..en svona á léttari nótum...og af óheppnum gluggamígandi nátthröfnum.

 

FunnyPart-com-pee  ég held að bráðum verði allt í lagi

  af því nú er allt í ólagi.

  ég held að bráðum hefjist lífið

  af því nú er allt svo dauðalegt.

                        Ólafur Haukur Símonarson.

 

  Hann var ekki dauðalegur 101-íbúinn sem stökk framúr bóli sínu

  um miðja nótt, á Adams-klæðum einum saman og

  réðst að þremur "stofugluggamígandi" nátthröfnum

  með sveðju á lofti og rasskellti alla þrjá.LoL

  Húsfreyja er hrifin af framtaki þessu og elju 101-íbúans,

  og vorkennir hinum hlandsprungnu gaurum lítið.

  Bara HEPPNIR að sá kviknakti trompaðist ekki alveg

  yfir hlandblautum stofuglugga sínum, og snéri ei egginni

  að óæðri endum þeirra.....eða þaðan af verra sneiddi framan

  af "hlanddrjúpandi djásnum" þeirra.W00t

  Enda hefur þjóðin öll flissað og glott yfir óförum pissudúkkanna,

  og haft fulla samúð með eiganda útmignu stofuglugganna,

  Því sú er tíðin löngu liðin, þá Frónbúar brúkuðu hland sitt til

  hinna ýmissu þrifa, svo sem hárþvott.

  Þykir lyktin af þeim vökvanum svona heldur stæk og leið,

  og því allir komnir í vel angandi sápur og gluggavökva nú til dags.

  Hvort SVEÐJUR séu réttu tólin til að hafa hemil á stofugluggamígandi

  og undirgangaælandi nátthröfnum, lætur húsfreyja kyrrt liggja.....Whistling

  þó hún efist um að þessir þrír leggi aftur í hlandlosun

  á glugga 101-íbúans með sveðjuna,Wink

  þá telur hún það bísna flott trikk að ráðast að hlandhaugum

  gluggavilluráfandi, kviknakin með æðislegt blik í augum og ekki verra

  að láta mergjað víkingaorg fylgja með.Devil

  Hlýtur að vera ÆGILEG upplifun, og afspyrnu ÞVAGHEMJANDI

  fyrir villuráfandi þvaghauga!Tounge

  Væri máske ráð að íbúar í 101 tækju sig saman, og réðust allir að

  þeim útimígandi allsberir og organdi á háa séinu næstu helgar.LoL

  Gæti aldeilis glætt bissnessinn á "Þvagteppudeild" Landspítala

  Háskólasjúkrahúss, svo jafnvel yrði hægt að hækka laun

  almennra heilbrigðisstarfsmanna um 20% á næstu mánuðum.Grin

  Hehehehehe, skemmtileg frétt atarna.

  Góðar stundir og munið að "losa sokkinn" innandyra og helst á salernum

  um helgar.Cool

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Heyrt hefi ég að í fangelsinu á Litla-Hrauni dveljist maður sem hafi sér það eitt til sakar unnið, að hafa gengið um berrassaður - heima hjá sér. 

Glæpur sveðjumannsins var trúlega minnstur sá að berja með sveðjunni móti hinu að hlaupa um á adamsklæðum. 

Á íslandi er flest leyfilegt, þú mátt ljúga,stela,berja,meiða,nauðga,míga utaní,kjósa sjálfstæðisflokkinn aftur og aftur, bara - ekki vera BERRASSAÐUR!

Bjarni Gunnlaugur (IP-tala skráð) 8.10.2012 kl. 09:59

2 Smámynd: Sigríður Sigurðardóttir

Já merkilegur fjandi þetta, Bjarni.  Sér í lagi ætti það að kosta menn 10 ár í fangelsi kjósi þeir íhaldið hehehehe.  Þakka þér kærlega kommentið og innlitið.

Sigríður Sigurðardóttir, 8.10.2012 kl. 20:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband