20.4.2011 | 17:07
...miðað við að EKKI sé dælt sandi í sumar.
Og mennirnir ekki hálfnaðir
með þessi "örfáu" tonn eða 180 þúsund
í það heila, sem þeir áttu að dæla
burt úr Landeyjahöfn.
Það er aldeilis.
Setja upp "stöðvunarkyldu" á Markarfljót þar með?
Og hvað, beina öllum sumarlægðum með
"óvenjulegar" ölduhæðir beina leið
til Betu bjútí bretanna í sumar, enda kona sú
"há-öld-ruð! og munar ekkert um "háar öldur" við
sína konunglegu landsteina?
Jaso, lítil verk og löðurmannleg þá framundan hjá
vegagerð okkar Frónbúanna.
Aðeins dútlerí við að eiga við náttúruöflin,
Markárfljót og veðurguðina.
Hættir að moka í Landeyjahöfn!
Komið nóg af helvískum sandaustri.
Búið spil!
Það var og.
En húsfreyja spáir því að eðalferjan Herjólfur sigli
eftir sem áður sína þriggja tíma leið í Þorlákshöfn,
sumarlangt, hætti Skandalíu....ömmm fyrirgefið,
Skandíumenn að dæla í maí.
Og Landeyjahöfn verði lítt brúkuð, nema þá
til að demba sér í ærlegan sundsprett í söltum sjó,
þá ölduhæð er "venjuleg".....nú og ef enn fyllist
höfn af aur og leðju, koma ætíð "hrísgrjónaakrar"
upp í huga húsfreyju.
Þá yrði sú höfnin aldeilis til einhvers nýt,
fengju Landeyjarmenn nokkur tonn af
hrísgrjónum í afrakstur að hausti.
Verst að húsfreyja gæti trúað að
seltan væri svona við efri mörk hvað varðar
hrísgrjónarækt á þessum slóðum....en það má
sjálfsagt leysa slíka smávægilega áskorun,
ekki síður en "óvenjulegar"" ölduhæðir,
og sand- og aurflytjandi smáfljót á Suðurlandi.
Neipp, þvílíkt smotterí flækist ekki fyrir fólki
í samgöngumálunum hér uppi á litla Fróni.
Jamm.
En eitthvað er húsfreyja að veltast með töluna 180 þúsund
TONN í hausnum.
Er enginn reiknishaus, húsfreyja, því síður fróð
um viðráðanlegt sandmagn í höfnum við íslenskar strendur.
En miðað við að Skandal...Skandia hefur aðeins dælt upp
40 þúsund af þessum 180 þúsund tonnum sem þurfti að
dæla upp úr Landeyjahöfn, og ekki er ætlunin að dæla meira,
veltir húsfreyja fyrir sér HVAÐ hafi orðið af
140 þúsund tonnunum sem eftir átti að dæla burt.
Fóru þau eitthvað?
Upp á eigin spýtur?
Skroppin til Færeyja, kannski?
Ný "eyja" myndast við Færeyjaklasann?
Hehehe... tarna er merkileg frétt.
Húsfreyja vonar Eyjamanna vegna,
að sandælingu verði áfram haldið í Landeyjahöfn,
hvenær sem ölduhæð er ekki "óvenjuleg" eða há,
og höfninni verði komið í siglingafært lag fyrir sumarið.
Húsfreyja er þá ákveðin í að nýta sér eins og eina ferð
þaðan út í Eyjar í sumar....víst ansi þægileg og flott
siglingaleið....sé ölduhæðin ekki því "óvenjulegri"!
Góðar stundir og baráttukveðjur út í Eyjar.
Óljóst hvað Skandia dælir lengi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Samgöngur | Aukaflokkur: Spaugilegt | Breytt s.d. kl. 17:10 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.