3.8.2007 | 10:40
Heima hjá múttu fram yfir fertugt!
Þetta er dásamlega skondin frétt. Sextíu og eins árs, á "vasapeningum" frá múttu. Og kella ekki á því að sonurinn geti bara komið og farið, eins og honum sýnist......enda í fæði og húsnæði hjá henni. Setti lögregluna í málið. Hörkugellur, þessar múttur þarna á Sikiley á Ítalíu. Verða að vera það. Því ég held að mæður á Ítalíu almennt, séu ekki í afspyrnugóðum málum, ef þær allflestar, sitja uppi með synina HEIMA, fram yfir fertugt. Hjálpi mér. Þetta er uppáskrift fyrir 2 flöskur af rauðvíni daglega og eitthvað róandi með.
Er svo á leið í sumarbústað í dag. Þarf að "gaufa og gutla" í heimilisverku fyrst.
Mömmustrákur á sjötugsaldri komst í klandur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Reyndar stendur í fréttinni að þeir búi hjá mæðrum sínum fram á fertugsaldurinn, ekki fram yfir fertugt.
steinar (IP-tala skráð) 3.8.2007 kl. 16:23
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.