25.2.2008 | 16:17
Barlómur og heilsufár.
Mergjuð hitapest, með sleni og astmaskít hefur herjað á húsfreyju síðustu daga, svo hún er vægast sagt í megnu óstuði. Og svona til að leggja til sitt framlag til heilsufársins, ældi kötturinn úti á sólpalli...TVISVAR! Húsfreyja ekki hrifin.
Í dag hefur húsfreyja hangið í öllum opnum gluggum, í von um að ná "andanum", milli þess sem hún gaufast og gutlast í húsverkunum. Sú stutta er inni á herbergi sínu, þaðan sem "This is my life" er að hljóma í 39unda sinn. Hún alsæl með úrslitin, enda kaus hún vinningslagið.
Húsbóndinn á leið til hins herlega veldis Bretadrottningar, að skoða og gera tilboð í pressur....NEI, ekki ávaxtapressur, heldur brotajárnspresssur, upp á fleiri, fleiri tonn.
Húsfreyja farin að leita sér andlegrar hjálpar í ljóðabókum sínum, og gott ef Steinn Steinarr hefur ekki náð tilfinningum og angist hennar með þessu hér:
Ég minnist þess,
að fyrir átján árum
stóð opinn lítill gluggi
á þriðju hæð.
Og fólkið tók sér hvíld
eitt andartak
og horfði dreymnum augum
út um gluggann.
Þá brá ég við
og réð mann til mín,
sem múraði upp í gluggann.
(UNIVERSITAS ISLANDIAE)
Steinn alltaf góður. Litla manneskjan þarf í kompjúterinnn. Hlaða upp fyrir næstu spilun af "This is my life".
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.