22.6.2007 | 19:03
Bófar og ræningjar!
Fannst þeir eitthvað "flóttalegir" og laumulegir í miðasölunni, þessi tvö skipti sem ég skellti mér upp í Eiffel á þessum árum
. Þar kom skýringin. Hélt að miðasöluliðið hefði kannski verið að reykja í laumi, en svo var það bara að stela
. Og engu smotteríi. Áttatíu og fimm milljónum króna. Dágóður vasapeningur það. Hlýtur að hafa verið með afbrigðum "vinsælt starf", miðasalan, hjá þeim Eiffelmönnum. Engin vandræði með að fá mannskap í jobbið
. Enda ekkert "láglaunastarf"....ef þú varst snjall á tölvur. Samt furðulegt hve lengi þetta gat gengið upp hjá bófunum 15, heil fjögur ár. Hvar var eftirlitið með bókhaldinu? Endurskoðunin og reikningsyfirlitin? En gott mál að upp um komst, og ég vona að ég horfi framan í blásaklaust og heiðarlegt miðasölulið, næst þegar ég bregð mér upp í Eiffel. Er annars nokkuð sem ég get eindregið mælt með. Að fara upp í Eiffelturn, meina ég. Flottara útsýni yfir Parísarborg fær maður varla. Og sé smá vindur, "sveiflast" hann svo skemmtilega til
. Gefur manni svona "fría" rússibanatilfinningu aukreitis. Jamm. Er pínulítill spennufíkill....bara svona obbolítill.




![]() |
Fyrrum starfsmenn við Eiffelturninn dæmdir fyrir fjárdrátt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.