Færsluflokkur: Spaugilegt

Svekkt og svikin!

 scale ENGINN HEIMSENDI í gærAngry.

  Húsfreyja beið með öndina í hálsinum allt gærkvöld,

  eftir aldeilis dúndrandi heimsendi.

  Fékk engan.

  Var meira að segja búin að skreyta jólatréð löngu fyrir

  miðnættið, svo henni og 11 ára djásninu

  auðnaðist að berja fallegt jólatré augum í hinsta sinn á móður Jörð.Joyful

  Klukkan sló-miðnætti kom og fór.

  Móaði ekki í svo mikið sem eitt stjörnuhrap á himni.W00t

  Ekki einu sinni smá "hristingur" upp á 2,3 á Richter.Pinch

  NICHTS!

  NADA!

  NOTHING AT ALL.

  Grár og gugginn 22. des. birtist um hálf ellefuleytið,

  þá húsfreyja var að störfum.

  Ekkert "heimsendalegur" sá 22. þessa mánaðar.Angry

  Meira svona þreyttur og alveg búinn af skorti á dagsbirtu.

  Svo húsfreyja er svekkt og svikin...og sprelllifandi.Shocking

  Hér var hún búin að reikna með glæsilegu "heimsendasjónarspili",

  X-stjörnum að baki sólar að springa eða jörðina að vippa sér

  einn kollhnís í "pólarskiptum".

  Og ekki síst var hún fastlega búin að reikna með því

  að vakna STEINDAUÐ í morgunsárið.Whistling

  Já, þvílík ekkisens vonbrigði.Crying

  Aðeins eitt sem gleður hjarta húsfreyju nú, þennan grámaða

  laugardag fyrir Jól, sem ALDREI átti að renna upp:

  Hún er löngu BÚIN að kaupa allar jólagjafir, senda öll kort,

  og baka herlegar og ljúfengar piparkökur.Wink

  Hlakkar meira að segja svolítið í henni, yfir óförum

  "heittrúa" heimsendasinna, sem eiga nú eftir að kaupa

  allar jólagjafir sínar, redda ræfilslegu jólatré upp á skitinn 1 metra á hæð,

  hin öll háu og glæsilegu tré löngu uppseld...eitt þeirra stendur

  fullskreytti í stofu húsfreyju, og verða síðan að eyða letidögunum

  milli Jóla og Nýárs, í "Nýárskortaskrif"!Devil

  HAH!

  HEIMSENDI!

  HÚMBÚKK!

  Góðar stundir og heimsendakveðjur.


Bráðum koma blessuð.......eða nei! Ekkisens heimsendi!

 2009-06-06-Earth-on-fire Systurdóttir hringdi.

  "Sigga, þetta er stórfurðulegt!  Það hringsóla hér 40 svartar og hvítar

  dúfur hring eftir hring niður í bæ.  Eru þær þá ekki að boða

  heimsendi þann 21, ha?Woundering

  Húsfreyja gjóaði augum á málgagnið sitt, sem var að vandræðast

  með heilu heilvísku tonninn af dauðri síld í einhverri fjöru á Snæfellsnesi.Errm

  "Kolgrafarfjara!  Hvurslags dauðadóms- og heimsendanafn er það"?,Pinch

  hugsaði húsfreyja, um leið og hún svaraði systurdóttur að bragði: 

  "Nú og jaso, bara við það að bresta á,

  "heimsendinn", og ég sit þá uppi með einhver andsk... haug af

  "ógefnum" jólagjöfum...og sem ég losna þar með ALDREI við"Angry.

  Systurdóttir hló; "Ætli það skipti þá miklu máli, frænka, verði heimsendi.

  En ég er ekki að trúa því hve löngum tíma ég er búin að eyða í að

  góna á þessar dúfur... ég meina, skárra að nýta tímann betur

  fram til 21, en í eitthvert dúfugláp".Wink

  Jú, húsfreyja gat vel samþykkt það, enda sjálf búin að

  eyða drjúgum tíma í BIÐ á herlegri bráðamóttöku landsmanna

  inn í Fossvogi...eða rúmum 8 klukkutímum....á tveimur dögum.Sleeping

  Tengdamútta hafði mætt "farlama" að norðan, í keng, á

  meðan tengdapápi hafði farið BABÚ inn á hjartadeild með

  lífshættulega gangtruflun. 

  Húsfreyja spítalaðist!

  Heimsótti tengdó á hjartadeild, sem var "stuðaður" í réttan takt..Wink

  en allt í tjóni og tjöru með tengdamúttu.Undecided

  Komst með herkjum á salernið, með því að staulast fetið

  í einum keng, dragandi nefið eftir gólfinu.Frown

  Húsfreyju var nóg boðið, og fór með konuna á slysó.... og BEIÐ.

  Lítið að hafa upp úr fyrstu ferð.

  Konan SLITIN í mjöðm!

  Je RÆT!Angry

  "Hún þá "slitin" frá mjöðm og niður í ökkla, með "ofurþyngsli" á

  nefi sem aukaverkun".Pinch

  Húsfreyja gafst ekki upp og fór aftur með tengdamúttu sína á

  bráðadeild Fossvogs.

  Þar skarpur læknir á vakt sem skoðaði konu vel og vendilega,

  og var nokkuð fljótur að finna líklega skýringu á ofsakvalræði

  tengdó.

  Hrikalegt festumein í vöðvum fyrir ofan mjöðm.W00t

  Sterasprauta...og málið var dautt!

  Tengdó að hressast með hverjum klukkutímanum sem líður,

  og skutlaðist með húsfreyjum, tengdapápa, og barnabörnum

  eina herlega verslunarferð upp á Korputorg, og keypti jólagjafir....

  sem þá líklega "verða heldur ekki gefnar", hafi systurdóttir rétt fyrir sér.Errm

  Jamm.

  Heimsendi! 

 Þann 21. desember.

 Allt búið!

 Dauði og djöfull..og full flaska af Rommi....

 eða nei, það var vandræðagangurinn

 í "Gulleyjunni".Whistling

 En ENDALOK alls sem er, var og verður

 hér á móður Jörð.

 Tappinn úr og...puuuuuðððððrrr,

  jörðin þeytist eins og blaðra út í geim.

  Tarna er ljóta.

  Og húsfreyja búin að kaupa ALLAR þessar jólagjafir!Pinch

  Meira að segja búin að skrifa og senda slatta af jólakortum.

  Hvorki verið tími til að leggjast yfir lífsgátuna einu : HVER SKAPAÐI GUÐ?,

  né finna skynsamleg svör við spurningum 11 ára djásnsins frá því fyrir

  fimm árum:" Mamma, var GUÐ LENGI að skapa heiminn"?  Og" mamma,

  var HÚN Guð ekki ÞREYTT þegar hún skapaði allan heiminn"?Shocking

  Allt óleyst hjá húsfreyju, svaravant og í hönkGetLost.

  Allur tíminn farið í að finna fallegt og ódýrt skraut á jólapakkana,

  sem ALDREI verða opnaðir, skápaþrif, gluggaþrif og vinnu.

  Jæja.

  Íbúðin húsfreyju verðu altént glansandi hrein,

  þá hún mætir sínu skapadægri og fallega skreytt jólagjöfum sem

  aðrir áttu að fá.Sideways

  "VIÐ MUNUM ÖLL, VIÐ MUNUM ÖLL DEYJA", er gólað í fréttatíma

  sjónvarps...og pláneta-X bak við sól að brjálast...ef hún er þá til...

  og pólskiptin eru að koma eins og elding í hausinn á okkur...Pinch

  og einhver hellingur af fólki er svo skynsamt að geyma jólagjafakaupin

  til 22. des...sem að öllum líkindum...mögulega...nokkuð öruggt...svona

  lætur að líkum...rennur ALDREI upp!Whistling

  Svo segja skarpir heimsendaspámenn!

  OG ÞEIR SNILLAR KLIKKA ALDREI!Devil

  Húsfreyja er armur og vesæll heimskingi sem trúir af bjartsýni

  á framtíð með Jólum á því herrans ári 2012.

  Óð í það eins og vitfirringur að kaupa jólagjafir...og verra:

  SKRIFA JÓLAKORT!Pinch

  Í það að BÍÐA rúma 8 tíma á slysó.Crying

  Og HEIMSENDI ekki á morgum heldur hinn.W00t

  Nei, húsfreyja stígur ekki í "heimsendavitið".

  Mun skárra hefði verið að slá lán fyrir ferð í "kirkjugarðinn

  á Tortola", og eyða 21. des á notalegu rölti á milli "nýtekinna grafa",

  í sól og hita, á stuttbuxum og ermalausum bol, og drekka af stút

  eðal rauðvín frá Frankaríki frá því 1998...(þegar jörðin átti enn einhverja

  framtíð fyrir sér!)Devil

  Jamm, húsfreyja beygir höfuð sitt af skömm yfir fyrirhyggjuleysi sínu

  og "heimsendakæruleysi"....Errm

  Væri svo alveg eftir henni að fá SLAG þann 20. des., steindrepast og missa

  af öllu stuðinu þann 21.des.Angry

  SJÍSS!  Fengi ekki einu sinni sómasamlega jarðarför...Angry

  Góðar stundir og njótið ykkar sem allra best þessa síðustu tvo daga jarðar....

  en ef svo "ólíklega" vill til að ekki verði af heimsenda: 

  GLEÐILEG JÓL ÖLL SEM EITT! Tounge


mbl.is Heimsendir eða hátíð?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Niðdimm heilaþoka og og drungalegur minnisdumbungur....

 funny_money_mousepad-p144277400410844479envq7_400 ....að hrjá bæði Halldóri og Bjarna.Frown

  Enda ekki gott að muna eitthvert undirskriftapár

  á risastór lán, sem "pottþétt EINHVER annar" veittii

  hinum og þessum "Myllusteinum"...eða ekki...

  nú eða muna einhverja dagsetningar þegar eitthvað merkilegt

  í fjármálum átti sér stað.Shocking

  Svo var auðvitað upplýsingum haldið "frá" lykilpersónum

  innan bankans, en það truflaði samt ekki undirskriftir

  pappírslánanna eða risa lánveitingarnar á nokkur hátt.Whistling

  En samt ekki gott að muna  hvort það voru Þessi og Hinn

  sem skrifuðu undir, á meðan þeir Einhver og Annar samþykktu lánin...

  ..en ALLS ekki ég sjálfur...ég þekki bara skriftina mína...eða mig

  minnir að hún sé svona.... en þó get ég ekki verið alveg öruggur

  þar sem ég veitti ekki lánið.Tounge

  Allt svona frekar óljóst og þokukennt.... kannski var ég bara ekkert

  vinnunni þennan dag, heldur með kúnna úti að borða

  á Bæjarins Bestu, og síðan hef ég "óvart" krotað eitthvað

  á þessa lánsveitingu, á meðan við kúnninn meltum pylsurnar

  yfir instant kaffi og konfekti....ég bara man þetta ekki alveg.... en Þessi

  hefur þá haldið að ég væri að veita lánið og Hinn gengið í það

  að ganga frá því....en mig minnir samt að Einhver og Annar hafi

  veitt lánið...svona óljóst.Devil

  Og hver man nákvæmar dagsetningar, þegar maður er aðeins

  umboðsmaður, að veðsetja pappírspeninga í greiðaskyni?Halo

  Neipp!

  Þetta er óþarfa nöldur, tuð og yfirheyrslur hjá "sérlegum".

  Enda bara peningar sem eru í húfi, og hverjum er ekki skítsama

  um þá?Shocking

  Hvort eð er allt AFSKRIFAÐ! 

Eða bætt ofan á skuldaokið heimilanna, sem skattur á sykur,

  eða einhvern annan "óþarfa" hjá pöblinum.

  Enda HVER man svona hrikalegt klúður, fjórum árum seinna.

  Best að gleyma svona rugli sem fyrst, svo hægt sé að

  hefja auðsöfnun á ný sem fyrst.

  Plokka af lítilmagnanum það litla fé sem hann hefur á milli handanna,

  og koma sér upp einkaþotu og snekkju fyrir árslok 2013.Tounge

  Jamm, óminnið getur komið sér bísna vel.

  Góðar stundir og MUNIÐ að borga skattana ykkar.Wink

 

 


mbl.is Þokukenndur dagur í febrúar 2008
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þar fór það.

black-and-white-chocolate-earth-funny-Favim.com-502499  Litla Frón sokkið, týnt og tröllum gefið, sjálfsagt

  ekki seinna en kl. 21:12 þann 21.12.2012.Angry

  Jamm og lönd öll og heimsálfur móður Jarðar...

  piff...paff... BÚIÐ SPIL!

  Húsfreyja og allt hennar slekt, ásamt jarðarbúum öllum (plús eða mínus 200 manns)

  flutt með hraði í "Sumarlandið" þar með.... ja, nema ef svo ólíklega vildi til,

  að henni lánaðist að kreista hálfrar milljón króna lán út úr

  bankastjóra sínum og skreppa í eina herlega "heimsendaspásferð"

  til litla þorpsins Bugarach í Frakklandi (íbúat. 200),

  með sína fjölskyldu korteri fyrir Jól.

  Þá betra að hafa flugmiðana "one way tickets", ef allar verstu spár rætast,

  og húsfreyja skyldi daga uppi í litla, franska þorpi þessu með

  skyldfólki sínu.Devil

  Bara einn hængur á.Crying

  Tvö hundruð hræðurnar í Bugarach vilja ekkert með húsfreyju og

  hennar líka hafa, í sínu þorpi síðustu vikuna fyrir Jól.Errm

  Biðja frönsk yfirvöld í lengstu lög að bægja frá óvelkomnum

  ferðalöngum, í leit að frestun á "Sumarlandsreisu"  og lengra

  og hamingjuríkara lífi á móður Jörð, frá þorpi sínu.

  Sjálfsagt búið að endurskíra öll stúlkubörn og drengi upp á nýtt

  þar uppi við Pýreneatinda; Evur og Adamar allt saman, svo

  afkomendur tvöhundruðmenningana verði verðugir arftakar mannkyns á jörðu.Halo

  Að vísu verður sjálfsagt eitthvað vesen í gangi fyrst eftir hinn

  "endanlega" dag hinna, sem ekki auðnaðist að fæðast í Bugarach, 

  svo sem rafmagnsleysi, matarskortur, sjúkdómar, pestarfár, kuldi og

  vosbúð, en það kippa hinir úrvöldu tvöhundruð sér ekki við.

  Neipp, græja þetta sjálfir upp á eigin spýtur.Cool

  Bara verra að hafa einhverja villuráfandi, ókunnuga fáráða, sem hvort eð er

  áttu pantaða ferð í "Sumarlandið", og sem jafnvel öllu myndu vilja ráða við

  uppbyggingu menningar og fjölgun á mankyni.W00t

  Svo líklega verður bara lokað fyrir "jólaösina" í Bugarach

  í seinni partinn í Desember.LoL

  Vegatálmar með alvopnuðum lögreglumönnum við

  þjóðveginn inn í þorpið, sem og við gönguleiðir um

  tinda og fjöll í nágrenninu.Whistling

  O, jæja. 

  Húsfreyja sekkur þá bara með litla Fróni...eður ei.

  Verður að viðurkenna, húsfreyja, að hún er ekki sérstaklega

  trúuð á "heimsenda" þ. 21.12.2012, kl.21:12Devil, fremur

  en nokkurn annan heimsenda sem spáð hefur verið,

  með reglulegu millibili, af og til allt frá því að

  mannkyn hætti að príla í trjám, og tók að yrkja jörð.

  Því þeir hafa komið og farið, hver "heimsendinn" af fætur öðrum...

  öld eftir öld...alveg hárnákvæmt dagsettir...en

  hér dólum við enn, þrátt fyrir það....."endalaust"Tounge.

  Mun líklegra að við séum að sigla inn í nýtt tímabil, hér á

  móður Jörð, þar sem mannkyn núllstillir sig aftur inn á

  "móðurina" og sínar eigin innri andlegu breytingar,

  eða það er tilfinning húsfreyju.

  Jú jú, það verða náttúruhamfarir eftir sem áður, enda "móðirin"

  orkubolti sem skekur okkur og hristir þá henni þóknast, og

  blæs eldi og eymyrju af og til af einskærri gleði yfir því að vera til.

  En mannkyn er ekkert að farast (plús eða mínus 200 hræðurTounge),

  þennan desembermánuð, fremur en nokkurn annan mánuð

  í fortíð, nútíð eða framtíð, telur húsfreyja...altént nokkuð

  örugg þar til slokknar á sól eða tungl tekur upp á því að

  hrynja niður á móður Jörð.

  Nema kannski að við þurfum að hafa áhyggjur af .....

 21.12.2021W00t!

  Góðar stundir og megi allir ykkar "heimsendar" verða friðsælir,

  og í guðanna bænum verið ekki að flækjast til Frakklands í

  Desember, það er bara endemis "Heimsendavesen"Devil! .


mbl.is Eini staðurinn sem stendur af sér heimsendi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vér fjármálavitleysingjar ...

amazing+funny+birds+pictures+images+2  ...og pólitískir "halanegrar" hér uppi á Litla Fróni,

  sem treystu og trúðu árum saman á flokk

  einn pólitískan sem kenndi sig við sjálfstæði,

  megum nú bíta í það súra epli, að hafa skitið upp á

 bak og treyst kolvitlausum flokki til að stjórna oss....

 ÁRUM SAMAN.Angry

  Vér armir rugludallar í pólitík, trúðum í blindni á, að flokkur

  sjálfstæðis myndi leiða oss kreppta og óðaverðbólguþjáða

  fram til jöfnuðar, velferðar, frelsis og sjálfstæðis.

  VÁV!  Vorum við arfaheimskir og auðtrúa.Crying

  Uppskárum bankahrun, djúpa kreppu og aðför að velferðarþjóðfélaginu.

  Fimmföldun, lágmark á skuldum okkar, minni kaupmátt,

  hækkað vöruverð, hrikalegan niðurskurð í heilbrigðis- og menntamálum.

  Öldungar gerðir að "annars flokks" þegnum.... öryrkjar og fatlaðir

  "skornir niður", vegagerð skorin niður osfr. osfr.

  Og flokkur sjálfstæðis... jamm flokkur sjálfstæðis, hvað gerði hann?

  GUÐ BLESSI ÍSLAND!...var eitt.Halo

  (Flestir vita að Guð hjálpar þeim sem hjálpa sér sjálfir.)

  Gerðu "alltaf-að-vara-við-hruni-þegar-hann-var-ekki-að-lofa- sterka-

  stöðu-frónverskra-banka" SEÐLABANKASTJÓRA að ritstjóra yfir

  helsta málgagni sínu, var annað.Whistling

  Og í þriðja lagi...... í þriðja lagi...öööö......?Shocking

  Húsfreyju dettur bara ekkert "hið þriðja" í hug.

  Núverandi ríkisstjórn tók við VERSTA búi allra tíma,

  þegar hún settist á valdastóla.

  Lífróður verið róinn fyrir vora frónversku þjóð...sumt vel gert...

   annað miður....og sumt ekki einu sinni komist til framkvæmda.Pinch

  Samt er þessi ríkisstjórn heilagrar Jóhönnu Sig.,

  stödd á toppi Everestfjalls í hennar huga,

  hvað dugnað og vinnu fyrir "þjóðina" varðar,

  á meðan fráfarandi ríkisstjórnir sjálfsæðismanna, lafa á gömlu morknu

  akkeri úr skipsskaða, út í Faxaflóa þar sem hann er DÝPSTUR.Angry

  Segi Villi hinn skarpi framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins,

  að litla Frón sé orðið nyrsta Afríkuríkið, er það sjálfsagt hárrétt hjá honum.

  Hann ætti að vita það.

  Sjálfstæðisflokkurinn kom okkur í þessa eðal stöðu.

  Svo mörg voru þau orð.

  Góðar stundir og munið að brýna spjót ykkar fyrir næsta

  AfríkuríkjafundTounge.


mbl.is Segir Ísland nyrsta Afríkuríkið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bévískur þotuhreyfill....

Stormy_Weather  ...í gangi inni á baði", hugsaði húsfreyja rasandi

  þegar hún reis úr rekkju í morgunsárið.W00t

  Hávaðinn var ærandi, og versnaði um helming

  þega húsfreyja kom fram úr svefnherbergi sínu.

  Enda sat læðuræfillinn lúpulegur á gófinu fyrir framan

  baðherbergið, eyrun þétt að höfðinu og starði örvæntingafull

  á svefnuga húsfreyju og baðherbergisdyr til skiptis.Crying

  Inni á baðherbergi blés norðansvöl gola upp á

  5 metra á sekúndu, á meðan 45 metrar á sekúndu geysuðu

  í argvítans lofttúðunni, með djófulgangi og helvískum hvin.Angry

  Húsfreyja ræsti 11 ára djásnið, og þrælaði henni í skólann.

  "Á ég að FARA í skólann í SVONA vondu veðri, mamma"?Shocking

  Og síðan: "Má ég ekki vera heima í dag, mamma"?

  GLÆTAN!GetLost

  Húsfreyja og móðir 11 ára djásnsins var miskunnarlaus.

  Enda alin upp í mesta rokrassgati litla Fróns....

  Vestmannaeyjum fyrir gos.

  "Bara smá vindur, gullið mitt, ég skutla þér í skólann"!Whistling

  Djásnið sá að móðurinni varð eigi hnikað, dæsti mæðulega og hóf að

  hlaða utan á sig hlýjum fötum.

  Og upp í skóla ók húsfreyja djásni sínu.

  Fékk að vísu míni slag, þegar vindhviða upp á 47 metra reif nærri

  því bílhurð hennar af hjörunum úti á hennar eigin bílastæði,Pinch

  og annað heldur stærra mínislag, þegar fílefldur karlmaður upp á 2 metra á hæð og á

  að giska 97 kíló FAUK fram hjá henni eins og  tuskudúkka,W00t

  með 10 ára dóttur í eftirdragi á skólalóðinni.

  "Mamma, SKO, svo ertu að láta mig mæta í skólann", 11 ára djásnið

  fullt vandlætingar.Errm

  Húsfreyja stóð FÖST fyrir, í báða fætur, hélt djásni sínu þétt að

  hlið sér, og lét engan helvískan vindblástur frá Kára, ná

  að svipta sér úr stað.

  Tók Eyjapæjuna á rokgassann, skáskaut sér áfram og vatt

  upp á sig eftir því hvernig vindurinn blés, svo hvergi náði Kári taki

  á henni eða djásni.

  Djásnið rasandi á því, hvernig lágvaxinni 64 kílóa móðurinni tókst að

  snara þeim báðum að anddyri skólans, án þess að takast á loft,

  eða fjúka tvist og bast líkt og fyrrnefndur faðir.Cool

  "VÁV, mamma"!

  "Hva, þetta er nú bara smá gola" sagði húsfreyja og glotti til

  foreldra sem stóðu móðir í anddyrinu, og höfðu fylgst með

  "skólalóðahlaupi" húsfreyju með djásnið.

  "Bára!  Þú ert LIFANDI" hrópaði hrifin skólasystir djásnsins.LoL

  Húsfreyja kvaddi með hraði, og komst aftur áfallalaust að bifreið sinni

  og heim.

  Það móaði í dagsbirtu á austurhimni þegar húsfreyja kom heim,

  enda klukkan að halla á hálf níu.

  En þegar húsfreyja leit út um glugga sína til vesturs,

  blasti við niðamyrkur.Shocking

  Ja, hvur asskotinn?

  Dagrenning austan en niðdimm nótt vestan?Woundering

  Húsfreyja mændi út um glugga sína, snaraði sér síðan

  út á dyrapall.

  Neipp, hún var ekki komin með illvígan "vesturblindusjúkdóm",Tounge

  heldur hafði salt og drulla í massavís lokað fyrir skjái hennar

  til vesturs, svo hvergi sást út.Pinch

  En vesturhiminn var langt frá því að vera bjartur...sei, sei nei.

  Illvíg grásvört ský og þrútið loft.

  Húsfreyja ákvað að fresta fótaferð með hraði,Halo

  snaraði sér inn í rúm sitt, og steinsofnaði von bráðar.

 " Morgunstund gefur...blablabla...."  alvitlaus málsháttur þetta.Pinch

  "Morgunstund gefur væran svefn, örþreyttu vesturblindu fólki"LoL

  Mun betra.Wink

  Það var komið undir hádegi, þegar húsfreyju þóknaðist að opna augun aftur.

  Þotuhreyflarnir á baðherberginu voru orðnir tveirW00t, þegar húsfreyja

  þvoði og þurrkaði hár sitt.

  Læðan var horfin undir sófa, gjörsamlega eyrnalaus af angist og ótta.Crying

  Veðrið heldur að slá í, og  albrjálað að gera hjá

  slökkviliði og björgunarsveitum um allt land.

  Húsfreyja sló af ferð á Landsspítalann á fræðsluerindi....

   Sæbrautin ófær, Laugarvegur lokaður.

  Frestaði einngi ferð í Bónus, bóndi náði í djásnið í skóla og

  fóstursonur mætti veðurbarinn í heimsókn og mat.

  Tengdó hringdi áhyggjufull yfir fréttum úr höfuðborginni.

  "Væsir ekki um okkur, innandyra, fyrir utan djö... þotuhreyflana

  inni á baði og mjög takmarkað útsýni til vesturs".Angry

  Tengdó hress í snjóbyl fyrir norðan.

  Jamm, ekki afleitt að vera í fríi í svona norðanáhlaupi.

  En húsfreyja ætlar að bjalla í systur sína í Þolló.

  Systir skrapp nefnilega í SUMARbústað fyrir helgi.....Whistling

  ... jepp, ÚT Í EYJAR!Devil

  Húsfreyja spáir "þokkalega góðum blæstri" á sumarbústaðarferð

  systur....kannski svona 60-80 metrum í bestu vindhviðum KáraDevil.

  Góðar stundir og megi allir ykkar "þokuhreyflar" hljóðna þá kvölda tekur

  og vesturgluggar hreinir verða.Halo

 


mbl.is Sjósund í ísköldum norðangarra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Helvískir ræningjar....

  funny-fish-lady3...þessir andsk... Frónbúar!Angry

  Hvernig í ósköpunum dettur okkur,  þessu rumpupakki og ruslaralýð að

  vaða í það að VEIÐA fiskinn, sem svamlar í sjónum í kringum

  land okkar.Shocking

  Mætti halda að við, þessir frónversku "þorskhausar" teldum

  fiskveiðar vera okkar aðal atvinnugrein, þegar ALHEIMUR veit,

  og sér í lagi norskir eðalsjómenn og evrópskir Makrílsnillar,

  að Frónbúar gera út á "Eldgos" og helvíska fylgikvilla þeirra, ergo truflanir á

 farþegaflugi, ásamt skyrframleiðslu og lopapeysudútli, þegar best lætur.Whistling

  Fiskveiðar bara "HOBBÝ" hjá þessu ruplandi og rænandi pakki uppi á litla Fróni.

  Og það er bara djö... kjaftæði, að Makríllinn hafi fundið upp á því sjálfur

  að synda inn í frónverska hafsögu.Angry

  Fylli þar alla firði og já, hafnir,

  svo að nóg sé að skella út spún á stöng af bryggjusporði,

  og BINGÓ, Makríll mættur á steikarapönnuna.Halo

  Króknaðir steinbítshausar og grámyglaðir skötukjaftar...þvílíkur vaðall.GetLost

  Ekkisens þjófahyskið upp á litla Fróni, sjálfsagt búið

  að uppgötva hvernig framleiða skal "Makríl-fermón"Devil úr

  djö.... eldfjallaösku, hveravatni og "dassi" af skyri, sem þeir

  dúndra síðan í þúsunda tunnutali í hafið kringum litla Frón og...

  VOILA!  MAKRÍLLINN MÆTIR!Tounge

  Og þjófabálkur sá er kallar sig sjómenn á litla Fróni, vílar heldur

  ekki fyrir sér að gefa skít í atvinnugreinina.W00t

  Þegar ALVÖRU fiskveiðimenn frá veldi norska kóngsins til dæmis, eru að veiðum,

  eru þeir allir uppáklæddir í skæran, níðsterkan og vatnsheldan hlífðarfatnað,

  á meðan þeir frónversku mæta jafnvel til sjós á gallabuxum, í

  duggarapeysum...og alverst, í andskotans frónversku lopapeysunum!Pinch

  Svo kallar þessi rummungalýður sig sjómenn og DIRFIST að veiða

  eðalfisk allra eðalfiska, sjálfan MAKRÍLINN!Angry

  Sjá andskotans Frónbúarnir ekki, að Makríllinn er vel og vendilega

  MERKTUR Norsurum, Skotum og fleiri skelegum evrópuþjóðum?

  Afhverju halda Frónbúar til dæmis, að Makríllin sé með RÖND á rennilegum

  skrokknum?Shocking

  Þetta er að sjálfsögðu nýjasta "strikamerki" norska kóngsins,

  sem ber að virða og akta með bugti og beygingum, og er

  vinsamleg "konungleg ábending" til allra sem fiskveiðar stunda,

  en eru svo ólánsamir að hafa

  eigi fæðst undir evrópskri óskastjörnu eða á norskri grund,

  um að snáfa 170 sjómílur til hægri á veiðiskipum sínum,

  sjái þeir glitta á Makríl á svamli.Whistling (Þá skárra að hæ. hlið skips,

  snúi eigi að LANDI....hehehehe).Devil

  Skiptir engu þótt veiðiskip ræningjalýðsins, séu í eigin

  fiskveiðilögsögu.

  Suman fisk MÁ ALLS EKKI VEIÐA!Angry

  Norskir EIGA HANN!

  MAKRÍLINN.

  ÖLL HELVÍSK ÞÚSUNDIN AF MAKRÍLTONNUNUM, sem í kringum landið

  lóna, í staðinn fyrir að snauta heim að Noregsströndum.GetLost

  Svo SKAMM, frónversku Makrílveiðiþjófar og bófar.

  Þið eruð að RÆNA arma og fátæka olíufrændur okkar fiskinum.Whistling

  Ja, svei.

  Tarna er ljóta fréttin.

  Góðar stundir og megi föstudagssoðningin bragðast vel.LoL


mbl.is Kallar Íslendinga ræningjaþjóð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Árans ekkisens óheppni....

funny-pictures-lightbulb-cat-get-a-life  ....alltaf hreint að elta húsfreyju og hennar

  eðal familíu.Angry

  VESEN með höfuðstöfum og stóru "vaffi"!Pinch

  Hér hefur húsfreyja ekki komist að bloggborði sínu

  svo dögum skiptir, fyrir myljandi roki og frostakulda innandyra...brrrr!Crying

  Á heimili húsfreyju tóku nefnilega "sparperur" að "springa"

  í síðustu viku!W00t

  JEPP!

  Fyrst vesælar 40 vatta, 3 í röð...piff...paff...púff...en síðan hljóp

  andskotinn í spilið...FJÓRAR....BANG...BÚMM...KRASTJH...piff!Angry

  Jamm stórar 60-80 vatta perur bara steindauðar sisona.

  SJÖ stykki.Errm

  Helvískt kvikasilfursdrasl....Angry.

  Hús húsfreyju staðið ÖLLUM, mönnum sem dýrum, OPIÐ

  þar með síðustu daga.GetLost

  Fjölskyldan húsfreyju hefur þar með rölt í Indíánatakti...æææjajaja....eieieijaja...

  íklædd 10 lopapeysum, með króklopna fingur, skurðstofugrímur og grýlukerti á nefum,

  um íbúðina í "10 cm þykku ryklaginu" á gólfunum, til að koma í veg fyrir

  ótímabært andlát af völdum skítakulda og kvikasilfurseitrunar.Halo

  MÁ EKKI SÓPA!Angry

  Má ekki RYKSUGA, sei, sei nei!Pinch

  Og Guð hjálpi þeim, sem dirfist að skúra.Whistling

  LOFTA ÚT!!! er mottó heimilisins.

  Heimiliskötturinn er stórmóðgaður....enda búinn að hanga

  í kviðbeisli 20 cm. yfir stofuborðinun síðustu daga.W00t

  Er aðeins slakað niður á borðið tvisvar á dag, á

  matmálkstímum.Tounge

  Gengur ekki að læðugreyið drepist af kvikasilfureitrun....eða hungri!

  Ellefu ára djásninu finnst ástandið á heimilinu MJÖG ÁHUGAVERT,Woundering

  og ætlar að rita ritgerð upp á 15 síður fyrir Íslenskufræði sín,

  um SPARPERUR og áhrif þeirra á geðheilsu foreldra.Whistling

  Húsfreyja er hinsvegar öll í því að finna LAUSN á málunum.

  Er komin í samband við "perusmyglara"....fær hjá honum eðal VENJULEGAR

  "orkueyðandi" Osram GLÓ-perur, 10 kíló á 1588 kr. kílóið, í hús á morgun...Cool

  meira að segja smyglarar þurfa sín "helgarfrí"!LoL

  En kötturinn verður að HANGA þar til í fyrramálið, þó bóndi

  hafi loks skúrað íbúðina í dag, og húsfreyja lokaði öllum

  gluggum og dyrum KYRFILEGA.Devil

  Húsfreyja fær ekki VOTTORÐ frá heibrigðiseftirlitinu fyrr en

  á morgun, eftir að "hreinsunarsérsveitin" er búin að

  leita dauðaleit að villuráfandi kvikasilfri í íbúð hennar, og

  gefa grænt ljós á áframhaldandi búsetu......eða öðrum kosti

  ráðleggja húsfreyju að selja Viðlaga-og Hamfarasjóði íbúðina.Tounge

  Hehehehehehehe....stóðst ekki mátið, húsfreyja.Grin

  Var að lesa "sérlegar leiðbeiningar" um hvernig henda

  beri sprungnum "sparperum".Shocking

  Jamm, og nýbúið að BANNA glóperur...ja sei!GetLost

  Er ekki lífið dásamlega skemmtilegt og skrýtið á plánetunni Jörð?

  En góðar stundir, og megi allar ykkar perur loga að EILÍFU.

 


Úti á túni.

accident  Betra hefði verið að jafna launmismun

  milli kynjanna, er mat húsfreyju.

  Henni er slétt saman hvort hún ekur um götur Skúla, Geirs

  Egils eða Njáls, þá hún leitar í örvæntingu að bílastæði,

  þegar hún ætlar að kíkja í miðbæinn.Pinch

  Og hún er stórlega efins um að henni gangi betur

  að finna bílastæði í túnunum þó einhver

  slatti þeirra hafi verið endurskírður í höfuðin á

   Katrínu, Guðrúnu, Þórunni og Bríeti.Whistling

  Og næsta víst að húsfreyja verði sem villuráfandi geit í niðdimmri þoku

  á fjöllum, verði hún boðuð í kaffihitting niður í "Katrínartún"!Tounge

  Meeeehehehe.Devil

  Æðir sjálfsagt beina leið upp í Grafarholt þar sem götur

  og stræti eru öll kennd við Gvenda, Guðríðar, Ólafa, Andrésa og

  reyndar Katrínu.

  Ergo Katrínarlind.

  Ekki efnilegt það.

  En "borgarfeðurnir" með Gnarrinn í forystu mega sosum

  endurskíra götur Reykjavíkurborgar að vild, tvist og bast, hvað húsfreyju varðar.

  Bara gaman að því, en mættu svona í leiðinni huga

  að launajafnrétti, enduruppbyggingu menntakerfisins í borginni (eftir

  mergjaða niðurskurðinn og niðurrifið sem fylgdi kreppu og hruni) og

  að því að finna lausn á húsnæðisvanda fátækra.Whistling

  Nei, bara svona uppástunga frá húsfreyju.

  Hún getur síðan alveg hugsað sér að eiga heima í "Gnarrstræti" eða

  við "Jóhönnusiglind".....eða jafnvel við "Steingrímsbrunn".LoL

  Dregur aðeins línu við tvennt, þegar kemur að götuheitum.

  Hún myndi aldrei samþykkja að búa við "Dabbakóngstún" Sick né heldur

  " Martröð"(sem reyndar finnst á Dalvík).......eru reyndar

  nánast sama nafnið merkingalega, þessi tvö að mati húsfreyju.Devil

  En borgarbúum óskar húsfreyja til lukku með ný kvenleg nöfn

  á götur sínar.

  Góðar stundir.


mbl.is Götuheitum breytt í borginni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

..en svona á léttari nótum...og af óheppnum gluggamígandi nátthröfnum.

 

FunnyPart-com-pee  ég held að bráðum verði allt í lagi

  af því nú er allt í ólagi.

  ég held að bráðum hefjist lífið

  af því nú er allt svo dauðalegt.

                        Ólafur Haukur Símonarson.

 

  Hann var ekki dauðalegur 101-íbúinn sem stökk framúr bóli sínu

  um miðja nótt, á Adams-klæðum einum saman og

  réðst að þremur "stofugluggamígandi" nátthröfnum

  með sveðju á lofti og rasskellti alla þrjá.LoL

  Húsfreyja er hrifin af framtaki þessu og elju 101-íbúans,

  og vorkennir hinum hlandsprungnu gaurum lítið.

  Bara HEPPNIR að sá kviknakti trompaðist ekki alveg

  yfir hlandblautum stofuglugga sínum, og snéri ei egginni

  að óæðri endum þeirra.....eða þaðan af verra sneiddi framan

  af "hlanddrjúpandi djásnum" þeirra.W00t

  Enda hefur þjóðin öll flissað og glott yfir óförum pissudúkkanna,

  og haft fulla samúð með eiganda útmignu stofuglugganna,

  Því sú er tíðin löngu liðin, þá Frónbúar brúkuðu hland sitt til

  hinna ýmissu þrifa, svo sem hárþvott.

  Þykir lyktin af þeim vökvanum svona heldur stæk og leið,

  og því allir komnir í vel angandi sápur og gluggavökva nú til dags.

  Hvort SVEÐJUR séu réttu tólin til að hafa hemil á stofugluggamígandi

  og undirgangaælandi nátthröfnum, lætur húsfreyja kyrrt liggja.....Whistling

  þó hún efist um að þessir þrír leggi aftur í hlandlosun

  á glugga 101-íbúans með sveðjuna,Wink

  þá telur hún það bísna flott trikk að ráðast að hlandhaugum

  gluggavilluráfandi, kviknakin með æðislegt blik í augum og ekki verra

  að láta mergjað víkingaorg fylgja með.Devil

  Hlýtur að vera ÆGILEG upplifun, og afspyrnu ÞVAGHEMJANDI

  fyrir villuráfandi þvaghauga!Tounge

  Væri máske ráð að íbúar í 101 tækju sig saman, og réðust allir að

  þeim útimígandi allsberir og organdi á háa séinu næstu helgar.LoL

  Gæti aldeilis glætt bissnessinn á "Þvagteppudeild" Landspítala

  Háskólasjúkrahúss, svo jafnvel yrði hægt að hækka laun

  almennra heilbrigðisstarfsmanna um 20% á næstu mánuðum.Grin

  Hehehehehe, skemmtileg frétt atarna.

  Góðar stundir og munið að "losa sokkinn" innandyra og helst á salernum

  um helgar.Cool

 

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband