Minnihlutahópapakk í vondum málum!

  Alveg vissi ég þetta!  Alveg sama hvað ég kýs!  Alltaf sit ég uppi með sömu ríkisstjórnina!  Ár eftir ár.. eftir ár!  Hjálpi mérErrm !  Og hjálpi vesalings öryrkjum, öldruðum, geðsjúkum, sjúkum og föngum þessa lands!  Þeir sitja á núll- punkti enn og aftur!  Með sömu ríkisbubbana við stjórnvölin, sem ALDREI eiga neina peninga fyrir endurbótum í málum þeirra, er minnst mega sín!  Eyddu því öllu í "mislægu gatnamótin" í Reykjavík, og jarðgöngin milli 700 manna byggðana úti á landi!  Nokkrar virkjanir og álver hist og her, reyndust líka heldur dýr, svo þessir hópar mega bara eiga sig!  Herða sultarólina enn og aftur, og éta það sem úti frýs!  Og í guðanna bænum, hætta þessu VÆLI!  Skilur þetta "minnihlutahópapakk" ekki, að það er "góðæri" á litla FRóni!  Vera glaðir og hamingjusamir!  Því er ekki löngu sannað, að þeir ríku, eru óhamingjusamasta lið í heimi!  Betra að eiga ekki neitt og hafa í engin hús að venda ef þú ert sjúkur á likama eða sál, ert gamall, öryrki eða hefur á einhvern hátt orðið undir í þjóðfélaginu!  Deyrð allavega "hamingjusamur" öreigi, ef þú mannst eftir að fíla góðærið á Fróni í tætlur!

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband