29.7.2010 | 16:23
Jónas í hvalnum...
...og þjáningar hans eru húsfreyju
iðulega hugleiknar, þá hún vísiterar
tengdaforeldra sína norðan heiða.
Ekki síst er sá "kristilegi" þankagangur, húsfreyju
Hvalfjarðargöngunum að þakka.
Þau birtast sjónum ferðalanga með sitt
gínandi svarta op, með "spariljósalýsingu,
eins og gátt niður víti sjálft.
Eða verra: Líkt og sjálfur "andsetinn-af -kölska-sjálfum-MOBY DICK" sé
mættur á svæðið, tröllauknari að stærð en nokkru sinni fyrr,
með kjaftinn galopinn, svo hroðalegt vélindað
blasir við sjónum á meðan "eiturgufur" rísa úr sjálfum
iðrunum, svo húsfreyju þyngir um andadrátt og sortnar
fyrir augum af ferðakvíða.
Fær húsfreyja æði oft trúarlegt hland fyrir hjartað, og
rifjar upp "eld og brennisteins-ræður" eins mæts prests í Betel,
þar sem SYNDIN var helvískur baggi upp á þúsund tonn
lágmark á mann, á vorri guðsvoluðu jörð, þá þeir í
heim þennan fæddust.
Svo hroðalega bersyndug var hver mannssál, að
"sá í neðra" og árar hans bliknuðu við hliðina á
sótsvartri sál mannanna, sem eigi höfðu
haft rænu á að iðrast synda sinna...hvort sem þá rak minni til að
hafa syndgað eður ei...aukaatriði...og höfðu látið vera að ganga á
hönd hinum hákristilega, frelsandi söfnuði klerksins í Betel.
Jamm!
Í Betel var HIMNESKT að vera...pollrólegt og arfa-ÖRUGGT!
HALLELÚJA!
Húsfreyja sem á Betel-árum sínum var lítil skotta á
aldrinum 7-12 ára, fór aðallega til messu þangað á sunnudögum
til að fá fallegar Biblíumyndir.
Og fallegar voru þær myndir.
Bólaði ekkert á myndum af mergjuðu logandi helvíti með kölska
sjálfum skælbrosandi út á eyrum, veifandi hala sínum
um leið og hann grillaði "einn bersyndugan" á forki sínum.
En húsfreyja verður að játa, að hún vonaði lengi vel,
að ein slík læddist með englunum og Jesú,
þó ekki væri nema til að sjá hvernig búskapurinn væri
hjá "þeim í neðra"!
Braut einnig grimmt heilann um það sem lítil skotta,
því ALLIR í Betel væru svona syndugir og vondir, að það þyrfti
reglulega að hóta þeim vist í heitasta helvíti.
Gátu safnaðarmeðlimir Betel bara ekki verið skikkanlegir
og hjartagóðir eins og allir sem sóttu kirkjuna hjá
honum síra Jóhanni Hlíðar í Landakirkju?
Húsfreyja lagði þessa spurningu fyrir foreldra sína
eitt sinn, eftir að henni höfðu blöskrað eldglæringarnar
hjá mælskum Betelpresti einn sunnudaginn.
"Mamma,...pabbi, ... afhverju eru allir í Betel svona syndugir og vondir
að þeir brenna helvíti ef þeir "irrast" ekki"?
Faðir húsfreyju aðhlæginn maður með afbrigðum,
trompaðist af hlátri....nei veinaði af hlátri.....flúði fram í stofu að hlæja
til að litla skottan hans móðgaðist ekki enn frekar við hann.
Skottan horfði ábúðarfull á móðurina...ætlaði hún líka að
gera grín að henni og hlæja eins og fífl.
En nei, móðirin tók trú sína og barna sinna alvarlega.
"Heyrðu skottan mín, við hér á þessu heimili trúum hvorki á
helvíti né djöfulinn, og það heitir að IÐRAST ekki irrast.
Og það er þegar maður sér eftir að hafa gert eitthvað slæmt.
Þeir í Betel mega þrugla sína vitleysu í friði og trúa á
tilvist helvítis og djöfuls, við trúum á Guð og góða engla
og ég er viss um að við sem trúum þannig verðum að lokum miklu fleiri
í himnaríki heldur en hinir".
Jamm, móðir húsfreyju hafði góð svör á reiðum höndum,
og skottan var ánægð með þau.....þó auðvitað langaði
hana alltaf svolítið í eina "krassandi" Biblíumynd ala helvíti Betels.
Hætti húsfreyja þar með að hlusta þá hún mætti í Betel.
Söng af hjartans list, þáði Biblíumyndir, en klerkar þeirra töluðu
fyrir daufum eyrum um eld, brennistein, helvíti og djöfla.
En það er einna helst að húsfreyju rámi í "eldmessur" þessar,
þegar hún á leið um Hvalfjarðargöngin einu og sönnu.
Og nú eru þau búin að fá falleinkun hjá EuroTap.
Ó húsfreyju auma!
Já, húsfreyja er virkilega á því að hún sé "þjáningasystir"
Jónasar í hvalnum, þá hún þarf að þrauka í 8 mínútur
í lítt upplýstum, þröngum Hvalfjarðargöngum.......svo er líka
svo asskoti stutt þaðan til "þess í neðra".....!
En góðar stundir og í guðanna bænum
akið varlega um "kolfallin" Hvalfjarðargöng!
Mikilvægt að tvöfalda göngin | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.