Færsluflokkur: Spaugilegt

Fengsæl mið í Hafravatni?

 funny-money-modifications-23 Því er ekki búið að segja húsfreyju frá þessu fyrir löngu?

  Húsfreyja er lélegur veiðimaður, sjálfsagt einn af þeim

  lélegustu sem ráfar um jörð þessa í leit að æti.Pinch

  En hún er samt ekta rándýr og þykir allt kjötmeti, sem og fiskmeti flest,

  hið mesta lostæti.

  Þrátt fyrir þetta, er eitt það versta sem hendir húsfreyju,

  þá hún danglar spún á veiðistöng ofan í vatn eða á, að

  fá FISK.W00t

  SKELFING!Shocking

  "AUMINGJA DÝRIÐ!  HANN ER STÓRSLASAÐUR!Crying NEI! NEI!

  EKKI BERJA GREYIÐ Í HAUSINN!  AAAAARRRGH!  MORÐINGI"Angry!

  Svona eru samskipti húsfreyju við bónda, fái hún fisk....og því miður

  er hún glettilega fiskinn og bóndi vill gjarnan fá hana á veiðar með sér.Errm

  Það er nefnilega húsfreyja sem hleypur um í öngun sínum sumarlangt,

  með glös á lofti að BJARGA flugum úr gluggum út, stígur ALDREI á

  járnsmiði né heldur banar hún forljótum kóngurlóm.Halo

  NEIPP.

  Aldeilis ekki.

  Pöddulíf blómstrar allt og dafnar í kringum heimili húsfreyju sumarlangt...fær að

 vísu vægt taugaáfall af hræðslu, húsfreyja, verði hún að redda mmmmmarg-...

  ..hrollur...fætluSick út úr húsi....úúúff hvernig datt Almættinu í hug að

  skapa svona HRYLLING?Pinch

  Og húsfreyja lifir í mergjaðri afneitun, þegar kemur að

  lambakjöti...engin huglæg tenging hjá henni við litlu

  fallegu hvítu lopahnoðrana sem skoppa um tún og upp til

  fjalla, og æðislega bragðgóðu lambagrillsteikurinnar á disk hennar.Halo

  Neipp.  Húsfreyja er helst á því, að lambakjöt sé af "jurtaætt"

  all sérstakri, ræktað á fínum stórum ökrum, og líkist ræktun

  sú helst "bómullarrækt"!Whistling

  Jepp! 

  AFNEITUN TOTALIS!Devil

  Já, húsfreyja telst seint snjall og útsmoginn veiðimaður.

  Getur ekki einu sinni drepið húsflugu.

  Hins vegar gæti húsfreyja vel hugsað sér að skella sér á

  "auraveiðar"Tounge, því bévítans auraleysið hefur verið landlæg plága

  á heimili hennar frá hruni og kreppufári.Errm

  Líst henni því afspyrnu vel á frétt þessa, og ætlar nú með hraði

  að sækja um veiðileyfi í Hafravatni, og mæta þangað með sína

  öflugustu veiðistöng og bestu spúna!LoL

  Er bara eitt....ætli aurapokar taki betur á "flugu" en spún....?Grin

  En það verður þá að koma í ljós, og húsfreyja mun  aldeilis ekki

  víla sér við að "grjótrota" aurapokana, nái hún að fanga nokkra,

  veiðiklóin sem hún er.Devil

  En elda hakk og spaghetti í snarhasti næst, og síðan

  halda með hraði á veiðar á Hafravatni  eftir kvöldmatinn.

  Góðar stundir og góða veiði í sumar!

  P.S.(Húsfreyja kann Íslandsbanka þakkir fyrir "aurarækt" þessa

  í vatninu...aldeilis brilliant hugmynd)!Tounge


mbl.is Fundu peningapoka í Hafravatni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hann þarf að komast á vinstri löppina....!

soccer-photography_crop_340x234 .....,sjónvarpsmanni var mikið niðri fyrir, er hann

  mælti þau fleygu orð.

 "Þvílík háheilög sannindi" hugsaði húsfreyja hróðug og glotti grimmt,

  þar sem hún sat og "hlustaði" á lýsingu fótboltafróðra

  manna á kreppu-flatskjánum sínum.

  Húsfreyja ELSKAR að "hlusta" á lýsingar fótboltaleikja á skjánum.

  Þar þeysa menn um víðan völl í orðsnilld og íslensku tungutaki,

  svo unun er á að heyraDevil.

 - "Englendingar standa og veifa hendinni", sjónvarpsmenn létu hvergi

  deigan síg í lýsingunni.

  "Og Englendingar eru þá allir "handalausir" nema einn,

  sem aðeins hefur EINA" hló húsfreyja hið innra með sér, "og henni

  veifa þeir grimmt....allir sem einn".Tounge

 - "Mér finnst að skyttur eigi að "hitta" markið þegar þeir eru

  komnir inn fyrir marklínu", sjónvarpsmaður  sár yfir getuleysi leikmanns

  við að skora.Errm

  Húsfreyja veinaði af hlátri.LoL

 - "Carrol er að reyna að koma inn í leikinn".

  "Ekki seinna vænna", hugsaði húsfreyja, "seinni hálfleikur hafinn,

  og andskotans maðurinn inni á vellinum, en utan leikjar"!

 - "Þeir verða að "taka boltann niður", þeim hefur tekist það

  einu sinni á síðustu 10 mínútum", sjónvarpsmaður ábúðarfullur.

  "Ljótt ef boltinn er bara á sveimi yfir höfðum leikmanna", húsfreyja

  var rasandi á 10 mínúta flugi fótboltans.Halo

  En boltinn hélt áfram að fljúga samkvæmt lýsingu:

 - "Boltinn er að rísa yfir markið...margar mannhæðir".W00t

  "Þeir hafa líklega dælt "gasi" í helvíska tuðruna" var álit húsfreyju.LoL

 - "Englendingar aldrei líklegri til að" búa eitthvað til" þarna frammi",

  sjónvarpsmaður, reyndi að vera jákvæður um frammistöðu breskra.

  Húsfreyja var að míga á sig af hlátri......"hvað voru breskir

  að bardúsa í miðjum fótboltaleik?

  -"Hann er allt of HEITUR", húsfreyja missti af því hvort verið

  væri að ræða boltann eða leikmann.Pinch

 - "Menn hafa átt erfitt með að "fóta" sig allan leikinn",

  húsfreyja var komin í keng af hlátri...."atvinnumenn

  í FÓTbolta í erfiðleikum með að FÓTA sig"!Tounge

  -"Balotelli er dálítið hissa"....."engin furða" hugsaði

  húsfreyja, "ef færustu fótboltamenn heims fóta sig ekki

  á fótboltavellinum"!Devil

 - "Þarna er MAAAAARK......hann er rangstæður, já" mæðan

  í rödd sjónvarpsmanns var nánast áþreifanleg!Errm

 - "Englendingar búnir að vera mjög "þéttir" í leiknum".W00t

  Eina hugsun húsfreyju við þessa yfirlýsingu var:

  "Einhvern tímann var sungið á öldum ljósvakans:

  "NÚ ER ÉG ÞÉTTURLoL, OG ORÐINN FURÐU LÉTTUR,

  ÉG ER Í OFSASTUÐI OG ELSKA HVERN SEM ER".

  En leikurinn var ekki búinn.

  Og sjónvarpsmenn fóru á kostum:

-  "Hér kom stórkostlegt skot, sem leit kannski ekki út

  fyrir að vera það".Shocking

  Og síðan: -" Þarna er hann kannski ekki að "miða" á markið"!Pinch

  "Heldur HVERT og á HVAÐ"??, húsfreyja náði vart andanum svo mikið

  hló hún.Grin

  Þegar sjónvarpsmaður skellti sér síðan í lýsingu á

  "arkitekt" sem skyndilega birtist á vellinum og hóf

  að teikna upp "sóknina", var húsfreyju allri lokið,

  svo hún lagði á flótta inn á bað og fór í sturtu.

  Það síðasta sem hún heyrði var:- "Hann tekur sér nægan

  tíma í markinu, án þess að vera of augljós að tefja tímann...."Whistling

  Fótbolti er tær SNILLD!

  Að lýsa fótboltaleik sérstök NÁÐARGÁFA.

  Húsfreyja vill þakka íþróttasjónvarpsmönnum RÚV kærlega fyrir

 sérdeilis frábæra kvöldstundWink!

  Góðar fótboltastundir.


mbl.is Ítalir höfðu betur í vítaspyrnukeppni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Af fótboltafári, óvissum endastöðvum og forsetaframboði.

  funny_argentina_football_cool_funny_interesting_amazing_200907301925255879

  Þar datt hann á rassinn, hann Slatan,

  á miðjum vellinum sat'ann.

  Skorað ei mörkin gat'ann,

  bölvaði grimmar en Satan,

  því vinstri fót hafði hann ei eitrAÐAN.Tounge

 

  Heimili húsfreyju er "fótboltaserað" um þessar mundirWhistling.

  Í sjónvarpi hennar eru menn uppteknir mjög af réttum

  "leiklestri", eitruðum vinstri fótum og einni vesælli

  boltatuðru sem velkist manna í millum, og ratar

  stöku sinnum í netgirðingu á sitt hvorum enda

  fótboltavallarins.Shocking

  Svo eru menn með nöfn eins og "Slatan" að spila

  fótboltann.Joyful

  Jamm.

  Ellefu ára djásnið er kengspennt á hverju kvöldi,

  nötrar af spenningi og dæsir af hamingju í hvert skipti

  sem "hálfleikur" skellur á.Grin

  Vippar sér glaðhlakkalega sú ellefu ára, að "fjarstýringunni"

  sem losnað hefur tímabundið um, í krampakenndu taki

  föður hennar, nær henni af honum "má ég aðeins" 

  og skiptir snarlega og með ofurhraða um rás.

  "Spurningabomban er að byrja", gjóar augum ábúðarfull

  á föðurinn..."þú getur horft á leikinn í tölvunni, pabbi"!W00t

  Felur fjarstýringuna í skyndi undir blaðabunka í stól húsfreyju.Tounge

  Bóndi sættir sig við stjórnsemi ellefu ára djásnsins,

  enda finnur hann ekki fjarstýringuna.Devil

  Já, alltaf stuð í fótboltanum.

  Það gladdi annars hjarta húsfreyju ósegjanlega,

  að lesa um pólska ellismellinn, sem rataði

  óvart í óvissuferð alla leið á strendur litla Fróns,

  þegar hann ætlaði í raun að vísitera víðfeðmar

  lendur norska kóngsins að hitta mann og annan.Grin

  Þetta finnst húsfreyju bráðskemmtileg frétt.

  Sá gamli fær "gratís" ferð fram og til baka, getur

  smellt sér í eina herlega útsýnisferð "Gullna hringinn"

  og seinkar ekki nema "um viku" í heimsókn

  til ástvina búandi í hinu mikla veldi norskra.LoL

  Nú er húsfreyja þekkt að því að geta verið

  dálítið utan við sig, þá skjaldskirtilskvikindi hennar

  tekur upp á því að sveiflast í mergjaða lægð,

  svo eigi duga hormónatöflur til að bæta.Angry

  En það hefur aldrei flökrað að húsfreyja að þetta mætti

  nota sér til tekna.Whistling

  Sér hún nú fram á, að í næstu skjaldkirtilsniðursveiflu

  kaupi hún sér flug til Noregs, og í stað þess að

  berjast við að halda athygli og skarpri hugsun í

  Leifsstöð, leyfi hún sér bara að ráfa um

  í hugarþoku og svima og "villist" síðan beina

  leið upp í flugvél á leiðinni til Ítalíu.Tounge

  Flott að rápa um götur Rómar í sumarsól og blíðu

  í nokkra daga,

  snæða spaghetti bolognese, kíkja á

  hús páfa í Páfagarði og fá svo frítt flug heim aftur.LoL

  Aldeilis brilliant!

  En að forsetaframboði.

  Tveir yndislegir öldungar ræddu forsetakosningarnar,

  báðir farnir að gleyma töluvert, en annar samt heldur meira:

  -"Ég ætla nú bara að kjósa hann.....hérna....aftur...hann...

  Grímsson..já, Ólafur heitir hann.

  -Ég er svo innilega sammála" svaraði sá gleymnari, "ég kýs..ööö...

  ....."gamla" forsetann aftur"!

  -Þá förum við saman niður að kjósa" sagði sá minnugri,

  "og þú manst að krossa á réttan stað við Ólaf, en ekki við

  Ara Trausta veðurfræðing eða hina frambjóðendurnar", sá

  minnugri að gulltryggja Ólaf.

  Sá gleymnari samsinnti því ánægður, sá síðan að

  húsfreyja hafði fylgst með spjallinu,

  nikkaði til hennar og sagði: "Ég ætla sko aldeilis að kjósa

  "Ara Trausta" veðurfræðing sem forseta"Cool!

  Dásamlegt fólk á vinnustað húsfreyju.

  Hún svo á leið út í Eyjar um helgina

  Taka sautjándann þar með stæl. 

  Góðar stundir og njótið helgarinnar.


mbl.is Hælspyrna Welbecks tryggði Englandi sigur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jaso! Nú er ég fullur ræfill og róni...

446209

  ...var sungið fullum hálsi á dansleikjum upp til sveita

   sem víðar, þá húsfreyja var ungWink.

  Þykir henni það slæmt afspurnar, ef satt væri að"ballstemning"

  sé að stinga sér niður á sjálfu Alþingi Frónbúa.

  Sýnist húsfreyju sem eitthvað myndi Alþingi setja niður, siti menn þar að

  sumbli næturlangt, þá alvörumálin litla Fróns eru rædd.

  Þykir henni þá fara að styttast í að drykkjugleði með

  tilheyrandi spangóli og látum, brjótist út meðal þingmannaPinch,

  svo landsmönnum er á hlýða, súrni í munni og svíði í eyru.

  Veit húsfreyja vel að margir eru alþingismenn glaðir í sinni og

  hreifir, slá á létta strengi og gleðjast yfir þægilegu og vel launuðu

  starfi sem að jafnaði krefst ekki meira" líkamlegs erfiðis" í

  þingsölum, en að lyfta vísifingri til að styðja á hnapp- JÁ eða NEI.Devil

  Aðeins erfiðara siti þeir hjá í atkvæðagreiðslu og þurfa þá jafnvel að snara

  sér upp í púlt og gera grein fyrir "afstöðuleysi" sínu....en ekki mikið þyngra verk.

  DING!  Bjallan sér fyrir því slíkt taki fljótt af.Tounge

  Jamm, hljótar að vera glaðsinna  menn og konur, í þingsölum, sem hallar sér aftur í

  sætum sínum daglangt og fram á nótt, og 

  lygna aftur augum af einbeitingu er þau hlusta á kollega

  sína ræða af stakri snilld og ráðkænsku framtíð þjóðar vorrarWhistling.

  Blaða í mesta lagi hljóðlega í "málgagninu" til að sjá hvort

  Davíð sé eitthvað hnýta í fyrrum flokksfélaga sína, eða

  til að fá nýustu fréttir af "kjarabaráttu" útgerðarmanna á heljarþröm

  og með kvótaþynnku.Grin

  Já, færi sjálfsagt ekki gleðibrosið af andliti húsfreyju,

  hefði hún tryggt sér svo notalegt innistarf sem þingmenn hafa.

  Mesta argapúlið í þingstörfunum er sjálfsagt að berja saman vitrænt frumvarp,

  og þurfa að standa í pontu kófsveittur að reyna koma því í gegn.

  En huggun harmi í, þá er iðulega hægt að stofna þægilega NEFND

  um málið, þar sem fín laun eru í boði fyrir fundarstörf, með fríu kaffi

  og heitum rjúkandi kleinum í þægilegum og hlýlegum fundarsölumHalo.

  Þó húsfreyju finnist ánægjulegt að alþingismenn

  þjóðarinnar séu glaðir og hamingjusamir í starfi,

  þykir henni fjarstæðukennt og kolrangt að menn séu í glasi á AlþingiErrm.

  Svona álíka gáfulegt, og ölóðir skipstjórar og ökumenn undir stýri á blússandi ferðPinch.

  Vill hún minna á "ráðamenn þjóðarinnar-" og "stjórnendur landsins"-stimpilinn, sem

  gjarnan fylgir með, þá rætt er um alþingismenn.

  Nei, má hún þá heldur biðja um allsgáða þingmenn.

  En vel ef ölvun þingmanns í frétt þessari er uppspuni einn og mergjaðar ýkjur,

  og vonar húsfreyja að vort frónverska blávatn sé ætíð vinsælasti drykkur

  þingmanna á Alþingi, þá þeir eru að störfumCool.

  Hvort þeir velja að fá sér einn kaldann... eða tvo, eftir vinnu...

  er þeirra mál.

  Aðeins ef þeir skella sér síðan ölvaðir undir stýri á bifreið og vefja henni utan um

  ljósastaur, lenda þeir í djúpumWhistling.

  Húsfreyja óskar þingmönnum Alþingis öllum farsældar í starfi

  og allsgáðrar framtíðar.

  Góðar stundir.


mbl.is Sagði alþingismann vera drukkinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stóra Beta í stað stóra Benna?

 BIG-BEN-5222 Einhvern veginn gengur þetta ekki alveg upp,

  að breyta  nafni Stóra Benna/BIg Ben í 

  "Betuturn", að mati húsfreyjuGetLost.

  Svona eitthvað ónotalegt við þaðCrying.

  Álíka ónotalegt og ef við Frónbúar

  ákvæðum að skíra "Hallgrímsturn" upp á nýtt,

  og kalla hann "Davíðsturn" til dæmis....

  eða verra "Geirsspíruna"!Pinch

  Og Perlan yrði í framhaldinu "Jóhönnuskel" og

  Harpan "Gnarrtromman".Whistling

  NEIPP!

  Þá kann húsfreyja betur við þau nöfn sem við nú

  brúkum, og þykir afleitt ef breskurinn er að missa sig

  í "Betudýrkun".Shocking

  Breyta nafninu á Big Ben...ja svei.

  Afhverju skíra þeir ekki fremum Buck'inham Palace

  upp á nýtt?

  Þar er jú Beta Bjútý bretanna ábúandi, og ætti að

  vera auðvelt um vik að finna glænýtt ekta fínt nafn  á höllina.

  Já og hvers konar nafn er Buck'ingham  eiginlega á drottningarhöll?

  Húsfreyja fletti einu sinni uppí sinni ensku orðabók,

  og komst að því að vænlegasta þýðingin á Buck'ingham Palace væri

  "Höll Dádýrstarfsþorpsins". Shocking

  Verri þýðing væri Höll Dádýrstarfs-skinkunnar"!Devil

  Nú hefur húsfreyaj oft og iðulega vísiterað Lundúnarborg þeirra

  bresku, og aðeins einu sinni...segir og skrifar EINU SINNI,

  hefur hún rekist þar á sprelllifandi dádýrstarf.Whistling

  Það var í dýragarðinum þeirra bresku., sem er í töluverðri

  fjarlægð frá Buck'ingham Palace.

  Því heitir þá blessuð drottningarhöllin þessu ónefni?

  Væri ekki mun skárra að skíra drottningarhöll þessa upp á nýtt?

  Þar er jú Beta Bjútý ábúandi, svo það ætti að vera auðsótt að breyta

  nafni hallarinnar henni til heiðurs.

  "The palace of Beta Bjút'ingham" til dæmis...eða "The Grand and

  Excessive Home of Beta Bjút'ingham"!Tounge  Ekkert þorp neitt!

  Nú eða ef breskir vilja endilega hafa "turna" inn í dæminu:  "Hin æðislega en

  turnlausa HÖLL Betu Bjútý"/"The Magnificient but Towerless Palace of Queen Elisabeth"!LoL

  Eða bara "The Towerless House of Beta Bjútý"! Grin

  Nei, bara svona hugmyndir á laugardagskveldi, eftir góða steikingu

  í sólinni í Þorlákshöfn á Hafnardögum.

  Þar fyrir austan fjall stukku frændurnir Aron og Sigurður Freyr (12 ára) VILJANDI og

  fagnandi í sjóinn, og Svala(13ára) svona meira óviljandi," en ég get þetta alveg líka" 

  sömuleiðis í sjóinn.Cool 

  Alex( 8 ára) gerðist réttlátur og heiðarlegu buissnesmaður,

  og lét Marinó (6 ára) hafa sínar 250 krónur,Halo

  en Árn (11 ára)i var alveg steiktur og fékk sólarexemErrm en Báran(11 ára)var bergnumin

  af kanínuungum systur í Þolló og vildi gerast

  "dvergkanínuræktandi...og rækta eingöngu hvítar kanínur.....ef hún þyrfti EKKI að 

  ÞRÍFA búrin þeirra.Pinch

  Kanínurækt út þar með!

  Síðan fékk trambolínið að kenna á því hjá krökkum, en

  "fiskeldið" í plastsundlaug systur í Þolló var eitthvað slappt.Whistling

  Mútta var bísna hress, pældi í afmælum og gleði, en Sigurvin

  bakaði eðaltertu.

  Bísna góður dagur í bísna miklum hita og sólskini.

  Góðar stundir.

  


mbl.is Stóri Ben verði Turn Elísabetar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Júdóþema á árshátíð blankra bankahrunsmanna og kreppuvíkinga?

b20  Eða máski verið að stofna nýja

  "júdódeild" meðal grískra og ískra innflytjenda

  uppi á litla Fróni, sem eru víst þær þjóðir sem komu

 öllu verr út úr kreppunni en Frónbúar...W00t

  ef það er þá mögulegt?

  Nú eða máske vantaði bara fallega og " ljósa gardínustrimla" með svörtu ívafi,

  í gluggana á Ráðhúsinu, núna í sólbjörtu vorinu

  og Gnarrinn er að "samnýta" gallana með júdódeild KA,

  því hann er búinn að SAMEINA borgarstjórn og júdódeildinaDevil.

  Gleymdi bara að láta þá KA-menn í júdó vita, GnarrinnTounge!!

  Eða hvað?

  Hví stela menn "júdógöllum"Angry??

  Ekki er auðvelt að selja slíkan varning á svörtum hér á landi.

  Eftir því yrði tekið, ef einhver færi að spássera um í

  brúkuðum júdógalla frá KAPolice.

  Selja þá út úr landi?

  Kannski.

  En þetta er fatnaður með beltum og alles.

  Fatnaður tekur pláss, og 20-30 gallar eru nokk að skila einhverjum

  kílóum inn á vigtina í farangri, þá farið er erlendis.

  Og hvar er að finna markað fyrir STOLNA júdógalla erlendis?

  Er kannski myljandi eftirspurn eftir júdógöllum á svörtum

  mörkuðum þar útiShocking?

  Ef ekki, hvað vilja menn þá með stolna júdógalla?

  Ekki eru þeir vænlegir til átsSick.

  Því síður að klippa þá niður í ræmur og sjóða út í tePinch.

  Jú, einhverjir sniðugir að endurvinna fatnað, gætu

  hugsanlega "hannað" slatta af hvítum eyrnaböndum með svartri stjörnu í miðju,

  og selt túristum á leiðinni að týnast upp á Vatnajökli, grimmtDevil.

  Eða hannað nýja línu í fangabúningum:  Hvítan "júdólíkan" galla,

  með svartri rönd langsum niður frá hálsmáli niður að mitti.

  Svarta línan væri síðan mælistika, þar sem fangelsisstjóri,

  merkti með rauðum tússi þvert á þá svörtu, hve mörg ár,

  fangi væri búinn að sitja inniWhistling.

  Nei, bara svona hugdetta.

  Húsfreyja hefur ekki hugmynd, hví menn stela júdógöllum frá KA,

  í hvaða tilgangi eða af hvaða hvötum.

  Er til júdódellufók, sem SAFNAR júdógöllum, kaupir þá grimmt á

  netinu, kembir útimarkaði og vílar sér jafnvel ekki við að

 stela eins og 20-30 stykkjum, til að ná safninu upp í

 500 galla sléttTounge?

  Hvað veit húsfreyja.

  En eitt er hún með alveg á tæru:

  Júdógallaþjófar þessir hafa alls ekki gert sér grein

  fyrir því, í hvílíkan rosa GALLAÞVOTT þeir voru að

  koma sérW00t!

  Margra daga þvottur í venjulegri heimilisþvottavél!

  Eins gott að þjófa þessir búi á næstu slóðum við Europreis,

  svo þeir fái þvottaefni ódýrt....já og muna að þvo beltin sér,

  svo gallarnir verði ekki allir gráir.....en máske er það einmitt meiningin...hmmmmWoundering!

  Einhverjir orðið varir við, að verið væri að selja "gráa" íþróttagalla með frönskum,

  "nýásettum" rennilásum?..... svartar eðalmjúkar hundaólar fást FRÍTT meðWhistling?

  Húsfreyja stóðst ekki mátið..heheheLoL.

  Þykir henni þjófnaður þessi furðu gegna.

  Góðar stundir á sólríkum sunnudegi.


mbl.is 20-30 júdógöllum stolið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ENGAR fermingatertur?

Mr_Bean  Húsfreyja horfði undrandi á systur sína og

  fyrrum mágW00t.

  "Við erum ekki búin að fá þær ENN, bara þessa einu

  í gærkveldi", þrumaði fyrrum mágur og var að fara á límingunum,

  svitnaði og fölnaði á víxl af angist og stressiPinch.

  Varir systur í Þorlákshöfn voru eitt strik af áhyggjum og einbeitinguWoundering.

  KORTER í fermingu Svölunnar og spennan var áþreifanlegLoL.

  Systir í Þorlákshöfn, móðir fermingabarnsins, skipulagði ferð út á gólfvöll

  í einum" hvínandi hvelli", þar sem bakarinn vann öllu jafnan hörðum höndum,

  við að stússa  í kringum gólfara í sandhólunum fyrir ofan Skötubótina.

  Systurdóttir, elsta barn systur í Þolló, glotti ísmeygilega til húsfreyju,

  hafði lúmskt gaman að af vandræðagangi móður sinnar

  og fyrrum sambýlismanns hennar.

  Húsfreyja stakk upp að hún sjálf , mútta hennar og systurdóttir tækju eitt

  "Skraf" (= leik í Scrabble), á meðan verið væri að leysa dularfulla kökuhvarfiðDevil.

  Ygglibrún foreldra fermingabarns varð myrkari en 21. desember í 

  rafmagnsleysi um kvöldmatarleytið þess dagsAngry.

  "Er ekki pylsuvagn þarna út frá, sem hægt er að redda sér á, ef allt

  fer á versta veg"?, húsfreyja var vægðarlausTounge.

  "Sigga, stopparðu ekki í sjoppu, svo maður getið fengið sér eitthvað að éta fyrst"?LoL,

  systurdóttir gaf húsfreyju ekkert eftir í miskunnarleysinu.

  En skötuhjúin, systir og fyrrum mágur, voru horfin á vit golfvalla, "téa" og gólfara að leita

  fermingaterta og meðlætis með kaffinu eftir kirkjuHalo, svo þau heyrðu

  ekki skensið.

  Mútta húsfreyju fór að ókyrrast og systir úr Vestmannaeyjum einnig

  stuttu seinna.

  Systir úr Eyjum ruslaði sínum peyjum út í bíl ásamt systurdóttur,

  og húsfreyja tók einnig sitt ellefu ára djásn, Marinó, múttu og

  gest með í för upp í kirkju.

  Þar var hátíðleg og myljandi skemmtileg ferming í bland við sálamsöng í gangi

  næsta einn og hálfa tímann.

  Húsfreyja sat á öðrum bekk með allri sinni slekt....fyrrum mágur

  sat á þeim aftastaShocking...of stressandi að sitja framar eftir kökuklúðriðTounge.

  Sérann aldeilis stórgóður blaðandi í bókum og pésum,

  klikkaði hvergi, og hélt frábæra ræðu þar sem simpansarGrin komu við

  sögu sem og góð heilræði til handa yndislegu ungu fólki að fermast.

  Gaman að þessu.

  Eftir kirkjuferð var þess vendilega gætt að Svalan hefði ekki "óvart" orðið eftir

  á kirkjutröppunumWhistling, endurraðað í bíla og haldið í T-húsið skammt frá

  Strandakirkju.

  Þar höfðu fermingarkökurnar góðu "dúkkað upp" fyrir einskæra eljusemi og

  dugnað systur í Þolló og fyrrum sambýlismanns hennarDevil.....

  og gólfvallarferð!

  Gesti dreif að, gestir villtust og hringdu örvæntingafullir í systur:

  HVAR er eiginlega þetta T-hús?, og gestir glöddust með fermingarbarninu

  og komu færandi gjafir.

  Fimmíu og tveir gestir mættu...ættingjar og vinir.

  NÝ-fundnar fermingaterturWhistling snæddar af góðri lyst með kaffi, pönnslum,

  flatkökum og alles.

  Svalan var alsæl.

  Fékk margt fallegt og var glimrandi flott í fjóluðum kjól með

  hvítar stjörnur í hári.

  Húsfreyja smellti myndum af fólkinu, spjallaði og skemmti sér hið besta.

  Fékk aðeins nettan kvíðasting í magann einu sinni, húsfreyja,

  þegar henni varð hugsað til þess að hún þarf að ferma djásnið

  eftir tæp þrjú ár......sjíss..... eins gott að engar fermingatertur

  týnist þáW00t.

  En góð byrjun á Páskum hjá húsfreyju, norðurferð í spilunum á morgum.

  Góðar stundir og gleðilega Páska.


mbl.is Á fimmta þúsund fljúga innanlands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ógnin mikla....eða óværan mikla?

 stock-vector-funny-volcano-51116704 Fer nú kaldur hrollur um nágranna okkar,

  á eyju einni er kennd er við breska.W00t

  Breska þjóðin hímir nú hrædd og hnuggin,

  grá og guggin, og nötra henni tennur í munni

  af ótta við ógnina miklu:  Eldfjallaeyjuna litla FrónW00t.

  Þjóðaröryggi breskra er í uppnámi, enda eyríki þetta

  í vestri til tómra vandræða með sín eldspúandi jökla og fjöllAngry.

  Og svo skítlegt er eðli þessara frónversku eldfjalla,

  að þau spúa næstum aldrei eldi, eimyrju og ösku nema

  í myljandi vestanátt, þá nokkrar milljónir breta ætla að

  skreppa með næsta flugi til Parísar ( "gay Paris"- lesist "gei pari)

  í eðal ostrudinner með frönskum fljóðum og sjarmatröllum,

  eða að vísitera íðilfagrar breskar lendur á FalklandseyjumDevil.

  Og þá...einmitt þá brjálast allt uppi á litla Fróni.

  Fer allt til helvítisErrm!

  Gýs í Vatnajökli....eða á Fimmvörðuhálsi....eða Heklu...

  eða djö.... ósegjanlegum EyjafjallajökliPinch.

  EYJAFJALLAJÖKULLW00t!

  Hvaða hálfvitum datt þetta í hug, að setja "fjögur ell" í

  sama orðið?GetLost

  Hvernig er hægt að ætla eðal-enskumælandi Bretum að

  bera fram svona óhroðaCrying?

  ÆDJAFJALDAJOKUL!Tounge

  "Sounds like somebody throwing up in HELL", las húsfreyja

  hjá einum þegna Betu bjútí á fésinu.LoL

  Já, litla Frón er fjandi töff og ógnandi við granna sína, Breta.

  Og til að bæta gráu ofan á svart, er djö...óværan

  sem kallar sig Frónverska þjóð, aldeilis búin að

  velgja Bretum undir uggumAngry.

  Fyrst vorum við ekkert nema frekjan og leiðindin

  á miðunum, þegar breskir reyndu að veiða sér nokkra þorska í soðið.

  Æddum um á litlum varðskipskoppum á miðunum og

  KLIPPTUM á alla togvíra breskra- svúss...helvískt trollið

  og allur aflinn hvarf í hafiðErrm.

  Djö...skemmdavargar, þessir FrónbúarAngry.

  Ekki skánaði það þegar Frónbúar ákváðu að vera með einhvern

  derring, þegar þeir skitu upp á fjármálabak og neituðu að borga

  fyrir kerlingafáluna hana ÍsbjörguPinch.

  TERRORISTAPAKKNinja!

  Jamm,  það er margt sem ógnar Bretum og hrjáir þá.

  Helvískir sólarstormar, pestarfár, hamfarir, hryðjuverk og svo verst af öllu..

  ..litla Frón og skítlegir íbúar þessWhistling.

  Vesalings breskurinn.

  Hann á ekki sjö dagana sæla.

  Kemst ekki í flug nema frónverskum eldfjöllum þóknist svoCool.

  Má ekki veiða sér soðningu lengur upp við

  frónverska landsteina, sei sei neiFrown.

  Og ekkert að treysta á frónverska útrásarvíkinga með

  alla vasa fulla af pappírspeningum, því síður á frónverska

  þjóð til að borga fyrir all fjármálasukkið og svínaríiðFrown.

  Rífur bara kjaft og segir NEIW00t!

  Já, ekki nema von að breskum renni kalt vatn á milli skinns og hörunds,

  þá þeim verður hugsað til lítillar eldfjallaeyju vestur af þeim,

  í miðju Atlandshafi.

  Tarna er ljóta óværan á yfirborði jarðarTounge!

  Já, bretinn á bágt...ógnar bágt.

  Máske væri réttast að stofna hjálparreikning hræddum og hrjáðum

  Bretum til bjargar hér uppi á litla Fróni......svona til að bæta fyrir

  alla eldfjallaöskuna sem við sendum þeim þarna um árið...var ekkert

  annað en djö... hryðjuverkDevil!

  Gá til veðurs næst.

  Góðar stundir.


mbl.is Íslenskar eldstöðvar ógna Bretum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

YFIR LIMGERÐIÐ eða ENDURHVERF VIÐSKIPTI?

 pope_funny ...eða eins og Sigurjón J. Árna myndi orða það;  Við bara lentum

  "Over the Hedge" með "Hedge Funds"Shocking!

  Altént var það málið fyrir Landsdómi í gær.

  Var áminntur um að tala íslensku sá frómi, Sigurjón,

  og tala um "Vogunarsjóð" en láta enska "limgerðið" lönd og leiðDevil.

  Húsfreyja var engu nær, en glotti við tönn, þegar

  hinn vísi Sigurjón sló því fram að "Bretar hefðu sett fullkomnlega

  óraunhæfar kröfur gagnvart "tilfærslu" Icesafe"!Pinch

  En Sigurjón skildi síðan ekki spurningu sem var varpað til hans um

  "flutning" á Icesafe....og spyrjandinn ekki heldur!Tounge

  Tilfærsla eitt og flutningur greinilega annað, þegar talað er á "bankamáli"!

  Og ekki skánaði það í dag þegar húsfreyja las frétt um fund milli Haarde og Sigurjóns,

   og Sigurjón lætur hafa eftir sér ,

  að Landsbankinn hefði sótt sér "laust fé, með ENDURHVERFUM viðskiptum".Woundering

  Endurhverf viðskipti??

  Einhverra hluta vegna sá húsfreyja fyrir sér gargandi stokkendur

  í oddaflugi yfir Tjörninni, og "hverfandi" síðan sjónum manna,

  inn í sólarlagið við Háskólann,

  þegar hún las um viðskipti þessi.Devil

  Erum við þá að tala um "laust fé" sem HVARF, en sem unnt var að hafa upp á,

  til þess eins að láta það HVERFA aftur= ENDURHVERF viðskipti?Shocking

  Eða máske "hvarf" ekki lausafé þetta, heldur er nú á "oddaflugi" yfir Landsbankanum,

  á eilífu hringsólandi pappírsflögri, ósnertanlegt öllum Frónbúum, nema stöku

  peningavítrum bankastjóra, sem veiðir slatta af því í háf af og til, snýr úr,

  og brúkar í leynilegar stórafmælisveislur þar sem

 Jagger og Lady GaGa syngja ástardúett afmælisbörnum til heiðurs?

 Nei, húsfreyja er engu nær, þegar menn fara að tala á "banklensku".

 En tarna er merkilegur dómur, "Landsdómur"!

  Og öll vitni virðast innilega sammála um að Geir hafi ekki getað

  gert neitt í neinu.....enda taldi hann að hinir spöku stjórnendur bankanna

  "væru að gera eitthvað"!Whistling

  Og allavega virðist Landsbankinn hafa verið á fullu

  með laust fé í "endurhverfum viðskiptum" korteri fyrir hrunGetLost.

  Sjálfsagt brjálað að gera hjá snjöllum bankastjórum Landsbanka

  að TELJA allt þetta lausa fé, og tryggja að það "hyrfi" þeim ekki sjónum....

  "aftur"?

  Hafa varla mátt vera að því að fylgjast með einhverju neikvæðu voli um

  yfirvofandi bankahrun!

  Seðlabankinn og Dabbi hvaðTounge?

  Og vesalings Geir gerði ekki neitt, af því að hann gat ekki gert neitt...

  eða jú!Halo

  Hann gat "blessað" Ísland, og það gerði hann svikalaust.Cool

  Jamm, merkilegur þessi Landsdómur, og hrikalega skrítnar

  og skondnar vitnaleiðslur.

  Góðar stundir og Guð blessi ........Landsdóm og Haarderann!Wink

 


mbl.is Tíst um andrúmsloft Landsdóms
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gott og vel, nýr Herjólfur.

  sport-fishing-boat-jon-boat-205579Eyjamenn orðnir langþreyttir að bíða eftir

  nýrri ferju milli lands og Eyja, það skilur

  húsfreyja vel.

  En þá er það stóra spurningin:

  Hvað ætlar Vegagerð ríkisins að gera í

  LandeyjahafnarmálumWoundering?

  Húsfreyja veit ekki betur en að Herjólfur

  hafi nú verið í stöðugum siglingum á milli

  "Þorlákshafnar"  og Eyja á síðustu mánuðum, og

  siglingar í Landeyjahöfn aðeins fjarlægar martraðir

  í draumum ferðalanga og Eyjamanna á flakki út í Eyjar

  og upp á landPinch.

  Og húsfreyja gerir sér engar grillur um að Vetur konungur sjái ekki um að

  sandstrokan standi beina leið inn í Landeyjahöfn þennan veturinn,

  frekar en síðastaAngry.

  Að Markarfljót skili ekki sínum aurburði samviskusamlega

  til hafs, þar við mynni Landeyjahafnar,

  sem "vandlega útreiknaðir" sjávarstraumar

  sjá síðan um að skila inn í höfnina aftur með hraðiWhistling.

  Ætlar þá Vegagerðin að taka að sér "skilvirka" hreinsun og sanddælingu

  í Landeyjahöfn, eða verða Eyjamenn að byggja stærstu

  "flatbytnu" allra tíma til að tryggja að ferja þeirra komist

  styttstu leið milli lands og Eyja inn í LandeyjahöfnW00t?

  Eru þá "flatbotnaðar" ferjur vel til fallnar að sigla úthafsölduna,

  sumar, vetur, vor og haustShocking?

  Húsfreyja veit nákvæmlega minna en ekki neitt um

  skipasmíðar, en hún spyr:  Eru til haffærir "ferjuflekar"Devil,  

  klikki vegagerðarmenn illilega á því að dýpka Landeyjahöfn,

  líkt og síðustu ár?

  Eða er Vegaerðin kannski að plotta alveg nýjan ferðamáta til EyjaHalo?

  Koma upp eðal "slönguvað" í stærri kantinum og "slöngva" fólki

  á milli..... í vatteruðum sérstyrktum álkúlum kannskiTounge?

  Eða smella upp einum voldugum "kláf" og draga ferðafólk

  i glerboxum yfir hafið til EyjaCool?

  Moka svo bara yfir Landeyjahöfn, og gleyma því að hún

  hafi nokkurn tíma verið byggðWhistling?

  Nei, bara smá pælingWink.

  Eyjamenn duglegt fólk, sem vill hafa samgöngur sínar

  í góðu lagi, enda Eyjamenn mikið á ferð og flugi,

  og Vestmannaeyjar einn af vinsælustu ferðamannastöðum landsins.

  Verra að vita hvað Vegagerð ríkisins er að pæla.

  En njótið kvöldsins í snjóhvítri fegurð vetrar.

  Góðar stundir.


mbl.is Smíða sjálfir Vestmannaeyjaferju
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband