2.8.2007 | 17:16
Björgun?
Hér í den ræddu pabbi og afi stundum um "rok og rigningarspá" yfir "Þjóðarann". "Kolvitlaust veður í Dalnum" sagði afi, að þessi spá ætti að kallast upp á "Vestmannaeyísku"
. Og pabbi vildi bæta um betur, og kalla Þjóðhátíðir sem þetta veðurfar heiðraði, "blautu og burtfoknu þjóðhátíðirnar"
. Jamm, voru ekki að skafa af því, karlarnir. Skipti þá ekki svo miklu, hvort einhver ylur í lofti fylgdi lægðarskrattanum. Því mannskapurinn í Dalnum var hvort eð er, allur hrakinn, blautur og "húsnæðislaus", þar sem menn sáu á eftir tjöldum sínum á haf út og óðu sjálfir vatn og drullu upp á kálfa. Björgunarsveitir sveittar í púlvinnu dag og nótt að bjarga fólki í hús, og kvenfélagið sett í það að smyrja brauð og elda súpu ofan í liðið. Svo ég veit ekki hvort "Chantal" sé ávísun á björgun fyrir helgina....nema kannski ávísun á myljandi vinnu fyrir "björgunarsveitir"!
Hitabeltisstormurinn Chantal gæti bjargað helginni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.