25.6.2008 | 13:41
Leitin mikla.
Ef húsfreyja á að vera alveg "ærleg", þá þykir henni það "klárt" mál,
að Frónbúar séu komnir með "glýju" í augun af of mikilli sól
síðustu daga.
Dansa nú hvítar "ísbjarnarflygsur" fyrir augum þeirra, er útivist
stunda, og senda þeir ísbjarnafréttir sem óðir séu, til lögreglu norðan
heiða.
Er nú hið "hraðsektavæna" lögreglulið Blönduósinga kófsveitt á
harðahlaupum á eftir "bleikum klárum og hvítulluðum hrútum", upp
um fjöll og firnindi, með danskt ísbjarnabúr í eftirdragi.
Og ríkið tapar þar með stórfé sem annars kæmu í
ríkiskassann sem sektir fyrir of hraðan akstur.
Og verra er, að ekki mega hinir harðsnúnu verðir laganna
einu sinni "skjóta sér sauð í soðið", þó þeir verði fjandi
svangir á þessum bévítans hlaupum eftir íslenskum
húsdýrum í "ljósum lit"!
Næsta vísta að lögreglumenn norðan heiða verði orðnir "grannholda"
mjög eftir sumarið, svo ekki þurfi nema létta golu til að þeir fjúki
um koll, þá haustvindar taka að næða um norðurlandið.
Verður þá lítill töggur í þeim, þá slagsmálahundar á dansleikjum
fara að berjast og brýna hnífa sína á haustdögum.
Kannski að Baunarnir vilji þá senda okkur "úrvalssveit" þykkholda
bjórvamba, til aðstoðar, þá skóinn kreppir að lögreglusveit norðanlands?
Snöggir voru þeir að redda ísbjarnarbúrinu fyrir okkur.
Getum kannski geymt slagsmálahundana í því, þá fangageymslur
fyllast um helgar?
Myljandi ísbjarnarblús á voru litla landi.
Bjarndýrsútkall í Langadal | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Góð hugmynd fyrir danska búrið.
Sigrún Óskars, 27.6.2008 kl. 23:59
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.