18.7.2008 | 19:36
Með kústinn að vopni.
Amma gamla seig, og ekkert á því að láta ræna vinnustað sinn.
Lét "kústinn tala".
Húsfreyja átti svona ömmu sjálf.
Ösku- þreifandi ill út í ríkið, þjóðfélagið, lötu unglingana, börnin,
barnabörnin, systur sínar allar og ríku auðnuleysingjana.
Baneitruð út í allt og alla.
Hafði allt á hornum sér flesta daga, og átti húsfreyja sök á
flestum þeim hörmungum er yfir móður Jörð dundu, um
þriggja ára tímabil.
Samkvæmt ömmu.
Allt frá óðaverðbólgu, eldgosum hist og her um jarðarkringluna,
atvinnuleysi, bílslysum, flugslysum, grenjandi rigningu
er amma ætlaði í búðir, flóðum í Afríku eða þurrki,
skorti á svörtum tvinna í vefnaðarvöruverslunum til
gallabuxnatísku unga fólksins...ALLT lenti á
grannvöxnum herðum húsfreyju.
HENNAR SÖK OG ÁBYRGÐ ALLT SAMAN!!
Var húsfreyja þá unglingur og sótti nám, fyrst í landsprófi
í Hagaskóla, en síðan í EMM ERR.
Gisti hún fyrstu tvö skólaár sín í höfuðborginni hjá
ömmu sinni, og hefur sjaldan sem aldrei lent í eins kröppum
dansi og þá.
Húsfreyja fékk að heyra "gúmorren á Latínu" frá þeirri gömlu
lágmark 5 sinnum á dag. LÁGMARK!
Var húsfreyja þó vön töluverðri ábyrgð fyrir, og hafði þurft að
gæta systra sinna 5 árum yngri, oft og iðulega sem unglingur.
En heldur fannst henni róðurinn "ábyrgt" séð, farinn að þyngjast
þá hún bjó á heimili ömmu.
Lá hún þó á bæn á kvöldi hverju og bað um sól og blíðu þá
amma skryppi í búð, að almættið reyndi að halda eldgosum,
flóðum og þurrki í lágmarki og að bévítans, ekkisens verðbólgan
myndi ná sögulegu hámarki sem fyrst og deyja síðan þegjandi
og hljóðalaust........og síðast en alls ekki síst, ÆTÍÐ sjá um að
NÓG væri til af SVÖRTUM tvinna í vefnaðarvöruverslunum.
Og ef húsfreyja var bara ekki bænheyrð með allt saman.
Tók smá tíma, en gekk.
En sér nú húsfreyja fram á, að hún þurfi að fara að dusta
rykið af "ömmubænunum" sínum aftur og biðja sem aldrei fyrr.
því allt er komið í sömu andsk.... hönkina og þegar amma
var og hét:
Eldgos, flóð, þurrkur, óðaverðbólga, gallabuxur, atvinnuleysi,
bílslys, flugslys, mígandi rigning í búðarferðum og ekkisens skortur
á svörtum tvinna þá hann bráðvantar.
Nú ef húsfreyja hefur þetta ALLT saman í hendi sér og
á sinni könnu, líkt og amma hélt fram, er lítið mál fyrir hana
að kippa þessu í liðinn með fallegu bænunum sínum.
En nú er amma blessunin búin að gista "sumarlandið" í
hartnær 15 ár, og telur húsfreyja að þar hafi sú gamla
ætíð nóg af sólskini og svörtum tvinna, og að ALDREI nokkurn
tímann hafi hún lent í rigningu í búðarferð.
Og þó að amma væri baneitruð og oft meinleg í orðum hér á jörð,
var hún það aldrei í gjörðum.
Þar ríkti gjafmildin og gæskan ein, þá amma tók til sinna ráða.
Því amma átti hjarta úr gulli, þó hún reyndi að fela það til hins
ítrasta.
Og þó svo að krakkabjálfinn (húsfreyja) væri að sligast nokkur ár,
með allar syndir heimsins á herðum sér, svo ekki sé minnst á
allar náttúruhamfarirnar, þá hafði hún bara gott af því.
SMÁ mótlæti HERÐIR persónuleikann og gefur dug.
Það hefði amma mín sagt...þetta hörkutól.......
þessi elska.
Ömmur eru bestar.
Ræningjunum sópað út | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.