Ólafur Jóhann..

107084033_f8eadcd1c1...er skynsamur og hógvær maður að mati húsfreyju,

  fyrir utan að hafa gott vit á svona málum, svo kannski

  kemst nú loks skikk á REI-málið.

  Fer alltaf fyrir brjóstið á húsfreyju þegar framámenn og

  pólitíkusar eru eins og smákrakkar að rífast í sandkassaFrown.

  Græðgi og heimska skín í gegn, og hver bendir á annan þá

  málin lenda í hnút.

  Skammarlegt fyrir íslenskt þjóðfélag.

  Húsfreyja annars verið í mergjuðum mínus heilsufarslega.

  Vírusar að dansa trylltan dans í hálsi og koki húsfreyju, og

  hún komin í harða samkeppni við íslenska hundakynið, með

  langvinnasta og háværasta "geltið"Pinch.

  Hóst, hóst, hóst, hóst, hóst.......osfr.

  Húsfreyja stefnir á öruggan sigur eins og erWhistling.

  Verið með peyjana hennar systur í Þorlákshöfn í heimsókn,

  líka yfir helgina.  Systir með Svöluna á fótboltamóti miklu.

  Skrapp húsfreyja á föstudeginum með Báruna, Sigga Frey og

  Guðmund Vigra í Fjölskyldu-og Húsdýragarðinn. 

  Þar mikið hoppað og skoppað, farið í báta, trambolín og

  mörgum sinnum í bíla, sem voru fríir.

  Húsfreyja gelti með sjálfri sérWhistling.

  Í gær bauð húsfreyja liðinu svo í bíó á "Kung Fu Panda".

  Þrímenningarnir máttu vart vatni halda af hrifningu yfir

  myndinni.

  "Mikill húmor í þessari".... Siggi Freyr 8 ára.

  "Geggt fyndin mynd og spennandi"....Bára Guðlaug 7 ára.

  "É hló a síasta og næst-síasta atriinu"....Guðmundur 5 ára.

  Húsfreyja hafði bísna gaman að myndinni, og hló víða.....

  en mest gelti hún nú með sjálfri sérDevil.

  Ætlar að halda sig mest við rúmið og hunangsteð í dag,

  húsfreyja....og gelta með sjálfri sér....hvað annaðHalo.

  Góðar stundir.

 

 

 

 


mbl.is Ólafur Jóhann: Tími gífuryrða liðinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband