21.5.2011 | 12:55
Piff, paff og búið.
Og húsfreyja missti af öllu saman.
Týpískt!
Svaf stóratburð aldarinnar af sér, húsfreyja!
Múgur og margmenni, fylgjendur
hins heittrúaða Harolds Camping
sjálfsagt "gufað upp", um sexleytið í morgun.
Hrifnir á brott upp til himna þarna úti í henni Ameríku.
Eitthvert stórfelldasta "mannshvarfamál" EVER,
komið inn á borð lögæslumanna þar með.
Að vísu virðist herra Harold Camping ekki hafa verið
brotthrifinn í morgun,
en sjálfsagt fær að hann að vera eftir í 3-4 daga
til að taka á móti Jesú Kristi, skreppa með honum
í nokkrar skoðunarferðir, verslanir og á nokkra golfvelli.
Þarf auðvitað að ná áttum sá helgi frá Nasaret, eftir tvö
þúsund ára dvöl í himneskum sölum föðurins, og
þá er ekki verra að hafa öðling eins og herra Camping
sér við hlið.
Herra Camping sjálfsagt með langa lista yfir eiturharða
trúleysingja, sem munu hrökkva upp af jafnt og þétt
fram til 21. okt....?
(Merkilegt húsfreyja man ekki eftir að hafa séð ártal hérna.)
En altént móðir jörð skal hreinsast af "óværu" þessari,
er mannkyn kallast fyrir 21. okt eitthvert ágætt árið, gott ef það
er bara ekki á þessu ári 2011.
Jamm, og húsfreyja missir af öllu strax í byrjun.
Sefur af sér upphafið á sjálfum HEIMSENDA, og er ekki
einu sinni farin að pæla í hentugum "dánardegi" eða "dauðastund".
Jæja, en hefur fram til 20. okt til að pæla í þessu.
Væri líklega skást að hrökkva upp af svona 10-12 dögum
fyrir "lokaútkall".
Þá búið að hola manni niður sómasamlega,
með erfisdrykkju og alles,
en reikningurinn fyrir öll herlegheitin enn ógreiddur, þá
tuttugasti og fyrsti okt. lítur dagsins ljós í hinsta sinn.
Já, það þarf að ýmsu að hyggja, sé maður svo ólukkulegur
í sinni, að vera ekki fylgjandi herra Campings.
Mergjaður trúleysingi þar með, og missir af "brotthrifnuninni",
himnaríki og eilífri sanntrúaðri sælu.
Sitjum uppi með Jesú frá Nasaret verulega "pissed off" sjálfsagt,
eftir síðustu meðferð, og "pottþétt okkar eigin andlát" einhvern daginn
fram til 21. október.
Jaso, tarna var ljóta.
Og hver verður þá áfangastaður oss armra trúleysingja,
fyrst himnarnir verða yfirfullir af sönnum trúendum herra Campings?
Húsfreyja ætti máske að bjalla í herra Camping og spyrja
örlítið nánar út í það, og svo auðvitað ræða "ártalið" á þessum
21. okt.?
Nah, ekki vert að vera trufla herra Camping á ferðum sínum
um víðfeðm ríki Bandaríkjanna með þeim helga frá Nasaret.
Húsfreyja á þá vissu, að hún eigi rými í kærleiksríku "Sumarlandinu"
þá hún kveður þessa jörð, sem og flestir hennar samferðamenn
í þessu jarðlífi, og er ekkert á því að hún hefði fílað
að vera "hrifin brott" á þessum líka óguðlega tíma klukkan sex
í morgun.
En væri alveg til í að spjalla við Nasaretann í góðu tómi....., og þó
hún hafi skrifað annað hér áðan í gríni, þá er hún þess fullviss að
sá góði maður er langt frá því að vera "pissed off"!
Fyrigefning og kærleikur eru nú einu sinni hans einkunnarorð.
En, merkileg starfsgrein þetta, að vera HEIMSENDASPÁMAÐUR.
Húsfreyja hefði haldið, að starf sem býður upp á svona
"neikvæða" útkomu fyrir "stóran hóp" af fólki, yrði óvinsælt með
afbrigðum.
En, nei. Alltaf einhverjir að dúkka upp sem taka að sér
"þessa líku fínu" heimsendaspádómana.
KLIKKA ALLIR!
HVER OG EINN EINASTI!
Hvað með 2012 aztekana, spyr þá kannski einhver.
Jú, húsfreyja telur afskaplega einfalda skýringu á því almannaksmáli.
Blessaður almannaksritarinn og helsti framtíðarspámaður aztaka hinna fornu
"DÓ" þegar hann var komin svo langt í vinnu sinni.
Hafði láðst að þjálfa eftirmann sinn, þar sem menn með hans
spáhæfileika voru af skornum skammti, þá sem nú.
Skýring húsfreyju, þurfið ekki að vera sammála henni.
En lúmskt gaman að þessu, og húsfreyja óskar herra Camping
alls hins besta um öll ókomin ár....eða altént fram til 21. okt.
Góðar stundir á "fyrsta í heimsenda".
Heimsendapartý haldin víða | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.