5.7.2013 | 21:51
Skemmtilega STÓRKOSTLEG skilaboð.
Merktur áberandi rauðu "upphrópunarmerki".
Húsfreyja fékk nettan stresshroll.
Hann var frá ...segjum félagsþjónustunni "Skafgarði", svo alls velsæmis sé gætt.
Þar grannvaxinn maður með hornspangargleraugu og oddhvasst nef að senda mjög
svo áríðandi tilkynningu.
Hann var að bresta á í sumarfrí ekki seinna en kl.17:00 þann sama dag,
og nú reið á að hann fengi öll uppgjörsblöðin.
Húsfreyju rámaði í einhver eyðublöð sem hún hafði fyllt út snemma síðastliðið vor,
þá hún leysti deildarstjóra tímabundið af.
Síss!
Það hafði verið hrikaleg tímafrekt "óhjúkrunarlegt" föndurdútl...
breyta dagsetningum og leiðrétta krónutölu miðað við fjölda stunda per mánuð,
sem öldungar höfðu fengið í þjónustu.
Jaso.
Deildarstjóri hafði ekkert sett húsfreyju neitt fyrir hvað þetta mál varðaði,
þá hún hvarf á brott í sumarfrí að þessu sinni.
Húsfreyja bjallaði í deildarstjóra.
"Ég redda þessu á mánudaginn þegar ég kem úr fríi, hlýtur að duga" var svar stjóra.
"Sendu honum ímeil, og spurðu hvort það sé ekki í lagi"......
Stutt þögn.
Síðan:
...."Heyrðu, er þetta hann Jakob Sólmar sem sendi þér póstinn"?
Húsfreyja játti því.
"Hann verður nú kannski ekki par hress, að bíða fram á mánudag...
en þú sérð það á póstinum frá honum. Stafastærðin verður sífellt stærri
og upphrópunarmerkin fleiri..... en reyndu samt".
Húsfreyja kvaddi deildarstjóra, og snaraði sér í að senda "Skafgarðsherranum"
ímeil.
Svarið kom þremur sekúndum seinna. Stafastærðin komin úr 10 í 14,
upphafsstafir og upphrópunarmerki.
ENGINN gat tekið við þessu uppgjöri næsta
mánudag, því hver einasti "uppgjörskjaftur" var þá
farinn í sumarfrí.
Póstarnir urðu 7 í allt frá herranum....skilaboðin
skýr, skoriðnorð og umfram allt STÓR!
UPPGJÖRSPAPPÍRANA, gjörðu svo vel,
í póst til hans STRAX!
Húsfreyja sá sitt óvænna, gróf og gramsaði í minni sínu og rámaði loks
nóg í málið til að byrja að yfirfara tíma, tölur og dagsetningar
og senda hinum háæruverðuga Skafgarðsherra, af auðmýkt, andakt, lítillæti
og þrælslegri undirgefni....húsfreyja hreinlega getur ekki minnkað stafastærðina meira.
Sat klukkutíma fram yfir vanalegan vinnutíma, húsfreyja og náði að komast
eina yfirferð yfir allt krónubókhaldið og senda.
Sjálfsagt gert einhverjar hrikalega meinlegar villur, enda húsfreyja
orðin löðursveitt af "upphrópunarkvíða", "stóraletursangist" og
mögnuðum "mánudagstímaskorti".
Hafði náð að fara tvisvar yfir um vorið þá hún bókhaldaðist
fyrsta sinni, en því náði hún ekki þetta sinn.
Verður húsfreyja að biðja auðmjúklega forláts, hafi henni orðið á
hroðaleg mistök, og hún "vanrukkað" um lágmark 8 milljarða,
eða verra, smurt heilum þúsundkalli ofan á bókhaldið
hjá einhverjum öldungnum.
Gerði sitt besta, húsfreyja, og snör handtök hafði hún, ekki spurning.
Átti síðan húsfreyja von á mergjuðu þakklætisbréfi í nú vikulokin
frá Skafgarðsherranum, með SKRAUTRITUÐUM HÁSTÖFUM,
FJÓRTÁN UPPHRÓPUNARMERKJUM OG AÐ MINNSTA
KOSTI EINU MYLJANDI FLOTTU "HALLELÚJA"!!!!
En Skafgarðsherrann hinn nefmjói klikkaði alveg.
Sendi ekki svo mikið sem eitt SVEI, ÞÉR!!
O, jæja.
Húsfreyja lifir vanþakklætið af.... "Ég á líf, ég á líf...".
Gaman að þessu.
Húsfreyja í miðri mikilli vinnulotu, og fer um víðan völl í störfum sínum.
Gefur sér kannski tíma til að sinna "sínu bókhaldi" þá hún kemst
í frí.
Góðar stundir, og gangi ykkur vel með heimilisbókhaldið.
Flokkur: Spaugilegt | Breytt s.d. kl. 21:57 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.