16.3.2013 | 22:15
Árgangsmót 1960
Það var myljandi fjör á síðastliðnu sumri
er árgangur 1960 var með gleði- og spjallhitting.
Húsfreyja var á útopnu alla þá helgi, og skemmti sér
hið besta.
Og það var sungið....... ...Nú ætla ég að syngja ykkur
lítið fallegt ljóð,
um ljúfan dreng sem fallinn er nú frá.
Um dreng sem átti sorgir
en ávallt samt hann stóð
sperrtur þó að sitthvað gengi á.
Og það var dansað, spjallað, dansað og spjallað.
Sungið meira
... Í brekkunni er sungið dátt
um hetjudáð og höf.
Gullkornin sem Geiri og Ási færðu oss að gjöf
um ástir, víf og villta strengi
strákasótt og góða drengi
og hetjudáð á ystu nöf
um bjarta von hjá blíðum meyjum
perlurnar hans Árna úr Eyjum
og ofurmenni eins og Binna í Gröf.
Eitthvert glundur var í glösum
hjá mörgum, en það var ekki
til vansa hjá flestum, jók aðeins
á sönggleðina.
Matur var snæddur á föstudagskveldi í gamla Alþýðuhúsinu...lostæti,
og gamlar myndir af liðinu skoðaðar...merkilegt sumir höfðu
örlítið breyst frá því 1973 , en flestir báru samt aldur vel.
Og enn var dansað...og dansað.
"Hún hefur dýrslegt aðdráttarafl.."
Næsta dag var ræs eldsnemma, og allir mættir glaðir og með timburmenni í lágmarki að rifja upp söguna í Sögusafninu eina og sannna við Stakkó.
Þaðan beint í gúmmituðru-á-fljúgandi-fart hálfan hring í kringum Heimaey. Svo fallega glitraði hafið í glampandi sólskyni og geislaði eyjan okkar af fegurð í ferðinni, að örlítið ölþreytta liðið steingleymdi að verða sjóveikt.
Að vísu telur húsfreyja að hún hafi fengið væga súrefniseitrun í ferðalagi þessu, því hún gat ekki hætt að syngja "Sæsavalsinn" þegar í land var komið...."Er kvöldskuggar læðast um tinda og fjöll, tökum við upp einn hnall.
Því þetta er skrykkjótt og undarleg öld, með eitt hundrað prósent spjall.
Gott er í gírkassahreppi,
að gleðjast við mænuval.
Svo syngjum við valsinn hans Sæsa í kvöld, og svifum í "Herjólfsdal"!
Um kvöldið var síðan snætt í Bjarnakró á Eiðinu, dansað, sungið og spjallað að Eyjamanna sið langt fram á nótt.
Vinkona húsfreyju kom frá Noregi, og fékk gistingu hjá systur í Eyjum.
Var hin ánægðasta með ferðina, og húsfreyja kynnti hana fyrir krökkunum í Grænuhlíðinni.
Aldrei leiðinlegt að heimsækja Eyjarnar, er mat húsfreyju, jafnvel ekki síðsumars, eða í byrjun september eins og í þetta sinn.
"Hún rís úr sumarsænum
í silkimjúkum blænum,
með fjöll í feldi grænum,
mín fagra Heimaey..."
Þetta var góð ferð út í Eyjar, og gaman að hitta gamla leikfélaga og skólafélaga. Við vorum þéttur hópur hér í den, þrátt fyrir að vera einn af stærstu árgöngunum í Eyjum. Leikgleði okkar var mikil og lífsgleðin ólgaði sömuleiðis í æðum okkar. Við áttum okkar stóru drauma og þrár...helvískt eldgosið '73 setti bara svolítið strik í reikningin og gerði okkur erfitt fyrir.
En koma sér í svefninn góða næst, vinna á morgum,
góðarstundir og njótið helgarinnar.
Athugasemdir
Fråbær helgi, fråbært fólk, fråbær stadur, FRÅBÆRT. Sit her i norskri sveit, med norskar kartøflur i ofni, sem mågkona min"å" og bíd ørlaga minna. EN innst i hjarta geymi eg FRÅBÆRT allt bara FRÅBÆRA EYJA, FRÅBÆRA fortid, FRÅBÆRA æsku med FRÅBÆRU FÓLKI- nú er ég komin í hring, og, ef einhver vill vera hamingjusamur, å så hinn sami ad umvefja sig gódu, skemmtilegu,yndislegu, hressu fólki. Hvenær er hægt ad panta plåss å elliheimili i Vestmannaeyjum?????????????????
unnur (IP-tala skráð) 30.3.2013 kl. 16:30
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.