22.7.2010 | 12:19
Að missa af lestinni.
Hverjir?
Nú auðvitað allir hér uppi á litla Fróni.
Húsfreyja telur að Frónbúar séu
allir sem einn að missa af einhverri
mestu snilld í ferðamálum, sem upp hefur
verið fundin af mannkyni.
Jú, nefnilega lestunum.
Bíllinn!
Húmbúkk!
Nægir að nefna "djö...SPRUNGIÐ....hva' er hljóðdemparinn
fainn....AFTUR.....andsk...púströrið var pottþétt lafandi á bílnum
þegar ég lagði af stað!
Þotur!
Fyrir neyðartilvik og flutning á fólki sem
á fé í bönkum eyja suður í höfum.....og stöku sinnum
þegar uppsveifla og góðæri geysa, fyrir hjarðir
af náfölu venjulegu fólki sem vill freista þess
að sitja eins og mýflugur á mykjuskán á sólarströnd,
þar sem vart verður þverfótað fyrir drykkjusvolum og
áhugafólki í "strandblaki"!
Skip....snekkjur?
Þar sem aðeins lítil prósenta af mannkyni hefur meltingafæri
og jafnvægisskyn vel fallin til að sigla grængolaðan sjó, brælu
eða haugasjó, verður hver og einn að meta hversu VEL
hann myndi NJÓTA ferðalags liggjandi á gólfi á
örsmáu salerni með salernið vinalega fullt af ælu....of mikil áreynsla
að teygja sig upp og sturta niður....og með mergjaðar
þunglyndishugleiðingar um hverfuleika lífs,
og sótsvartar gleðihugsanir "sjóveikra"
yfir fullvissunni að "maðurinn með ljáinn"
sé nær en mann grunar!
Jamm!
Húsfreyja vill nota tækifærið og óska "sjóhraustum"
til lukku með vel úthugsað jafnvægisskyn og sterk,
óbifanleg iður.
Húsfreyja telur að sjálf hafi hún skroppið á hið "himneska salerni"
þá Almættinu þóknaðist að útdeila slíku og þvílíku til
verðandi "jarðarfara", því alls ekki fyrir nokkurn mun
vildi hún missa af því þegar Almættið deildi út "kaldhæðni,
húmor og sönggleði"!
Var FYRST í þeirri röð!
Svo skip skora ekki hátt hjá húsfreyju sem ferðamáti.
NEIPP.
Lestar eru málið.
Þvílík kristaltær SNILLD, sem lestar eru!
Þarna ertu staddur í miðri stórborg vestur um haf.
Veist ekki hvað snýr upp eða niður á einu eða neinu,
finnur ekki Frelsisstyttuna, "Miðgarð", "Múrgötu", "Breiðaveg"
eða "Fimmtu tröð", þegar einhver sláni afhendir þér
litfagran snepil.
Hallelúja!
Lestakerfið neðan jarðar komið í hendur þér,
auðveldar leiðbeiningar, allt "litaskipulagt" eins og
í leikskólanum, og Frelsisstytttan merkt inn með
stórum stöfum.
Imbahellt!
Þú ert frjáls ferða þinna um alla borg, óháður
traffíkhnútum, leigubílstjórayfirheyrslum og
"o.m.g nú rata ég aldrei heim á hótel aftur"-angistinni!
Og viljir þú komast út fyrir borgina.
Einfaldast að taka lest.
Skella sér til Boston.
Connecticut.
Kostar sárlítið miðað við flug og leigubíla.
Og síst er það verra hinum megin Atlandshafsins.
Margar borgir með frábær neanjarðarlestakerfi,
sumar ofanjarðar, og svo er hægt að ferðast
tvist og bast, út og suður...jæja, ekki norður og niður....
en flest annað, milli borga, landa og hvað ekki.
"Pís of keik"!
Húsfreyja dáir lestar.
Þrælaði síðast efasemdafullum bónda sínum með sér í eina
í Barcelona, út fyrir borgina, út á lestarstöð upp í sveit
og beint upp í kláf sem ruslaðist nokkur...hhm..mblmm..metra upp
í klaustur í meðal....jæja..ókey.. frekar háum og bröttum fjöllum....
aðeins gengin 5 mánuði á leið með djásnið
Montserrat heitir klaustrið, og er dýrðar náttúruperla og staður
fyrir snarklikkaða ferðalanga eins og húsfreyju.....svona aðeins
meira stress fyrir "lofthrædda" karla á ferð með
óléttar "best að vaða beint af augum"-konur!
Og þangað hefði húsfreyja aldrei komist nema að
því að "frábært lestarkerfi" var til staðar.
Svo húkum við hér uppi á litla Fróni, með "götu-og vegaþröngasta"
og "bílmargasta" þjóðfélag sem um getur í sögunni.....
LESTARLAUS!
SVEI!
Þrjú hundruð og tíu þúsund hræður sem allar troðast
og þröngva sér eftir sömu götum, strætum og vegum...
á EIGIN bílum...og muna frónversku gullvægu regluna:
ALDREI FLEIRI EN EINN Í BÍL..., er nóg til að
æra óstöðugan...og gera hvern mann snarvitlausan
í föstudagstraffíkinni!
Ó, oss Frónbúa arma og auma!
Húsfreyja vil fá LESTARKERFI um land sitt,
ekki seinna en í gær.
Má sosum byrja á Keflavík -Reykjavík vegna vandræða
farþega "úr þotum"...húsfreyju er slétt sama, ef við svo
fáum gott og skilvirkt lestarkerfi milli landshluta!
Jamm!
Á dekkstu og örvæntingafyllstu stundum húsfreyju,
sér hún stundum litla Frón fyrir sér LESTARLAUST um alla
ókomna tíð.....sniff...SNÝÝÝT!
Ætli húsfreyja sé í alvöru eini Frónbúinn sem verður
"kúguppgefinn" á því að aka smá spöl um uppsveitir
Suðurlands, eða á því að aka í kaffi norður í land til tengdó!?
Tala ekki um að vísitera ættina á norðurhjara á Húsavík?
Jamm!
"Búin að missa af lestinni"!
Húsfreyja þarf að hressa sig upp með snarli og kaffi, og
skella sér í það að skoða LESTAR á netinu....DÆS-!
Góðar stundir og farið varlega í umferðinni....ALEIN í bílnum!
P.S. Myndin er frá Montserrat.
Farþegum í lestum fjölgaði vegna öskunnar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.