Fram í heiðanna ró....

 SnowdriftBank .....fann ég bólstað og bjó,

  gróf mína bifreið í snjóóóhó"....!Devil

  Húsfreyja söng hástöfum í "ófastri og laflausri"

  bifreið sinni, yfir fréttum af vondum málum á Hellisheiði,

   á leið heim úr vinnu.

  Allt var í tjóni og tjöru uppi á Hellisheiði með snjómokstur vegna

  einhverra snilla sem höfðu ætt upp á "LOKAÐA" heiðina,

  sagði í fréttumWhistling.

  Þar voru nú bifreiðar þeirra fastar tvist og bast, þvers og kruss

  snjómokurum til angurs og ama, taugatrekkings og mergjaðrar gremjuAngry.

  Snaggaralega snarvitlaust veður hafði orðið til þess að

  Hellisheiði var lokað.

  Lokunin vel auglýst á stórum "upplýstum skiltum" 

  og stórum búkkum komið fyrir á akstursleiðinni.

  Menn lögðu SAMT á heiðinaPinch.

  Enda liggur í hlutarins eðli, að "heiðarsnillar" kunna að

  lesa "á milli línanna" á vegaskiltum sem stendur á stórum stöfum:

  LOKAÐHalo!

  Auðvitað túlka þeir það hárétt, að á skilti þessu standi:

  "LOKAÐ...nema fyrir þig og þína herlegu bifreið, því þú ert svo

  hrikalega góður bílstjóri og bíllinn þinn frábær"Tounge.

  Og framhjá búkkum sneiða þeir með "blindandi ljósið" af

  orðinu LOKAÐ í augunum, og dvelja síðan "löngum" stundum

  upp til heiðaTounge.

  Á kafi í snjó.

  Góður tími í bláköldum snjó, skítakulda og fárviðri þar efra,

  til að hugleiða tilgang lífsins eða hvort

  gott sé að láta landið skjálfa af mannavöldum eða

  hvort Óli ætli að bjóða sig fram aftur til forsetaembættis...nú eða

  til að rifja upp það sem þarf að kaupa í Bónus...vantar

  pottþétt tómatsósu, lauk, bland í poka og skeinipappír....

  vel á minnst...er ekkert helv....salerni hér uppi á Hellisheiði,

  svona ef mönnum skyldi verða brátt í brókAngry?

  Og tíminn líður.

  Samkvæmt fréttum er enn verið að moka Hellisheiði nú

  undir ellefu að kveldi.

  Húsfreyja vonar samt innilega að verðandi feður,

  með eiginkonur á steypinum hafi ekki farið sér

  að voða á heiðinni í dag, né heldur fólk með hjartasjúkdóma

 og önnur bráð veikindi.

  Þá er betra að leita sér hjálpar frá heilbrigðisþjónustu litla Fróns,

  hversu léleg sem hún er orðin vegna niðurskurðar,

  og sleppa því að láta vaða á heiðina upp á von og óvon.

  Góðar stundir og megi öll ykkar ferðalög eiga farsælan endi.


mbl.is Hunsuðu lokanir á heiðinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Súrnar nú norskum...

  spanner_3abooo2005287 .. í geði, og gerast þulir þeirra tapsárir og tannhvassir.Errm

  Skiljanlegt.

  Alltaf fúlt að tapa.

  Húsfreyja nagaði naglabönd sín af æsingi og

  spennu, og reitti hár sitt af örvæntingu lengi vel

  yfir handboltaleik þessum millum Frónbúa og

  Norðmanna í gærkveldi.

  Taugar hennar voru úrbræddar og  maginn í hnút.

  En svo komu "srákarnir okkar" með það sem hún hafði

  beðið eftir:  Myljandi baráttugleði og snilldartakta á

  síðustu mínútunumCool.

  Húsfreyja er langt frá því að vera snilli í handboltareglum,

  en eigi gat hún séð, að maður sem snéri baki í markið,

  ætti víti skilið.Shocking

  En hvað veit hún?

  Kannski eru reglur breyttar og dómarar danskir að

  skíta upp á bak, með því að dæma ekki norskum

  "afturábak-mönnum" víti?Whistling

  Baunar í dómarastétt þar með gengnir "þeim í neðra"

  á hönd, og farnir leyfa "þrælaþjóðinni og óbermunum"

  uppi á litla Fróni að berja á "eðal herraþjóðinni" ,Norðmönnum og sigra

  þá, með því að hafa af þeim víti....eða hvað?Devil

  Ekki gott að segja .

  Sjálf telur húsfreyja, að "strákarnir okkar" hafi hreinlega

  tekið norsarana í nefið á síðustu mínútum leiksins,

  og sigurinn því þeirra, hvað sosum öllum "afturábak-vítum" líðurTounge.

  Góðar stundir og njótið handboltakvöldanna.


Rotvarin, erfðabreytt og iðn-saltpækluð...

salt-pepper-shaker-batteries  ....um þessar mundir, húsfreyja, samkvæmt nýjustu

  fréttum af því sem hún raðar ofan í sig sem matW00t.

  Húsflugur steindrepast bara við það að húsfreyja "andi" á þærPinch.

  Húsfreyja ekki fengið kvefvírus síðan á því herrans ári 2008....

  kvefvírusar eiga engan sjens, svo EITRUÐ er konan orðinDevil.

  Kveikir nú húsfreyja á þremur sprittkertum í stofunni,  með einu freti LoLen

  heimiliskötturinn felur sig ofan í baðkari inni á baði

  á matmálstímum, enda extra fín loftræsting á baðherbergi húsfreyjuTounge.

  Stofublóm húsfreyju skarta fjólurauðum laufblöðum með gulum

  doppum...og eitt þeirra át um daginn vinnupeysu bónda ásamt

  slatta af sokkumGrin.

  Hehehehehe...stóðst ekki mátið, húsfreyja.

  Alveg með ólíkindum hvað við setjum ofan í okkur villt og galið,

  grunlaus og barnaleg.

  En altént ættum við að vera vel "iðnvædd" hér uppi á litla Fróni,

  hvað sosum hollustuna varðarHalo.

  Góðar stundir, og munið að "salta" vel hafragrautinn og eggið í fyrramáliðWhistling.


mbl.is „Áttum að krefjast vottorða“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Seigur, Balti.

  BaltasarKlikkar ekki Baltasar Kormákur í kvikmyndabransanum erlendis,

  frekar en leikhúsi og bíó hér uppi á litla Fróni.

  Er hörku púl að koma sér áfram í kvikmyndabransa erlendis,

  en Baltasar er seigur og uppsker nú ríkulega.

  Gaman þegar landanum gengur vel á erlendum vettvangi, og húsfreyja óskar

  íslenskum leikstjóra innilega til hamingju.

  Ætlar ekki að missa af Contrabandi í bíó, húsfreyja.

  Góðar stundir.


mbl.is Contraband tekjuhæst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

2011 versus 1971.

 funny-dog-pictures-baff-ready Húsfreyja var að glugga í dagbók sína.

  "Humm...hálf flatneskjulegt ár 2011...hvorki gekk né rak

  í einu eða neinu".

  DÆSErrm.

  "Tómur barningur á öllum sviðum, meira eða minna" hélt

  hún áfram þönkum sínum.

  Icesafe-sagan endalausa hélt velli-"Engin Jól án Icesafe" og "ekki

  er stefna stefna nema pottþétt- Icesafe, sé"Tounge.

  Heilbrigðiskerfið niðurskorið, sneitt og nagað inn að merg, með verri

  gæðum þjónustu í kjölfariðAngry:

  Gamla fólkið skorið niður, öryrkjar skornir niður, sjúklingar

  að bera gífurlegan kostnað af lífsnauðsynlegum aðgerðum. t.d

  konur með brjóstakrabbameinW00t.

  Bankasukksagan "óáþreifanlega" og óendanlega hélt sömuleiðis áfram....

  virðast innmúraðir og steyptir fastir í sama gamla spillingarsvínaríinuPinch.

  Herjólfur sigldi í Sand....nei Land...nei Þorlákshöfn meira eða minna

  allt árið.  Í Landeyjarhöfn sigldi aðeins aska, aurburður, drulla og skítur...Sick

  "in og út um HÖFNINA og alltaf sömu leið"!Grin

  Húsfreyja vill láta breyta Landeyjarhöfn í hrísgrjónaakur.Devil

  Johnsen skemmti landanum með Skálholtsveseni og fornaldar kirkju-

  byggingum en sérstakur saksóknari var staurblankur miðað

  við allan þann fjölda mála sem hann þurfti að rannsaka og kæra.

  Evran fékk "krónuveikina" og dúndraði niður í víti bankaspillingar, hruns

  og kreppu.

  Gnarrinn skeit upp á bak í skólamálum, og hóf að sameina og búa til

  stærri barnaskólabákn, með minni yfirsýn og verri kennslu fyrir

  nemendur í höfuðborginniErrm.

  En Harpan sló í gegn hjá þeim sem enn eiga nóg af peningum,

  og VIP-partýin voru haldin grimmt og galið þar niður við höfn...GetLost

  en engin partý haldin fyrir fólkið sem er að BORGA fyrir Hörpuna.W00t

  Þá sjaldan sem einhverju af litla fólkinu tekst að aura saman fyrir

  tónleikaferð í Hörpuna, er því refsað grimmilega með

  mörg þúsund króna stöðumælasekt, vegna háleynilegra

  neðanjarðabílastæða, með borgunarkössum á vel földum

  stöðum, sem ekki einu sinni bílastæðaverðir Hörpunnar vita hvar

  eru.Pinch

  Stjórnin.....ja stjórnin, er stjórnin og Jóhanna, og svo eru auðvitað

  "djöfulsins snillingarnir" í stjórnarandstöðunni-gullin af bláu mönnunumFrown.

  Orð Haarderans: "Guð blessi Ísland" plús viðbót frá

  húsfreyju: ..."með þessa alþingismenn" eru orð í tíma töluð...skrifuð?Halo

  En merkilegt nokk gekk árið þokkalega upp hjá húsfreyju sjálfri.

  Sumarið var frábært, sumarfríið og ferðalögin um landið best.

  Engin dó eða veiktist alvarlega, sem er fyrir mestu.

  Vinnan var klikk...en það hefur hún verið árum saman, svo þar er ekkert nýtt.

  Fjárhagurinn bévítans basl og óréttlæti, en sömuleiðis eins og venjulega.

  Svo húsfreyja þokkalega ánægð með sitt ár, en fór þá að hugsa um árið

  1971 á því herrans ári er hún varð ellefu ára.

  Hvað vorum við Frónbúar að brasa fyrir 40 árum?

  Þá bjó húsfreyja enn í Eyjunum sínum í Grænuhlíð 20, alsæl í faðmi

  grösugra fjalla, blás himins, sægræns sjávar og yndislegrar og

  áhyggjulausrar bernsku, svart/hvíts sjónvarps-sumarfrí í 3 mánuði og ALDREI-

  sjónvarps á fimmtudögum.  Talva? I-Pad hvað?

  Samt var ýmislegt á seiði í þjóðfélagi Frónbúa.

  "Opinber rannsókn á reikningum Rannsóknaráðs ríkisins".

  Þar allt í óreiðu með síma, ferðakostnað og risnu.....eitthvað

  kunnulegt við þetta allt, er mat húsfreyju, þó hún hafi ekki hugmynd

  um, hvaða störf Rannsóknaráð ríkisins vannWhistling.

  Handritin mættu heim frá Danmörku, og Baunarnir flögguðu í

  hálfa stöng, er íslensku handritin voru sett um borð í herskipið

  á leið til ÍslandsShocking.

  Jaso, hve margir Baunar skyldu hafa vitað um forníslensku handritin og

  innihald þeirra, eða haft getu til að lesa þau?FootinMouth  Skyldu þeir enn sakna

  handritanna, minnast þeirra og draga Dannebrogen upp í hálfa 19. maí?Whistling

  Svo var það Saltvíkurhátíðin alræmda í byrjun júní '71- um Hvítasunnu.

  Hófst sem hátíð "friðar, sátta og samlyndis", en tókst sem betur fer

  að snúa henni í hátíð "leðju, ölvunar, roks og rigningar".-Saltstokk '71?LoL

  Landinn fékk léttan stresshroll í apríl. '71, þegar nokkrir frónverskir sveinar ákváðu

  að stofna "skæruliðasamtök" uppi á litla Fróni, og ætluðu að sprengja

  mann og annan með stolnu dýnamíti Angry.

  Hippamenningin blómstraði, en sturlaður maður myrti konu sína

  fyrir norðan og lubbi var bannaður af KSÍ, fékk enginn "lubbi" að

  keppa með landsliðinu við Frakka, það áriðFrown.

  Hárskerar kvörtuðu um atvinnuleysi...enda enginn maður með

  mönnum árið 1971 nema með axlarsítt hár og toppinn oní augu.Devil

  Geysir í Haukadal gaus....sápulaust.Wink

  Bretar urðu brjálaðir enn og aftur út í Frónbúa, vegna hundabanns

  í höfuðborginni við sundin bláu.  Töluðu um "geðsjúka hundahatara"Tounge

  í fjölmiðlum, Tjallarnir..

  Svíarnir tóku í sama streng "Leyfið hundunum að lifa"- Lat hundene leva!

  Hasshundurinn hinn fyrsti kom til landsins.....hann fékk að lifaLoL.

  Tollverðir berháttuðu Færeyinga..Shocking.

  Eyjamenn fylltu eyjuna af loðnu.

  Þjóðartekjur jukust um 10,5 %.

  Uppstoppaður geirfugl var keyptur inn í landið á 1.9 milljónir.

  Glaumbær brann og fólkið fann sér annan samastað.....osfr.

  Jamm, aðrir tímar árið 1971 en Frónbúar samt alltaf einhvað að brasa.

  Betri tímar?

  Húsfreyja lætur aðra um að meta slíkt.

  Góðar stundir og gleðilegt ár 2012.


Auglýst eftir SAKBITNUM bankamönnum...

 millstone ... á litla Fróni"W00t.

  Húsfreyja var að dudda í fréttalestri inn á Vísir, og rakst

  á þessu makalausu frétt.

  "Síðan hvenær, hafa bankamenn verið "sakbitnir" hér uppi

  á litla Fróni"? Pinchhugsaði húsfreyja rasandi.

  Bankahrun, landið fallít og krónan verri en rotnandi dauð....

  allt "litla fólkinu" í landinu með flatskjána sína að kennaAngry!

  Spyrjið bara hvaða fyrrum bankaeiganda sem er, eða stórfjárfesta og útrásavíkinga

  með hauga af fyrirtækjum í pósthólfum á TortólaWhistling.

  Enda eins gott, að það vorum VIÐ "litla fólkið" sem skitum upp á bak,

  en ekki bankamennirnir, fjárfestarnir og útrásarvíkingarnir,

  því við erum altént "borgunarfólk" fyrir bankahrunssvínaríinu....Tounge

  annað en hjá banka-/þotuliðinu, þar sem eina ráðið er að "afskrifa" skuldirnar,

  svo það missi ekki hallirnar ofan af sér, geti endurnýjað Rolexúrin sín og

  jeppaflotann sinn reglulega og áfram skroppið í heimsreisur 2-3 á áriGetLost.

  Enda lágmark að fá að halda þessu "smotteríi",

  þar sem búið er að taka fyrir "Elton John-afmælisveislur",

  einkaþotueign og "óáþreifanleg" hringavitleysukaup og sölu, með tilheyrandi

  milljóna þóknunum hjá blessuðum fyrrum "milljarðaeigendum" litla FrónsErrm.

  Neipp, SAKBITNIR bankamenn og auðjöfrar uppi á litla Fróni, telur húsfreyja að séu

  sjaldgæfari en fuglar þeir er geirfuglar nefnast.

  Húsfreyja telur næsta víst, að Sierra listamaður sá er

  auglýsir eftir "sakbitnu" fólki af þessu sauðarhúsi,

  fari villu vegar í leit sinni hér á norðurhjara.

  Verði sá góði listamaður að fara langt út fyrir landsteina vorrar þjóðar,

  að finna einn "sakbitinn" bankamann.....og kannski jafnvel út fyrir

  sólkerfið sjálftDevil.

  En sakbitna "flatskjárkaupendur" með bankahrunsmyllusteininn utan

  um hálsinn, og "óafskrifaðan" skuldaklafann á herðunum,

  getur hann hins vega fundið hér í heilu helvísku haugunum.Pinch

  Já, og þúsund tonna grjótið sem við öll,  litla fólkið drögum á eftir okkur

  í keðju um ökklann, kallast "Icesafe"Sick.

  En við erum máske ekki nógu merkilegur pappír fyrir svo frægan

  listamann, sem Sierra.......?Halo

  Hvað veit húsfreyja?

  Góðar stundir og megi þið öll hafa efni á að sækja listsýningar og listrænar

  uppákomur a.m.k. einu sinni þriðja hvert ár.


Ónotaleg gull af mönnum.

 flag_of_iceland_3c Það er ekki nokkur spurning að sjálfstæðismenn

  eru fremur "ónotalegt" fólk í huga húsfreyju.

  Það hefur bitur reynsla hennar af áratuga veru þessa flokks

  í stjórn landsins á árum áður kennt henni.

  Undir stjórn sjálfstæðismanna hefur viðgengist

  fordæmalaus spilling í stjórn landsins árum saman, ásamt vanrækslu og lítilsvirðingu í

  garð þjóðarinnar að mati húsfreyju.

  "Leppflokkar" þeirra sjálfstæðismanna, þ.e. flokkarnir

  sem þeir velja með sér í stjórn, eru síða þægilegir

  "sökudólgar" þegar upp kemst um svikin kosningaloforð,

  spillingu og óstjórn.

  "Framsóknarmaddaman" var hreinlega líflátin, hengd, snúin úr,

  steikt og steindrepin, eftir áratuga

  "syndaburð" með sjálfstæðismönnum í stjórnErrm.

  Einu ástæðuna fyrir því að ekki er búið að kjöldraga,

  sökkva og drekkja Samfylkingunni, telur húsfreyja vera sú,

  að "heilög Jóhanna" tók við forystu þess flokks.

  Sú kerla er seig, hörkudugleg og rær nú lífróður fyrir þjóðina, eftir að taka við versta

  klúðri sjálfstæðisflokksins...EVERAngry.

  Verst að konan sú er með heilmikið af "jólasveinum" í stjórn með sér,

  sem hringsnúast eins og "bollarússibanar" í tívolíi....óvanir að

  vera ekki einvörðu "leppar" fyrir SjálfstæðiflokkinnWhistling.

  Samt skárra að hafa "jólasveinana" en "ónotalegu gullin af mönnum"

  í stjórn.

  Og sjálfstæðismenn mega alveg vera með "vonda tilfinningu",

  húsfreyja, og hana grunar að hún sé ekki ein um það,

  lifði með "vonda tilfinningu" í mörg ár, á meðan þeir sátu

  á ráðherrastólum.

  En Skaupsfólk stakk beint á meinin sjálfstæðismannanna um

  áramótin...og snéri reyndar hnífnum í sárunum hressilega...

  en þannig eru nú einu sinni Áramótaskaup, og húsfreyja telur

  að sjálfstæðismenn hafi átt skilið kaldar kveðjur frá þjóðinni.

  Allir fengu sinn skammt, Jóhanna og Steingrímur einnig.

  Húsfreyja er sátt við sitt Áramótaskaup, þó nokkrum sinnum

  færu menn og konur þar yfir strikið.

  En það er einlæg von húsfreyju að gott og heiðarlegt fólk

  "allra" flokka á Alþingi sameinist um að koma þjóðinni

  út úr þrenginunum, skapi sér þannig góðan orðstý og geti verið stolt

  af verkum sínum.

  Verkin verða síðan metin í Áramótaskaupi 2012...Devil.

  Góðar stundir.

 

 


mbl.is Ónotatilfinning sjálfstæðismanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvít klessa...

  ...með dramatísku "Húsvísku ívafi" gæti þetta

 INGUD00Z "listaverk" heitið" hugsaði húsfreyja þar sem hún

  stóð á útidyratröppum sínum, og horfði út á bílaplan sitt

  í morgunsárið.

  Bóndi hafði þrælað henni á lappir fyrir allar aldir, til að

  aka henni til vinnu á sínum eðal "fjórhjóladrifna" vinnubílWhistling.

  Tvíhjóladrifna drusluverkið sem húsfreyja annars brúkaði

  til að komast frá A til B og svo heim aftur, var fennt inni í

  bílskúrErrm.

  Húsfreyja horfði á bónda sinn láta vaða aftur á bak yfir

  stóran skafl, þar sem nokkrar sekúndur sá fjórhjóladrifni

  sat fastur á "maganum", á meðan hjólin fjögur súrruðu

  vinalega í lausu loftiPinch...súnkaði drossían síðan niður aftur og

  bóndi ók í glæsilegum sveig að tröppunum þar sem húsfreyja stóð.

  Húsfreyja óð fönn upp fyrir hné að bifreið bónda, og geispaði

  ógurlega er hún settist inn.

  Saknaði strax 20 mínúta svefnsins, sem fannfergið hafði haft

  af henniSleeping.

  Bóndi talaði í sífellu um glussa, snjómokstur og lykla að því

  virtist við sjálfan sig, nema notaði af og til nafnið GunniW00t.

  Húsfreyja gjóaði svefnþrungnum augum á bónda...."var hann

  að tapa sér, varla kallaði hann sjálfan sig Gunna"LoL?

  Neipp, bóndi var kominn með litla dótaríið á eyrað á sér,

  og var að ræða við samstarfsfélaga sinn um verkefni dagsins

  á öldum símafyrirtækis.

  Húsfreyja dæsti mæðulega.

  SNJÓR.

  Og meira en nóg af honumFrown.

  Datt þá í hug samræður sem hún hafði átt við 10 ára djásnið

  nokkrum dögum fyrir Jól, þar sem djásnið sagði eftirfarandi:

  "Mamma, við krakkarnir segjum að Guð sé í "freyðibaði" þegar snjóar

  svona mikið"Tounge.

  Húsfreyja glotti að hugsun sinni í bílnum, " já, og notalegt hjá þér

  Almættinu að þurfa að vera brasa í freyðibaðsstússi beint

  yfir litla Fróni í miðri vinnuvikuGetLost" sendi hún upp til himnaföðursins.

  "Gastu ekki æruverðugur, dúndrað þér í baðið fyrir Jól, svona til

  heiðurs fæðingu sonarins, og látið það duga"Halo?

  "Kæra vinkona" kom svarið jafnskjótt mildilega og glettið, "sonur minn

  fæddist ekki í desember, þó þið elskulegir mennirnir haldið upp á

  fæðingu hans þá".  Hér hló hinn heilagi svolítið, " ef ég man rétt er

  hann fæddur í september, og þá líklega í merki Meyjunnar líkt og þú"Wink.

  Almættið ræskti sig og hélt áfram; "Enda var hann heiðarlegur,  mannúðlegur,

  fórnfús hugsjónamaður, vinnusamur, kærleiksríkur,

  gagnrýnin og pottþéttur líkt og margir í Meyjamerkinu, og það mættu

  margir taka sér hann til fyrirmyndar þarna hjá ykkur á jörðinni".

  Það var ekki laust við, að húsfreyju findist svolítill áminningartónn

  í rödd hins háheilaga.

  "Já,"  svaraði hún dræmt, " en það þýðir nú lítið að bera mig "arman

  fjármálavitleysing með 4 ára gamlan flatskjá" á skeri úti á miðju Ballarhafi,

  saman við son þinn, herra minn.... og það þó að ég sé í MeyjarmerkinuPinch.

  Mín skástu og stærstu kraftaverk eru þegar mér tekst að hjálpa tíu ára djásninu

  með níu af tíu dæmum í heimalærdóminum í stærðfræði.  En þetta tíunda dæmi

  er oft svo hrikalega frústrerandi óskiljanlegt, að ég þyrfti hjálp frá Albert Einstein,

  til að fá botn í það"Shocking.

  "Kæra vinkona" nú hló hinn guðlegi upphátt, "og heldur þú að

  þú fáir ekki hjálp frá mér einnig, þegar þið eruð að basla við

  stærðfræðina saman, mæðgurnar"?

  "Jú, það er akkúrat málið, æruverðugur, ég reikna með henni tvö

  dæmi og síðan reiknar þú næstu sjö með henni með mig sem millilið...

  og þá er bara þetta eina dæmi eftir sem "hvorugt okkar" kann þá að

  reikna....merkilegt nokkWhistling......(úps...húsfreyja hér að móðga Almættið...

  skíta upp á bak....reyndi að bjarga sér fyrir horn...), 

  en mér finnst nú reyndar algjört kraftaverk að klára heil níu dæmi"Tounge.

  Almættið hló hjartanlega, "Altént ertu með húmorinn í góðum gír, vinkona

  og ég reikna með því að við förum að klóra okkur fram úr tíunda dæminu

  fljótlega, ef við leggjum höfuðin saman í bleyti.  En blessaðan snjóinn

  tel ég að trufli þig og landa þína lítið, þið eruð öllu vön".

  Og bóndi stöðvaði bifreiðina í snjóskafli fyrir framan vinnustað húsfreyju,

  og húsfreyja þakkaði farið og óð snjóinn inn.

  Húsfreyja tróð síðan slóða í fannfergið upp í Spöng eftir vinnu á tveimur jafnfljótum,

  keypti í matinn, og fór létt með.

  Nágranninn mokaði slóða að ruslatunnunni, svo sorphirðukarlar hirði

  ruslið-afleitt ef nýtt ár angar langar leiðir af rotnandi matarleifum.

  Truflar okkur ekki mikið snjórinn, ef við hjálpumst að.

  Góðar stundir.


mbl.is Snjóþyngsti desember frá 1984
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Íslandi stefnt.

  iceland-women-s-t-shirtsJaso.

  Nokkuð fyrirsjáanlegt.

  Mister Brown gerði okkur, íslensku þjóðina og arma fjármálavitleysinga

  í ofanálag, að hryðjuverkamönnum, svo næsta víst var að

  EFTA myndi stefna okkur fyrir að neita að greiða fyrir fáluna hana "Ísbjörgu".

  Lengi hægt að kroppa í sama sárið, ef út í það er farið.

  Ríkisábyrgð eður ei, virðist húsfreyju vera ansi stórt mál,

  þegar kemur að Icesafe.

  Og er ríkisábyrgð þá eitthvað sem skal eingöngu dynja yfir

  frónverska þjóð í kreppu, eða verða þjóðir víða um Evrópu

  gerðar ábyrgar fyrir hruni banka sinnaFootinMouth?

  Er ríkisábyrgð lögleg eður ei?

  Ekki gott að segja.

  Er húsfreyja áhyggjufull vegna stefnu þessarar?

  Nei.

  Þetta mál er komið í vinnslu. 

  Við frónverska þjóðin ágætlega í stakk búin að rökstyðja, þrasa og þrátta.

  Orð eru okkar megin.

  Tíminn mun einnig vinna með okkur, er skoðun húsfreyju.

  Spyrjum að leikslokum.

  En að öðru.

  Húsfreyja horfði á Kastljós líkt og fleiri í gærkveldi, og varð

  hálf bumbult eftir þann þátt.

  Vill gjarnan að fyrrum pappírspésar í bönkum og fyrirtækjum sem

  dunduðu sér við að "lána sér" fyrir, kaupa og

  selja sjálfum sér  "eitthvað óáþreifanlegt",

  og borga sér SJÁLFUM síðan milljónir ofan milljónir

  í þóknun fyrir viðskiptinPinch, geri grein fyrir því í HVAÐ

  þeir notuðu þóknunarpeninga sína.

  Einhvers staðar hljóta þeir aurar að liggja, og væri nógu fjandi

  gaman að vita fyrir hvurn fjandann frónverska þjóðin var

  að greiða á formi "þóknuna" hér fyrir hrunShocking.

  Eru þetta máske risaeign, eins og allur símabransinn í einhverju fyrrum

  austur-Evrópulandinu, líkt og einn ágætur "útrásarvíkingur"

  er sagður eigaWhistling?

  Hótelkeðjur í Dubai?

  Lystisnekkjur?

  Einkaþotur?

  Sumarvillur upp á 2000 fermetra við Miðjarðarhafið?

  Eða eru þetta máske bara þúsundir "fyrirtækja til húsa í póstkössum" á

  TortólaDevil?

  Nei, húsfreyja vill bara gjarnan fá að vita, hvað varð um

  alla þessa peningaWhistling.

  Veit að það flökrar ekki að "eigendum" þeirra, að skila þóknunum þessum

  aftur til bankanna og þjóðarinnar.

  Og það þó þjóðin sé eitthvað

  ósátt við að "eitthvað óáþreifanlegt" sé svona fjandi

  dyrt að höndla með, að það rúlli upp heillu bönkum og fellii

  tvist og bast og setji heilu þjóðirnar á hausinnPinch.

  Neipp.

  Húsfreyja var rasandi eftir Kastljósþátt þennan.

  Að höndla með "óáþreifanleika" er þjóðinni gjörsamlega GAGNSLAUS viðskipti,

  og ekki nóg með það, slík viðskipti skaða orðstý þjóðarinnarErrm.

  En út að ganga í frostinu næst.

  Góðar stundir og látið ekki fáluna hana Ísbjörgu eyðileggja

  fyrir ykkur jólaskapið.

 


mbl.is ESA stefnir Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Miðaldarfár og....

   Bedoins_In_Saudi_Arabia... fjúkandi afhöggnir hausar með galdrabrennum

  og hverju ekki á þeim myrku tímum, komið í fréttir

  og sjálfsagt verið að rifja upp

  blóðþorsta og brjálæði í garð kvenna

  á þeim árunum" var það fyrsta sem húsfreyju kom í hug,

  er hún las fyrirsögnina á frétt þessari.

  Neipp.

  Alrangt.

  Húsfreyja að vaða í villu og svímaW00t.

  Frétt frá Sádí-Arabíu á vorum dögum, á 21 öldinni.

  Kona hálshöggin fyrir kukl og galdra.

  Tarna er ljóti ófögnuðurinn í réttarkerfi Sáda.

  Þar þykir besta mál að menn duddi sér við að höggva höfuðin af fólki,

  fyrir hina ýmsu glæpi; þjófnaði, morð, nauðganir (ekki víst heldur,

  að fórnarlömb nauðgana sleppi lifandi, fremur en gerendur)

  og svo auðvitað fyrir höfuðsyndir eins og að afneita trúnni

  og fyrir það að kunna eitthvað fyrir sér í grasafræðiPinch.

  En húsfreyju þykir ekki líklegt að foreldrar kenni almennt

  börnum sínum galdra og kukl í henni Sádí, því trúin bannar

  allt slíkt stranglega og hausinn er að veði leggi fólk út í slíkt.

  Hins vegar kunna margir til verka með grös og jurtir,

  ljósmæður og læknar til forna brúkuðu slíkt óspart,

  og húsfreyja telur að slík kunnátta sé enn við líði

  víða um heim, þar sem heilbrigðiskerfið er bágt

  og aðeins á færi þeirra ríku að sækja slíka þjónustu.

  Galdrar og kukl?

  Varla.

  En blessaðir Sádarnir stíga ekki í miðaldarvitið.

  Brýna sveðjur sínar grimmt og spýta við tönn.

  Og hausar fjúka.

  Þjóð í fangelsi fornra siða og grimms hugsunarháttar.

  Því er ver.

  Góðar stundir á kærleiksríkri jólaaðventu.


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband