6.8.2010 | 12:21
Standandi...
...vandræði á Hlöðufelli?
Máske vart verið hægt að grilla
í topp þess góða fells sumar eftir sumar
fyrir "stöðum" ferðalöngum.
Göngufólk svo heillað af ægifögru útsýni frá
toppi Hlöðufells og ljómandi laglegu grjóti og urð
á toppnum sjálfum að það hefur sig ekki úr sporunum
tímunum saman.
Hímir þarna jafnvel dögum saman, "standandi" upp á
endann, svo heimamönnum í sveitinni í kring verður ekki rótt.
Telja jafnvel göngu- og ferðafólk týnt og tröllum gefið
þar uppi, og ræsa út sveitir vaskra manna á tröllslegum bílum, að leita og
bjarga "stöðum" ferðalöngum í "standandi" vandræðum?
Jamm, það var máske löngu kominn tími á "stöðumæli" á tind Hlöðufells,
og ekki nema sjálfsagt að "staðnaðir" ferðalangar,
en þó enn "uppistandandi", taki smá þátt í "kostnaði" þeim sem
af stífum "stöðum" þeirra hlýst.
Húsfreyja leggur svo til að landsverðir gangi í það með hraði,
að skella upp "stöðumælum" á öllum helstu
svæðum rjúpna- og gæsaskytta upp til fjalla og inn til heiða.
Björgunarsveitarmenn munu svo jafnóðum sjá um að
tæma hundraðkallana úr mælunum, þá þeir leita að
skotglöðu fólki, sem gleymdi GPS-tækinu og áttavitanum heima í bílskúr.
(...."tókuð þið ekki veðrið, áður en þið fóruð"?......."Hvaða veður"?....."Nú, er
hægt að fá fregnir af veðri og horfum uppi á fjöllum......djö...hafði ekki
hugmynd um það"!)
Aldrei að vita nema björgunarsveitirnar færu að koma út í gróða.
Fyrir utan að það, að hafi menn stöðumælana nógu "þétt",
mætti jafnvel RATA eftir þeim til byggða.......!
Hehehehe...stóðst ekki mátið, húsfreyja, kitlaði meinlega
gen hennar, frétt þessi, í botn.
Stöðumælir uppi á Hlöðufelli.....bara SNILLD!
Góðar stundir og munið eftir hundraköllum í "stöðumælana" í sumar.
Spaugarar settu upp stöðumæli á toppi Hlöðufells | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.