14.1.2013 | 20:12
Vikunni 14-18 janúar....
..er húsfreyja, að hugsa um að fresta af
völdum hrikalegs "brotamáls" hennar og vegna mergjaðs "flensufárs"
sem herjar grimmt á bónda og húsfreyju sjálfa.
Húsfreyja hefur þrisvar skellt á sjálfa sig, símleiðis, þá hún
ætlar að bjalla í múttu sína til skrafs og ráðagerða, enda
húsfreyja löngu hætt að þekkja sína "eigin" rödd,
þá hún reynir að spjalla.
Nú hljómar húsfreyja glettilega líkt og "Darth Vader" Stjörnustríðanna,
og hræðir líftóruna úr sjálfri sér, í hvert sinn sem hún mælir orð af munni.
"Luke, I'm your father".
Úúúú......
Í ofanálag er húsfreyja síðan hrikalegur "brotamaður",
vafin í níðþungt gifsdrasl á hægri hendi, og hringlar um
íbúð sína, með hægri hnefann steyttan á lofti, um leið
og ræfils vinstri höndin reynir að vinda hor úr nefi húsfreyju
með bréfssnifsi.
Jamm, ekki er það gæfulegt.
Svo húsfreyja er að hugsa alvarlega um að fresta
þessari viku framundan um óákveðinn tíma.... altént fram
til 21. janúar.
Enda ekkert heilsufar á heimilinu til að mæta 12 ára afmæli
djásnsins...í tvíriti.
Bóndi fer ætíð í "drasl" í flensum...nánast grær fastur við
rúm sitt...fær sem betur fer arfaslæmar hóstakviður af og til,
svo hann hóstast, hristist og skekst fram á baðherbergið
í brýnustu málin, og fram í eldhús að næra sig.....og síðan inn
rúm aftur.
Húsfreyja er þrjóskari og rúmfælnari, og dólar sér fram,
á meðan hún hvorki líður útaf í mergjuðu hitamóki eða
slengist af krafti utan í veggi í fáránlegum hóstakviðum.
Eldar meðan stætt er og grætur fögrum flensutárum ofan
í potta sína og pönnur.
Ellefu ára djásnið skal fá sinn mat og engar refjar.
Hóstar sér síðan í húsfreyjustólinn, og grætur sárt yfir
Avatar, James Bond og Expendables, húsfreyja.
Sú vinstri hefur ekki við að snýta og þerra tár.
Hlakkar í hægri hendinni hins vegar....."meiri ræflarnir, konan og vinstri,
eiga hvor aðra skilið"!
Húsfreyja grætur öllu meira yfir fréttunum, en langmest
yfir veðrinu......andsk.... flensan að ná hámarki.
Húsfreyja er alveg búin á þessu flensufári, og er farin inn
í bólið sitt....og það þó hún þurfi að sitja upp við dogg, til að
ná smá blundi.
Vikunni er FRESTAÐ!
Góðar stundir og hóst..hóst....megi flensan missa ykkur.
Flokkur: Spaugilegt | Breytt s.d. kl. 20:19 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.