22.4.2007 | 16:42
Brilliant holufyllingar!
Þeir eru kröfuharðir kjósendur fyrir austan
! Orðnir langþreyttir á frónversku vegakerfi, og vilja nú fá "frambjóðendur í holurnar"! Sjálfsagt einnig hundfúlir og arfapirraðir út í "skæklaviðgerðir" á vegum, lélegu malbiki og ofaní áburði! Sjá það í hendi sér, austfirðingar, að hámarksnýting á góðum frambjóðanda, er sú að skella þeim "ofan í holurnar" á þjóðvegi eitt, eftir kosningar
! Sitja þá frambjóðendur ekki fastir í "kaffinefndum" ríkisins, heldur koma að gagni þar, sem þeirra er mest þörf! Í bévítans háskaholunum á þjóðvegi eitt! Og þar er alltaf hægt að ganga að frambjóðendunum vísum! Herma upp á þá kosningaloforð, og bókanir um umbætur í héraði! Lesa hraustlega yfir þeim, hafi þeir klikkað á loforðunum, en fjarlægja óþægilega smásteina af veginum kringum þá, standi þeir sig vel
! Framtíðin verður þar með, hin glæstasta á öllum vegum fyrir austan, og allir götur og vegir rennisléttir of fínir! Skrítið að engum hafi dottið þetta í hug fyrr!!



Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.