Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
21.3.2011 | 21:03
Farin!
Asskoti er að heyr'etta.
Atli og Lilja búin að flokka sig burt
úr flokknum.
Flokklaus, óflokksbundin og á mergjuðum flokksflótta.
Flokkurinn þeirra góði gengin á svig við öll fyrri markmið,
orðin "Samfylkingeraður".
Jaso.
Hvað er atarna?
--RÆKNI
Þetta er ekki þjóðrækni
og þaðan af síður guðrækni
heldur íslensk heiftrækni
og helvítis bölvuð langrækni.
Káinn.
VESEN!
Vinstri grænt vesen.
Jæja, stjórnin stendur...höllum fæti, en stendur.
En auðvitað er eftir að kjósa um helvísku
kerlingarfáluna hana "Ísbjörgu".
Syndagjöldin
Hlaðin sorgum heldur öld
heim; þess margur geldur,
er þeir borga ekki í kvöld
og ekki á morgun heldur.
Káinn.
Svo enn getur allt farið fjandans til, stjórnarfarslega.....
ef það er ekki farið þangað nú þegar.
Ef að horft er, allir sjá
-eins og í varga hreysi
þar er skortur öllu á
öðru en bjargarleysi.
Káinn.
Jamm, ekki er það gæfulegt, en sjálfsagt að
hver maður fylgi sinni sannfæringu.
Lífsins skóli getur verið þungbær, og ekkert grín
að fylgja bévítans "pólitíkinni" innan flokka
frá A til Ö í kreppu og harðæri.....enda er það
ljóta ekkisens tíkin....slagar hátt upp í fáluna hana
"Ísbjörgu".
En maður kemur í manns stað, og enginn er ómissandi,
svo fari Lilja og Atli vel og gangi þeim allt í hag.
Verst að húsfreyja er að hafa áhyggjur af blessuðum
öðlingnum honum "Jóni Sigurðssyni", sem líklega verður
ærður af tunnuslætti og djöfulgangi þarna niðri á
Austurvelli.
Hann getur ekki einu sinni "mótmælt" djöfulgangi þessum
og látum þar sem hann stendur á stalli sínum, þögull sem gröfin.
Þetta er dauðans sorgleg sjón,
sjón og heyrn er farin;
helvíti er að horfa á Jón!
Hefur hann verið barinn?
Káinn.
Sjálf er húsfreyja ágætlega bjartsýn á lífið
og tilveruna, þrátt fyrir launalækkun og niðurskurð.
Henni er það bara eðlislægt.
Ég trúi því stöðugt, að tíðin sé góð
og tímarnir hagstæðir núna.
Suður í Kansas er fádæma flóð
í Florida steikjandi helvítis-glóð,
en taktu ekki frá mér trúna.
Káinn.
Hitt er annar handleggur að húsfreyja er lítt hrifin
af bankastjórum frónverskum og ofurlaunum
þeirra, og finnst fjandi hart að þetta skuli viðgangast
í kreppu og niðurskurði.
Góður, betri, bestur
burtu voru reknir;
illur, verri, verstur
voru aftur teknir.
Káinn.
Og sjálfsæðismenn sem fleiri pólitíkusar ötulir við
að verja "ofurlaunin" og rífa kjaft í fjölmiðlum.
Þú ert sveitar svívirðing,
sótugi eldhús-raftur.
Aftan og framan, allt í kring
ekkert nema - kjaftur.
Káinn.
Jamm, það er ýmislegt á seiði í þjóðfélagi voru
uppi á litla Fróni, og ekki allt réttlátt eða gott.
Húsfreyja hefur t.d ekki fengið launahækkun
"vegna álags" líkt og dómarar fengu á dögunum.
Situr uppi með háþrýsting af stresssi og álagi,
astmaskít og vöðvabólgu af sífelldu lyfjaryki,
harðahlaupum, lyftum og aukinni ábyrgð.
Fær enga yfirvinnu greidda lengur, verður að
taka út í fríi.....þegar stofnuninni hentar,
en þraukar samt , húsfreyja.
Jamm.
En að lokum ein ágæt speki um lækna:
Læknar eru svo heppnir,
að sólin skín á lækningar þeirra,
en mistökin eru grafin þrjár álnir í jörð.
Sókrates.
Og eitt smáskot til karlanna, sem ætíð virðast "rétthærri" en við konurnar:
Því meira sem ég kynnist karlmönnum,
því betur fellur mér við hundana.
Madame de Sévigné.
En góðar stundir öll sem eitt og kíkið á Káinn við tækifæri,
margt hjá honum tær snilld.
Segja sig úr þingflokki VG | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.9.2010 | 13:18
Vissar líkur og ýtrasta sanngirni?
Furðulegir orðleppar atarna,
hjá skarpvitrum formanni
Sjálfstæðisflokksins.
Og hver er þá munurinn á "venjulegri"
sanngirni og "ýtrustu sanngirni?
Og því njóta sumir þess að nóg sé að gæta sanngirni,
á meðan "aðrir" verða fyrir því að þurfa að gæta
"ýtrustu sanngirni"?
Og "vissar líkur" ber að túlka hvernig?
Sextíu prósent líkur?
Eða 15 prósent líkur.
Eða jafnvel 90% eða þá aðeins 2% líkur?
Er máske til tölugildi fyrir "vissar líkur" í líkindareikningi?
Húsfreyja er engu nær, en telur að "alvarleikinn
hljóti að hafa dropið" af grein hins vísa formanns sjálfstæðis
í Mogganum í dag,
og "vissar líkur" hafi verið á því að lesendur hafi
þurrkað tár af hvarmi eftir lesturinn,
af einskærri gleði yfir því að hafa aldrei
þurft að gæta "ýtrustu sanngirni"!
Góðar og "sanngjarnar" stundir.
Alvarleiki draup af andlitum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)