28.10.2010 | 18:21
...og útlit fyrir enn verri rjúpnaveiði.
Eða það hefði húsfreyja talið líklegt.
Eða eru rjúpur mikið fyrir að
vera á flögri í bálviðri?
Eða hópa sig máske saman í heilu kippunum
við aðal jeppaslóða rjúpnaveiðimanna og bíða
dauða síns í stóískri ró og organdi kafalds snjóbyl?
Jamm, húsfreyja þekkir lítt til rjúpna, nema
ef vera skyldi að þær væru svona yfirleitt "einar upp til fjalla, yli húsa fjær",
flýjandi fálka beint í fangið á "snúandi úr hálslið og fiðurreytandi"
kvensniftum, eins og segir frá í einu merku ljóði.
Skuggaleg rjúpnaörlög það.
Jæja, kannski ekki aðalatriðið hvað rjúpur eru að brasa
í fárviðri, þegar rjúpnaveiðimenn eru annars vegar.
Þeim sumum hleypur kapp í kinn, og gerast síðan lesblindir mjög
og heyrnadaufir með afbrigðum, þá veðurfræðingar lofa
hressilegu "leitarveðri" með blindhríð, hvassviðri og djöfulgangi á fjöllum.
Og þá er að leita-DÆS-!
Og leita.
En huggun harmi í, þá er það ætíð ofsafengin gleði
sem fylgir því að vera FUNDINN, hafi maður týnst
í geggjuðu veðri á fjöllum.
Myljandi stuð og mögnuð hamingja.
Jamm.
En húsfreyja telur illu heilli, að rjúpnaveiðimenn munu sumir
hengja sig í setninguna "með talsverðri ofankomu" í kolsvartri
veðurfrétt þessari.
Er ekki "talsverð úrkoma" bara ávísun á "þokkalega meðalúrkomu".....
máske jafnvel bara verið að tala um nokkuð öran "éljagang"!
HA? Bara fínasta veður?
Og svo týnast menn á fjöllum.
Jamm.
En svona til að alls réttlætis sé gætt, þá ber að minnast
á allar pottþéttu rjúpnaskytturnar, sem ætíð hafa
vaðið fyrir neðan sig, og sitja heima yfir krossgátum og fótbolta
þá stormur og hríðabylir geysa á fjöllum og eiga þær skyttur hrós skilið.
Rjúpuna veiða rjúpnaskyttur þessar fyrir því, í blíðviðri, öruggar
og ALDREI týndar.
Góða helgi og njótið "innistunda" í faðmi fjölskyldu sem allra best.
Útlit fyrir afar slæmt veður | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.