Árans ekkisens óheppni....

funny-pictures-lightbulb-cat-get-a-life  ....alltaf hreint að elta húsfreyju og hennar

  eðal familíu.Angry

  VESEN með höfuðstöfum og stóru "vaffi"!Pinch

  Hér hefur húsfreyja ekki komist að bloggborði sínu

  svo dögum skiptir, fyrir myljandi roki og frostakulda innandyra...brrrr!Crying

  Á heimili húsfreyju tóku nefnilega "sparperur" að "springa"

  í síðustu viku!W00t

  JEPP!

  Fyrst vesælar 40 vatta, 3 í röð...piff...paff...púff...en síðan hljóp

  andskotinn í spilið...FJÓRAR....BANG...BÚMM...KRASTJH...piff!Angry

  Jamm stórar 60-80 vatta perur bara steindauðar sisona.

  SJÖ stykki.Errm

  Helvískt kvikasilfursdrasl....Angry.

  Hús húsfreyju staðið ÖLLUM, mönnum sem dýrum, OPIÐ

  þar með síðustu daga.GetLost

  Fjölskyldan húsfreyju hefur þar með rölt í Indíánatakti...æææjajaja....eieieijaja...

  íklædd 10 lopapeysum, með króklopna fingur, skurðstofugrímur og grýlukerti á nefum,

  um íbúðina í "10 cm þykku ryklaginu" á gólfunum, til að koma í veg fyrir

  ótímabært andlát af völdum skítakulda og kvikasilfurseitrunar.Halo

  MÁ EKKI SÓPA!Angry

  Má ekki RYKSUGA, sei, sei nei!Pinch

  Og Guð hjálpi þeim, sem dirfist að skúra.Whistling

  LOFTA ÚT!!! er mottó heimilisins.

  Heimiliskötturinn er stórmóðgaður....enda búinn að hanga

  í kviðbeisli 20 cm. yfir stofuborðinun síðustu daga.W00t

  Er aðeins slakað niður á borðið tvisvar á dag, á

  matmálkstímum.Tounge

  Gengur ekki að læðugreyið drepist af kvikasilfureitrun....eða hungri!

  Ellefu ára djásninu finnst ástandið á heimilinu MJÖG ÁHUGAVERT,Woundering

  og ætlar að rita ritgerð upp á 15 síður fyrir Íslenskufræði sín,

  um SPARPERUR og áhrif þeirra á geðheilsu foreldra.Whistling

  Húsfreyja er hinsvegar öll í því að finna LAUSN á málunum.

  Er komin í samband við "perusmyglara"....fær hjá honum eðal VENJULEGAR

  "orkueyðandi" Osram GLÓ-perur, 10 kíló á 1588 kr. kílóið, í hús á morgun...Cool

  meira að segja smyglarar þurfa sín "helgarfrí"!LoL

  En kötturinn verður að HANGA þar til í fyrramálið, þó bóndi

  hafi loks skúrað íbúðina í dag, og húsfreyja lokaði öllum

  gluggum og dyrum KYRFILEGA.Devil

  Húsfreyja fær ekki VOTTORÐ frá heibrigðiseftirlitinu fyrr en

  á morgun, eftir að "hreinsunarsérsveitin" er búin að

  leita dauðaleit að villuráfandi kvikasilfri í íbúð hennar, og

  gefa grænt ljós á áframhaldandi búsetu......eða öðrum kosti

  ráðleggja húsfreyju að selja Viðlaga-og Hamfarasjóði íbúðina.Tounge

  Hehehehehehehe....stóðst ekki mátið, húsfreyja.Grin

  Var að lesa "sérlegar leiðbeiningar" um hvernig henda

  beri sprungnum "sparperum".Shocking

  Jamm, og nýbúið að BANNA glóperur...ja sei!GetLost

  Er ekki lífið dásamlega skemmtilegt og skrýtið á plánetunni Jörð?

  En góðar stundir, og megi allar ykkar perur loga að EILÍFU.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband