum borgarinnar slegið á
frest út það eilíflega, nema kannski þær að reisa
einn myndarlegan "tónlistarendastað" við höfnina.
Allt annað er á "jaðarmörkum"!
Flugvöllurinn annað hvort úti eða inni, úti á rúmsjó
eða upp til fjalla....nú eða týndur og tröllum gefinn.
Neyðarhúsnæði fyrir ógæfusamt útigangsfólk tilbúið,
en ónothæft vegna lóðaleysis, og lóðir gamalla
brunarústa á besta stað í miðbænum látnar standa
auðar....svona allavega næsta árið.
Helst er húsfreyja á því, að allir í borgarstjórn hafi
lent í slæmum "andagangi" þarna niður við tjörn,
(samanber "draugagangi")
og séu orðnir "andsetnir"!
Hafi fengið bévítans fiðurféð á heilann, og geti
einungis hugsað í stuttum "brabra"-setningum, og
tengt þær vitrænt við tónlistarhús og götuframkvæmdir.
Allt annað tætist eins og reittar fjaðrir af aliöndum
út í veður og vind.
Og þá er bara eitt til ráða, þegar svo er komið:
FÁ NÝJAN BORGARSTJÓRA.
Samstarfið á endastað" | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
góð
Hólmdís Hjartardóttir, 14.8.2008 kl. 20:54
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.