27.10.2010 | 22:02
Vetrarfríið...
... er fyrir börnin að ósk foreldra".
Konunni í útvarpinu var mikið niðri fyrir.
"Í alvöru" hugsaði húsfreyja, þar sem
hún ók bifreið sinni í gegnum haustlegar
og blautar götur heim til níu ára djásnsins,
og ömmu Stínu.
Amma Stína, móðir húsfreyju hafði boðist til að
mæta í borgina við sundin bláu og stytta níu ára
djásninu stundir, á meðan vetrarfríi stóð,
þar sem eigi var fengsælt um frí frá vinnu hjá foreldrum
djásnsins.
"Já", konan var á innsoginu, "það var gerð könnun og það
vildu þetta "allir" foreldrar fyrir börnin sín þó það lengdi skólatímann".
"Kræst" hugsaði húsfreyja, "ekki rekur mig minni í slíka
könnun, og þá hef ég aldeilis skitið upp á bak hafi ég
eindregið óskað eftir vetrarfríi til handa skólabörnum".
Húsfreyja rótaði nú grimmt í sínum innstu hugarskotum,
en fann ekkert um neina vetrarfrískönnun, aðeins
nokkra skúmaða þanka um að klífa Everestind við
tækifæri, og hvort Beverly Grey bækur hennar hafi allar farið
undir hraun 1973... (afi átti alltaf Tópas...small inn)
og svo efasemdir um gnótt skeinipappírs í
baðherbergisskápum hennar.
Þar sem útvarpsmaður sá er ræddi við áköfu konuna,
virtist jafn gáttaður og húsfreyja, datt henni í hug
að könnun þessi gæti þá ef til vill verið "góðæriskönnun"
frá vetrinum 2006-2007...?
En hraðmælta, ákafa konan sem reyndist vera kennari,
minntist ekki einu orði á það, hvenær könnun þessi
hafði farið fram, eða hverjir hefðu staðið fyrir henni.
"Jaso" húsfreyja setti í brýrnar.
Níu ára djásnið hafði sumsé verið dæmt í vetrarfrí
í 3 virka daga-VINNUDAGA foreldranna, af algjöru ábyrgðarleysi
og í hálfgert reiðuleysi af "sínum eigin foreldrum".
"Andskotinn með nef eins ormétið rotið epli, nú fengi bóndi sko
GÚMORRINN á Latínu frá húsfreyju, þá hann kæmi heim"!
En húsfreyju þótti næsta víst að bóndi hennar hefði
asnast, eins og góðærisauli að sækja um lán hjá sínu
eigin fyrirtæki eða banka, til að taka þátt í könnun
þessari um vetrarfrí barna, og bara verið asskoti hress og jákvæður,
fyrst hana rak ekki minni til þessa.
"Annað hvort það, eða hann hefur troðið húsfreyju
í að svara könnuninni, þá mergjaðir vírusar sveimuðu um heilabú
hennar með tilheyrandi 40 stiga heitum þokuskýjum og heilabilunarþankagangi.
Hvort heldur var, þá var hann SEKUR maður".
Húsfreyja hvæsti reiðilega, "hvurnig datt bónda hennar þessi
endaleysa í hug...og það í bankahruni og dómdagskreppu"?
Húfreyja sló ekki stefnuljósið af, þó hún væri fyrir löngu búin að
beygja, af einskærri vonsku og bræði.
"Látum bara helvítið blikka"!
Tókst eigi að síður, húsfreyju að komast heilu og höldnu
heim á bifreið sinni, enda er ökusnilld hennar við brugðið....blikk...blikk...
hvurn fjandann þarf maður sosum alltaf að vera að BAKKA?
En um kvöldið sór bóndi og lagði sárt við að vetrarfrískönnun þessa
hefði hann aldrei séð né heyrt.
"Þú hefur þá tekið þátt í henni, ef hún hefur verið
send okkur í ímeilinu" tjáði hann arfareiðri húsfreyju.
DJÍSUSS!
Húsfreyja man ekkert slíkt, en varla lýgur útvarpið.
Um nóttina barðist húsfreyja í gegnum hverja martröðina
af fætur annari, og svaraði könnunum villt og galið JÁKVÆTT
um að hafa "sumarfrí" skólabarna um miðjan nóvember, en foreldranna
í marsbyrjun, vetrarfrí yrði lengt um 1o daga,
páskafríið yrði sömuleiðis lengt og lyki ekki fyrr en 4 júlí.
HROÐI.
Reyndi húsfreyja að afsaka sig í bak og fyrir við vinnuveitenda, sem hringdi
jafnt og þétt í martröðum þessum,
og spurði hvenær mætti næst vænta hennar til starfa.
Jamm.
Húsfreyja virðist greinilega fara hamförum í könnunum henni sendar
rafrænt, og er svo í djúpum skít þá afleiðingar
djöfulgangsins koma í hausinn á henni.
Húsfreyja mun nú taka sér tak, og ALDREI framar
svara nokkurri könnun, rafrænt eður ei.
Sér í lagi mun hún FORÐAST kannanir um skólamál,
barnavetrarfrí og skólagöngu barna langt fram á sumar.
Í besta falli mun hún skella sér í kannanir sem
gerðar eru á bragðmun Coca Cola og Pepsi eftirleiðis....
fínt að fá koffín og sykur frítt í blóðrásina á krepputímum .
Jepp, ekki spurning.
Var annars norðan heiða, húsfreyja, með vetrarfrísdjásni
og bónda um síðustu helgi.
Miðfjörðurinn spegill á köldum haustdögum, föl á jörðu
og læða húsfreyju setti upp "háhæla skóna" og tiplaði
beint úr bílnum og inn, upp á hlýja þvottavél tengdó.
Níu ára djásn lék sér við Völu frænku sína og fór
í "grýlukertaleiðangur"með húsfreyju upp með á.
Alltaf merkilegt að sjá muninn á veðri Norðurlands og
hér fyrir sunnan.
En lesa með djásninu næst, því það er skóli á morgun.
Vetrarfríið er víst búið.
Góðar stundir, og í guðanna bænum, ef þið eigið vetrarfrí: Njótið þess!
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.