Svekkt og svikin!

 scale ENGINN HEIMSENDI í gærAngry.

  Húsfreyja beið með öndina í hálsinum allt gærkvöld,

  eftir aldeilis dúndrandi heimsendi.

  Fékk engan.

  Var meira að segja búin að skreyta jólatréð löngu fyrir

  miðnættið, svo henni og 11 ára djásninu

  auðnaðist að berja fallegt jólatré augum í hinsta sinn á móður Jörð.Joyful

  Klukkan sló-miðnætti kom og fór.

  Móaði ekki í svo mikið sem eitt stjörnuhrap á himni.W00t

  Ekki einu sinni smá "hristingur" upp á 2,3 á Richter.Pinch

  NICHTS!

  NADA!

  NOTHING AT ALL.

  Grár og gugginn 22. des. birtist um hálf ellefuleytið,

  þá húsfreyja var að störfum.

  Ekkert "heimsendalegur" sá 22. þessa mánaðar.Angry

  Meira svona þreyttur og alveg búinn af skorti á dagsbirtu.

  Svo húsfreyja er svekkt og svikin...og sprelllifandi.Shocking

  Hér var hún búin að reikna með glæsilegu "heimsendasjónarspili",

  X-stjörnum að baki sólar að springa eða jörðina að vippa sér

  einn kollhnís í "pólarskiptum".

  Og ekki síst var hún fastlega búin að reikna með því

  að vakna STEINDAUÐ í morgunsárið.Whistling

  Já, þvílík ekkisens vonbrigði.Crying

  Aðeins eitt sem gleður hjarta húsfreyju nú, þennan grámaða

  laugardag fyrir Jól, sem ALDREI átti að renna upp:

  Hún er löngu BÚIN að kaupa allar jólagjafir, senda öll kort,

  og baka herlegar og ljúfengar piparkökur.Wink

  Hlakkar meira að segja svolítið í henni, yfir óförum

  "heittrúa" heimsendasinna, sem eiga nú eftir að kaupa

  allar jólagjafir sínar, redda ræfilslegu jólatré upp á skitinn 1 metra á hæð,

  hin öll háu og glæsilegu tré löngu uppseld...eitt þeirra stendur

  fullskreytti í stofu húsfreyju, og verða síðan að eyða letidögunum

  milli Jóla og Nýárs, í "Nýárskortaskrif"!Devil

  HAH!

  HEIMSENDI!

  HÚMBÚKK!

  Góðar stundir og heimsendakveðjur.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband