Færsluflokkur: Spaugilegt

Limalangir Frónbúar!

funny_tree_penis8022  Aldeilis fínar fregnir þetta fyrir frónverska karla.Cool

  Sjálfsagt margir þeirra þá sérdeilis áhugasamir um

  stærð síns lims sem og stærð lima vina sinna og félaga fyrst þeir hafa

  mætt í "limamælingu"!Tounge

  Máski jafnvel til klúbbur karla með stóra limi hér uppi á litla Fróni,

  sem þá líklegast útleggst og skammstafast KLAK!LoL

  Ergo Klúbbur LimaLangra Karla!Whistling

  Hljóta þá klúbb(með)limir þessir að hittast reglulega, og tjalda

  því sem til er yfir öllara, mæla og mæla aftur LENGD, BREIDD,

  UMMÁL og FLATARMÁL.Cool

  Jafnvel fara yfir hve "hátt ris" er á mönnum, þá þeir sænga hjá

  konum sínum og kærustum.DevilTounge

  Setja síðan upp í graf og bjóða þeim sem "rismestar" tölur hefur,

  upp á frían öllara og 100 pakka af extra sleipum smokkum í verðlaun.LoL

  Nei, hvað veit húsfreyja.

  Máske enginn slíkur klúbbur til hér uppi á litla Fróni.

  Þá er það bara eitt "smámál" að bögga húsfreyju:

  Hvert í ósköpunum fóru frónverskir karlmenn í limamælingu,

  fyrst svo mikið er vitað um stærð lima þeirra, og hvar fór hún fram og hver

  framkvæmdi mælinguna?Shocking

  Nei, bara svona smá forvitni í gangi hjá húsfreyju, því hún vissi

  ekki einu sinni að limamælingar hefðu verið í boði hér uppi á litla Fróni.Halo

  En "ull" á limasmáa breska og franska karlmenn...og kannski bara

  "nanabúbú" líka.Tounge

  En frændi 6 ára, verðandi limalangur herramaður þarf í kompjúterinn.

  Góðar stundir.


mbl.is Íslendingar „stærstir“ í Evrópu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Myljandi flott KORN þetta.

PPSAcartoon10_08  Húsfreyja er hrifin, það segir hún satt.Wink

  Forstjóri á Landspítala að fá um 20% launahækkun.W00t

  GLEÐI!Cool

  HRIKALEG HAMINGJA.

  Hlýtur að þýða að kreppufárið sé yfirstaðið hér uppi á litla Fróni,

  svo nú megi landsmenn allir fara að vænta mergjaðs góðæris

  og svo að sjálfsögðu launahækkunar upp á lágmark 20%

  á næstu dögum.

  LÁGMARK!Tounge

  Því hafi forstjóri Landspítala verið svo aumur launalega,

  að þörf var á að hækka laun hans um 20%, hvað má

  þá segja um hjúkrunarfræðinga, sjúkraliða og

  aðra starfsmenn heilbrigðisgeirans.Shocking

  Þeir hóglátu heilbrigðisstarfsmenn hafa hingað til ekki

  staði á götum úti, barið sér á brjóst og státað sig af

  því að hafa mun hærri mánaðarlaun en forstjóri Landsspítala sem og

  aðrir yfirmenn þeirra.

  Sei, sei nei.

  Frekar rennt augum á eftir fjórhjóladrifnum eðaljeppum

  yfirmannanna og dáðst að fallegum einbýlishúsum þeirra,

  hinir hóglátu og launalægri heilbrigðisstarfsmenn, þá þeir eru

  framhjáakandi á 10 ára gömlum Tójótum, Hondum og Skódum.Whistling

  Jamm, það hefur hingað til ekki verið hátt metið að bera ábyrgð

  á mannslífum, launalega séð.Errm

  En takist þér að koma þér í skipulags- og pappírsvinnu þá

  hækka launin óðara svo hratt að manni sundlar.Sick

  Og komistu síðan í stjórnunarstöðu með eigin skrifstofu, tölvu og

  alvöru skjalaskáp fyrir alla "ómetanlegu og dýrmætu" pappírana þá fara

  mánaðarlaunatölurnar að verða svo fáránlega háar, að það er ekki

  fyrir venjulegt "vinna hraðar-hlaupa meira-meiri ábyrgð-fyrir lægri laun-

  heilbrigðisstarfsfólk", að skilja þær.GetLost

  En máske að vesalings Landspítalaforstjórinn hafi orðið illilega útundan,

  hvað ofurlaun varðar, og rétt haft nóg á mill hnífs og skeiðar,

  svona svipað og erlenda skúringafólkið, og nýútskrifuðu

  sjúkraliðarnir og hjúkrunarfræðingarnir.Crying

  Þá er ekki nema von, að tími hafi verið komin á 20%

  launahækkun hjá Landsastjóranum, og upplagt að

  brúka til þess millurnar sem sparast hafa í síðasta

  "loka heilli deild-og segja upp hjúkrunarfræðingum-niðurskurði".Pinch

  Já, aldeilis fínt að geta notað það sem hefur sparast með blóði,

  svita og tárum og niðurskurði inn að MERG, í góða launahækkun

  fyrir blanka og arma forstjóra.GetLost

  Og þar sem það segir sig sjálf, að í lýðræðisríkinu á litla Fróni,

  þar sem ójöfnuður viðgengst "alls ekki", verður næst farið

  í að hækka laun hjúkrunarfræðinga, sjúkraliða, lækna, sjúkraþjálfa,

  ræstingafólks, umönnunarfólks, viðgerðarmanna og húsvarða

  á öllum heilbrigðisstofnunum landsins.Halo

  UM 20%!Devil

  POTTÞÉTT!Tounge

  Húsfreyja er alsæl og hlakkar til.

  Ooooooo... nú verður hún sko spennt!Wink

  Verður kannski einu sinni hægt að missa sig svolítið

  í jólagjafakaupum, án þess að Visakorti fuðri upp í

  frumeindir sínar af ofnotkun.Pinch

  Hallelúja.

  Þetta verða þá fyrstu góðu pakkajólin okkar heilbrigðisstarfsmanna

  síðan.....ja.....síðan.....síðan....öööööö....ALDREI!Angry

  Æææ, þarna brann húsfreyja alveg yfir í hausnum af æsingi.Crying

  Gleymdi því, að ALDREI hefur ríkt góðæri í heilbrigðiskerfi Frónbúa.

  ALDREI!Angry

  Altént ekki þau ár frá 1984, sem húsfreyja hefur starfað við það.

  Eilífur helvískur niðurskurður, ofursparnaður, aumingjaskapur

  og blankheit hefur vofað yfir höfðum heibrigðisstarfsmanna

  sínkt og heilagt ár eftir volæðis ár í kerfinu.Errm

  Heilbrigðiskerfi Frónbúa hefur húsfreyju virst vera blankara en

  "Litla Stúlkan Með Eldspýturnar".....meira segja á tímum góðæris

  útþenslu og pappírspeningabrjálæðis!Pinch

  SKERA NIÐUR!

  LOKA DEILDUM!

  FÆKKA STARFSFÓLKI!

  LOKA ÖLLUM SPÍTULUM Í 60 KÍLÓMETRA RADÍUS FRÁ REYKJAVÍK!

  LOKA ÖLLUM FÆÐINGARDEILDUM ÚTI Á LANDI!

  LOKA ÖLLUM SKURÐSTOFUM ÚTI Á LANDI!

  LENGJA ALLA SJÚKLINGABIÐLISTA...EN Í GUÐANNA BÆNUM LÁTIÐ ÞAÐ

  EKKI KOMA NIÐUR Á GÆÐUM ÞJÓNUSTU VIÐ SJÚKA!Whistling

  MINNKA ÞJÓNUSTU......EN Í GUÐANNA BÆNUM LÁTIÐ ÞAÐ SAMT EKKI KOMA

  NIÐUR Á GÆÐUM ÞJÓNUSTU VIÐ SJÚKA!Shocking

  EN EINHVERRA HLUTA VEGNA:  SVO BYGGJUM VIÐ OG BYGGJUM,

  FLOTTARI LANDSPÍTALA, FLEIRI ÖLDRUNARHEIMILI, FLEIRI ÖLDRUNARÍBÚÐIR...ShockingPinch

  Bara smá, oggulítil snuðra hlaupin þar á þráðinn.....HVERJIR eiga að

  vinna í öllum flottheitunum, þegar heilbrigðisstarfsfólk frónverskt er í massavís

  fluttt á íðilfagrar olíulendur norska kóngsins?Woundering

  Jamm, og svo er auðvitað þetta smotterí, með endurnýjun á

  geislatækjum, skönnum, skópum og öðrum fínum lækninga-/greiningagræjum?Whistling

  Kannski óþarfi að vera vesenast með svona flottheit,

  þegar allir eru dauðir sem þurftu þeirra með til að læknast af

  veikindum sínum, og þeir sem kunnu að brúka þau eru einnig

  horfnir á vit norskra ævintýra.Pinch

  Bara húmbúkk!

  Húsfreyja sér fyrir sér, á sínum svörtustu stundum breiðþotuflug "langveikra-

  uppgefinna á að bíða eftir lækningu-Frónbúa" til norskra frænda vorra,

  þar sem 300 manns flýgur saman, hundveikt allt saman, til Osló.

  Sest þar á bekk í norskum læknabiðstofum, upp á von og óvon

  að þar fáist einhver heilbrigðisaðstoð af viti.Devil

  Dettur húsfreyju þá í hug, að ættingjar hinna sjúku flugfarþega,

  gætu fyrir flug, brugðið sér niður á höfn með vænar veiðistengur,

  og náð sér í eins og 5 kíló af MakrílLoL, sem frystan mætti

  síðan taka með sér til Noregs, og nota til að flýta fyrir og liðka fyrir

  þjónustu norskra lækna við hina sjúku Frónbúa.Tounge

  Gæti svínvirkað.Grin

  Jamm, varð að gera smá grín að frétt þessari, húsfreyja.

  Alveg furðuleg launahækkun atarna, þegar öllum öðrum þegnum er

  uppálagt að herða sultarólina.

  Kíkja á óherta sultaról meistarakokka næst, í imbanum.

  Góðar stundir og megi öll ykkar launaumslög þykkna um 20% á

  næstu mánuðum.Devil

 


mbl.is „Kornið sem fyllti mælinn“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eins gott! Bannað!

 funny-pictures-cat-is-number-one Hvurslags oflæti og ekkisens mont í fyrirtækjum

  að segjast vera númer 1.Errm

  Aðeins nokkrir einstaklingar á litla Fróni hafa rétt

  á því að segjast vera númer 1.Halo

  Það er auðvitað FYRSTI Frónbúinn í ógnarlangri röð samlanda sinna,

  sem eftir langa og svefnlausa nótt, nær því að vera hangandi fremstur

  á hurðahúni ELKO, þegar útsala á RAFTÆKJUM þar hefst.Tounge

  Hann á titilinn númer 1, aldeilis skilinn.Joyful

  Sömuleiðis ofuráhugagarðhúsasmiðurinn, sem náði

  að æða fyrstur allra inn í Bauhaus við opnun...hann var sko númer 1.Cool

  Svo ekki sé minnst á fyrstu unglingsstúlkuna sem komst inn

  í Lindex, og greip fangið fagnandi fullt af opnunartilboðum....

  VÁV!  Var hún rosalega númer 1.LoL

  Er pottþétt fremst meðal jafninga þetta ágæta fólk,

  og var SANNANLEGA allt númer 1, því fjölmiðlar hafa af stakri

  natni séð um að kvikmynda, ljósmynda og taka viðtöl við

  framúrskarandi fólk þetta og birta síðan í sjónvarpi,

  útvarpi og á síðum fréttablaða okkur Frónbúum til ævarandi

  ánægju og slatta af dulinni öfund.GetLost

  Því hver vill ekki vera númer 1?

  Jamm, sönnunargetan vegur þungt, ætli fyrirtæki að

  setja sig á háan hest, því  mörg eru oft að selja eitthvað

  "óáþreifanlegt", veita "ósýnilega" þjónustu og sum þau

  furðulegustu eru búin að koma inn "þörf" hjá kúnnanum

  fyrir ótrúlegustu hlutum.W00t

  Húsfreyju dettur til dæmis í hug fótanuddtækið fræga,

  ofursprotinn, ofurhrærivélin, plasmaskjáir, smellurammar,

  flautandi húslyklar, fonduepottar og rafknúnir hvítlauksskerar.Shocking

  Já, merkillegt atarna.

  Hsfreyja telur að tryggingarmenn Tortara geti reddað

  "númeraauglýsingu" sinni hæglega.Whistling

  Þeir breyta henni bara örlítið og segja:

  "Númer 0,99 í innheimtu slysabóta, munið bara að námunda",

  og málið er dautt.Devil

  Góðar kvöldstundir á regnvotu miðvikudagskvöldi.


mbl.is Bannað að segjast vera númer 1
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Súkkulaði minnkar líkur á heilablóðfalli!

magnum-double-shockolate-small-81078  GLEÐI!Joyful

  HAMINGJA!Kissing

  ALDEILIS BRILLIANT FLOTTAR RANNSÓKNARNIÐURSTÖÐUR!Heart

  Altént fyrir húsfreyju.Tounge

  Samkvæmt þessum eðal fregnum og "magni" því af súkkulaði sem ofan í maga

  húsfreyju hefur dúndrað um ævina, þá mun húsfreyja ekki eiga á hættu

  að fá heilablóðfall fyrr en á því herrans ári 2230 (lauslega framreiknað).LoL

  Og þá verðu húsfreyja sjálfsagt löngu dauð af einhverri annarri

  óáran, pestarfári, fuglaflenseríi eða þaðan af verra svínaflensusvínaríi,Crying

  ef hún þá ekki týnist  endanlega "á salerni" á hálendinu

  í einhverju sumarfrísflandrinu innanlands( pssst...í guðanna bænum

  munið að leita "í rútunni", týnist húsfreyja í fjallaferð).Shocking

  En pottþétt er húsfreyja á því að "heilablóðfall" verði eigi hennar

  banamein, enda næsta líklegt að húsfreyja hafi á sinni ævi náð

  að "skipta út vatni" í skrokk sínum fyrir eðal súkkulaði.Tounge

  Húsfreyja telur sig þannig vera orðna 70% súkkulaði innvortis,

  og sér fram á langa sykursæta heilablóðfallslausa ævi, þar sem

  jafnvel þvag hennar verður kakólíkt og tárin fallega súkkulaðibrún

  þá hún grætur af hlátri.LoL

  HALLELÚJA!

  Sextíu grömm á dag!

  HÚMBÚKK!GetLost

  Lágmark einn kassi af Prins Póló á dag á menntaskólaárum húsfreyju.Whistling

  Hve mörg grömm í einum slíkum kassa?

  Iss aukaatriði.Halo 

  Húsfreyja var að vinna að heill síns heila og æða hans....og gerir enn...

  SVIKALAUST!Wink

  "Ó súkkulaði, ó súkkulaði,

  þig ég elska

  og ét með hraði.

  Jafnvel þegar ég er í baði,

  eða föst á fjöllum í drullusvaði.

  Ó þvílíkt eðal gúmmulaði.

  Amen".Cool

  Aldeilis fín frétt þetta, hvað húsfreyju varðar, enda

  hún ekki fengið blóðnasir árum saman, eða ekki síðan

  súkkulaði hætti að vera munaðarvara á Páskum og Jólum

  í Vestmannaeyjum bernsku hennar.Tounge

  En skreppa út í sjoppu næst að flikka upp á súkkulaðibyrgðir

  heimilisins......vill ekki missa "súkkulaðimettunina" niður

  í blóðinu, húsfreyju.LoL

  Og svo húsfreyja leggist nú svolítið í ritstuld, vill hún

  ljúka pistli þessum með þessum fleygu orðum:

 Súkkulaði heilann bætir, hressir og kætir.Cool

 Góðar og súkkulaðiríkar stundir.


mbl.is Minnkar líkur á heilablóðfalli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Týnd og leitaði að sér sjálf.

 IMG_2760 Húsfreyja hló upphátt, er hún las frétt þessa.

  Sá fyrir sér þessar sérkennilegu stöðu,

  og getur vel sett sig í spor konunnar, örþreytta að

  hjassast í rútu tímunum saman í þoku og rigningu uppi á litla Fróni:

  "Já, ég var bara allt í einu týnd og tröllum gefin, og hafði

  ekki hugmynd hvar ég var, eða hvert

  ég fór eða hvert ég var að fara.Shocking

  Síðast þegar ég vissi var ég stödd á salerni undir

  jökli á Íslandi, þegar ég ramvillist í einhver föt,

  mála mig og greiði, svo ég hafði ekki hugmynd um

  að lokum hver það var sem glápti þarna á mig

  í speglinum.  Varð um og ó, og þrælaði mér út í rútu,

  en þar rataði ég auðvitað ekki í sætið mitt, svo

  óþekkjanleg og villuráfandi semi ég var orðin.Pinch

  Þá uppgötvaði ég sem betur fer með góðri hjálp ferðafélaga minna,

  að auðvitað var ég bara TÝND, og að ég hafði hreinlega

  alveg TAPAST í bévítans salernisförinni.Whistling

  Svo við ræstum út leitarsveit mikla, og fengum í lið með okkur að

  leita mín.

  Og það gekk bara fjandi vel, því að ég gat að sjálfsögðu

  gefið príma góða lýsingu á sjálfri mér, hæð, þyngd, útliti og

  hverju ég klæddist. Tounge

  Síðan var leitað lengi nætur, eða alveg þar til einhver leitarmanna

  missti út úr sér nafn mitt, og ég gaf mig auðvitað fram.....Halo

  FUNDIN!  SJÚKKIT"!

  Hehehehehe stóðst ekki mátið, húsfreyja.Devil

  Aldeilis dásamlegt að kona þessi var ekki illa týnd, slösuð eða

  þaðan af verra, en eigi að síður skondið HVERNIG hún fannst.

  Gaman að þessu.

  Er sjálf á ferðalagi út í Eyjum, húsfreyja með alla sína herlegu

  fjölskyldu.

  Flytur búslóð systur í Eyjum grimmt og galið enn og aftur....

  í mígandi rigningu í gær en heldur þurrara í dag.

  Nú heldur farið að fjara út á fyrrum heimili systur, svo nú er aðeins

  eftir að fleygja rusli...og fleygja rusli....!

  Hvorki húsfreyja né systir í Eyjum hafa týnst í stórflutningum þessum,

  þó mikið hafi gengið á.....aðeins 2 reiðhjól týnst stutta stund

  í gærkveldi.....leitarsveit heimilismanna fann þau að lokum í

  haug af dótaríi.

  En systir blæs til "draslferðar" eins og hún orðar það,

  svo nóg að sinni.

  Góðar stundir og gott er að muna: LEITIÐ OG ÞÉR MUNUÐ FINNACool


mbl.is Tók þátt í leitinni að sjálfri sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Flutningur, ferðalög og kistur á hjólum?

IMG_2816  Húsfreyja klöngraðist niður snarbrattan

  stigann í húsi systur í Eyjum í 12-ta sinn,

  með þunga körfu fulla af fatnaði, bókum,

  dóti og handklæðum.

  "Jamm, og á þá samkvæmt máltækinu eftir að

  mæta hingað í Eyjar út að minnsta kosti einu sinni enn",

  hugsaði húsfreyja og glotti.Wink

  Þær systur stóðu á haus í því að flytja 9 ár af búskap

  úr húsi systur í stærra hús vestar á Heimaey.

  Þær voru búnar að flytja skápa, kommóður, stóla og meira

  að segja níðþungan þriggja sæta sófa í litla SkódanumW00t

  systur í Eyjum og voru nú komnar upp á efri hæð hússins að

  flytja.

  Þar fleiri kommóður, rúm, hillur ásamt öllu smálega "bráðnauðsynlega"

  dótinu sem við mannfólkið þurfum að hafa í kringum okkur.Whistling

  Systir í Eyjum bísnaðist af og til yfir getu sinni að gjörnýta hvern

  fersentimetra gamla hússins, og reyndi að botna í því hvernig henni hafði

  tekist að fylla húsið, án þess að allt færi í DRASL.Joyful

  Húsfreyja nefndi lauslega föður þeirra systra, sem hafði verið haldinn

  sérstakri söfnunarnáðargáfu:  Safnaði alls konar blaðadóti, jafnvel

  rifrildum úr blöðum og faldi á góðum stað, þar sem við

  systir í Eyjum fundum það fyrst í árlegri jólahreingerningu....Halo

  og þá í alls konar misjöfnu og góðu ástandi....fréttin, myndin eða

  sagan sem hafði verið svo mikilvægt að geyma,

  iðulega komin í tætlur og hengla......og pápi löngu búinn að

  gleyma hví hann vildi geyma.Devil

  Systir í Eyjum staðhæfði staðfastlega, að hún væri ólík föðurnum,

  og hefði alltaf verið duglega að henda öllum óþarfa....."ég líka",

  svaraði húsfreyja, " en við systurnar erum allar líkar pabba með

  það, að við eigum ERFITT með að skilgreina "óþarfa"!Whistling

  Síðan hlógu þær systur báðar, enda ekki annað hægt í stöðunni...

  tvær kellur að standa í stórflutningi á einum Skóda.Tounge

  En allt gekk þetta bísna vel, og þegar húsfreyja var búin að

  fara einar 8 ferðir með systur á Skódanum og búin að ná því

  að klemma litla fingur sinn illilega, svo sá stutti var

  fagurblár og bólgin, mætti systurdóttir og tók 2 ferðir

  með systur, áður en systurdóttir Herjólfaðist upp á land.

  Sumarfrí húsfreyju hafði hafist um miðjan júlí með fögrum fyrirheitum um slökun,

  útsaum, rólegri og fallegri tónlistarhlustun, tiltekt og huggulegheitum.Halo

  Jepp.

  Ekki saumað eitt spor.Sideways

  Gengið 4 kílómetra lágmark á degi hverjum....slökun hvað?Woundering

  Tónlistin....."You don't know you're beautiful..nananana" (One Direction),

  "If I was your boyfriend" (J. Bieber), "Lífið er Yndislegt" (Hreimur) og

  "To night we are young" (Fun) virðast einhverra hluta vegna límd

  í tónlistarhluta heilabús húsfreyju.Pinch

  Gæti eitthvað tengst tónlistarsmekk ellefu ára djásnsins.

  Aðeins eitt rólegt lag virðist hafa náð inn: "Sumargesturinn" (Ásgeir Trausti).Joyful

  Tiltektin?....."hva, þarf eitthvað vera sínkt og heilagt að taka til"?Angry

  Huggulegheitin?  Huggulegheit eru stórlega OFMETIN sem

  skemmtiefni í sumarfríum, er mat húsfreyju,Grin enda gjörsamlega búið

  að vera brjálað að gera í alls konar ferðalögum, fjölskyldumálum,

  og skemmtilegheitum í hennar fríi.

  Til dæmis smellti húsfreyja sér í eina herlega ferð til Sauðárkróks

  með ellefu ára djásninu, þá þær voru norðan heiða í sumarbústað

  með tengdó við Vesturhópsvatnið.

  Mættu í 18 stiga hita, sólskin og blíðu.IMG_2881

  Röltu upp Prestsklauf upp í kirkjugarð, og mynduðu grimmt,

  djásnið hlaut ís í verðlaun fyrir dugnaðin við gönguna....

  er enn að pæla í "visku" manna í "gamla daga" að  rölta alla leið upp

  á nafir með þunga kistu og jarða þar, sú ellefu ára.Shocking

  Tja....húsfreyja veit ekki...henni finnst eitthvað notalega

  gamaldags við svona vinnubrögð.....fyrir tíma vélknúinna

  ökutækja og malbikaðra vega.

  "Ég hefði allavega sett HJÓL undir allar líkkisturnar, svo menn gætu

  RÚLLAÐ þeim upp",Wink ellefu ára djásnið ákveðið.

  Húsfreyja sá fyrir sér STÓRTJÓN og slys, hefðu þá

  "líkrúllandi"-mönnum skrikað fótur við að ýta, og misst kistuIMG_2888

  frá sér á fleygiferð niður brattann.......aaaaaargh.W00t

  Ekki vinalegt að fá einn ekki mjög "lifandi" inn um stofugluggann

  hjá sér í vísiteringu......á hjólum.Pinch

  Húsfreyja og djásn glottu grimmt að pælingum sínum, og röltu niður

  í kaffi og ísinn.

  Vertinn sagði skemmtilega sögu og sýndi "fimmeyringaborð".

  Næsta viðkoma var Maddömukot, þar sem djásn og húsfreyja

  fengu fína vetrarvettlinga, súkkulaði, meira kaffi og spjall.

  Maður á besta aldri fræddi þær um uppbyggingu staðarinsIMG_2891

  yfir kaffinu og var alveg rasandi á breyttum tímum....

  "Hér áður fyrr þekkti ég alla í þorpinu, nú þekki ég bara orðið elsta fólkið"!

  Gangur lífsins.

  Þá var það verslun H. Júlíussonar, ein elsta verslun Sauðárkróks.

  Húsfreyja sveif um á sæluskýi þar inni.

  Gamla Brynjólfsbúð Eyjanna "endurfæddist" henni samstundis.

  Gamla vigtin, stóru skúffurnar, djúpu viðarhillurnar þar sem öllu ægði

  saman.

  Bjarni Haraldsson stórkaupmaður tók hjartanlega á móti þeim mæðgum.

  Sýndi þeim inn í sitt kames...oooo gamlar svarthvítar myndir, nýja

  verslunin sem var byggð "utan um" þá gömlu....átti vin semIMG_2894

  hafði flutt til Eyja, Helga Marinó.....tenging, mikið spjall, gaf

  djásninu ís og að lokum  fékk húsfreyja að mynda kaupmanninn

  fyrir utan verslun sína.

  Og eitt alveg dásamlegt! 

  Fyrir framan verslun H. Júlíssonar ein herleg bensíndæla...við sjálfa

  aðalgötuna....enn í fullri notkun!IMG_2893

  Húsfreyja fílaði Sauðárkrók í tætlur, og rölti um og myndaði grimmt

  með djásninu fram á kvöld, en þá var haldið aftur yfir

  Þverárfjallið heim í bústað.

  Svona ferðalög gefa lífinu gildi og fegurð, og gera húsfreyju

  stolta af landi og þjóð.

  En matur næst, fósturdóttir er í gistingu og mat.

  Góðar síðsumarsstundir.IMG_2884

              IMG_2885


Ef annað segja stjörnur tvær.

 IMG_2663 Bóndi var kúguppgefinn.

  Enda búinn að aka frá höfuðborginni við sundin bláu

  alla leið austur að Skaftafelli.

  Ellefu ára djásnið var rasandi.Shocking

  "Ætlarðu ekki að grilla pabbi, bara af því að við gleymdum

  eldspýtum"?W00t

  Og svo:  "Mamma, ég er SVÖNG, og mig langar EKKI í súpu og brauð"Crying!

  Þrumuskýin hrönnuðust hratt upp yfir höfðum djásns og bóndaAngry, og húsfreyja

  horfði á þau til skiptis hugsandi.

  "Stál í stál", hugsaði húsfreyja, "og hvorugu verður hnikað".

  Já, húsfreyja þekkti sitt heimafólk, og vissi að mergjuð náttúrufegurð

  og spennandi útilega framundan myndi engu um þar breyta.

  Þjónustumiðstöðin við tjaldsvæðið í Skaftafelli hafði klikkað illilega,

  hvað sölu á eldfærum varðaði...."nei, en við eigum helvítis haug af

  minjagripum frá litla Fróni, lopapeysur, ösku í flöskum, póstkort,

  rándýra boli með skemmtilegum áletrunum eins og: "Ég tala ekki íslensku",

  og "Ég hef ekki hugmynd um hvað er skrifað hér"....og já og svo er auðvitað

  hérna fín veitingasala, með KJÖTSÚPU í boði".

  "OJ! Kjötsúpa, mamma" ellefu ára djásnið varð grænt í framan.Sick

  Húsfreyja spurði kurteislega um NÁLÆGUSTU verslun þar sem

  von væri til að fengjust eldspýtur eða kveikjari.Halo

  Freysnesið var í 5 kílómetra fjarlægð.

  Húsfreyja smellti sér undir stýrið og brunaði með

  djásn og bónda í Freysnesið.IMG_2726

  HALLELÚJA!

  Þar var hægt að fá steikta hamborgara og franskar og fleira

  gott ofan í ellefu ára Reykjavíkurmær, sem hafði vissar efasemdir um

  að fara svona LANGT frá höfuðborginni og það í útilegu...."KOMMON, mamma og pabbi"!

  Húsfreyja splæsti hömmurunum.

  Bóndi alsæll...þurfti ekki að grilla.Tounge

  Ellefu ára djásnið alsæl...þurfti ekki að SVELTA heilu hungri

  vegna eldspýtnaskorts.LoL

  Húsfreyja alsæl....öll þrumuský á bak og brott.Whistling

  Og hammararnir alls ekki sem verstir.

  Kona "gólaði" skyndilega hátt á næsta borði og maðurinn við hlið hennar hrópaði:

 "FO'FANDEN"!W00t

  Hammaraborðandi fjölskylda húsfreyju hrökk í kút.

  Var danska fólkið að missa vitið í miðju ferðalagi um íðilfagrar sveitir litla Fróns?Pinch

  Eða var pizzan sem þau dönsku voru að snæða svona mikill VIÐBJÓÐUR?Sick

  Neipp.

  Á stórum vegg aftan við borð húsfreyju og kó, var stór 2007-flatskjár.

  Þar voru danskir handboltamenn að brasa við berja á andstæðingum sínum.

  Fleiri danskir mættu í Freysnes, og settust umhverfis húsfreyju

  og fjölskyldu.....fleiri pizzur...gólað hærra og fo'fanden-upphrópanir mögnuðust

  að miklum mun.

  Húsfreyja var farin að fíla sig sem ferðalangur á danskri grund.GetLost

  Sæti með sinni ekta fjölskyldu á hammarastað í Köben....eða nei,

  of flatt.....við Himmelbjerget....öööööö....neipp gekk ekki upp

  heldur, Himmelbjerget bara hóll á frónverskan mælikvarða.Whistling

  Jæja, líklega bara á danskri nýlendu í NoregiDevil.

  Það gekk mikið á, enda danskir handboltamenn að vinna leikinn.

  Spillti samt ekki matarlyst litlu fjölskyldunnar á nokkurn hátt.

  Húsfreyja splæsti að lokum eldspýtum og kveikjara á

  sig og sína herlegu fjölskyldu, og haldið var heim í tjald.

  Frónverska sumarnóttin var svöl, og ellefu ára djásnið,

  svaf í flís-heilgalla, ullarsokkum og með hettuCool.

  "Blessað borgarbarnið" hugsaði húsfreyja og sofnaði brosandi.

  Það var ekkert svalt við næsta dag.

  Sólskin og 18 stiga hiti strax klukkan níu að morgni.

  Ekki líft í tjaldinu.

  Vatnajökull skartaði sínu fegursta, skjannahvítur og tignarlegur.

  Húsfreyja og bóndi þræluðu djásninu í gönguferð upp að Svartafossi,

  eftir léttan morgunverð.

  Sú ellefu ára var ekki par hrifin við upphaf ferðar,

  en þegar hún fékk að vaða við Hundafoss og svo að

  lokum Svartafoss, brosti hún allan hringinn.SmileIMG_2772

  Kom smá babb í bátinn á niðurleið.

  Húsfreyja fékk hnút í magann þegar þau mættu

  lítilli stúlku á að giska 8-9 ára gömul og einsömul með

  lítinn 4-5 ára dreng sér við hönd.

  Voru ein á leið upp að Svartafossi.W00t

  Ellefu ára frænka hafði gefist fljótlega upp á göngunni og

  ætlaði að BÍÐA þeirra á miðri leið.

  Húsfreyja efaðist stórlega um visku frónverskra foreldra, sem sendu

  ung börn einsömul í fjallgönguAngry, og sendi frænkuna með hraði,

  þá hún mætti henni sitjandi á stein, niður að láta foreldra vita

  af börnum sínum, og fékk einnig frónverska fjölskyldu á

  uppleið til að fylgjast með ferðum barnanna.

  Allt fór málið samt á besta veg, og börnin skiluðu sér niður aftur

  heil á húfi, en það var ekki foreldrunum að þakkaPinch.

  En húsfreyja og djásn brugðu sér aftur upp á brún að Hundafossi,

  og óðu um í svalri fjallaánni, og skoðuðu eldgamla rafstöð frá 1925.

  Ungt, hresst fólk, hópur frá Ameríku spjallaði stuttlega við þær mæðgur,

  tætti sig síðan úr hverri spjör og baðaði sig í fossinum fyrir ofan rafstöðina.Blush

  Miklir skrækir, hlátur og gleði hjá Könunum yfir þessu stóra náttúrulega

  sturtubaði.LoL

  Bóndi GRILLAÐI eðal kjúlla um kvöldið, enda nú vel vopnaður eldfærum.Halo

  Djásnið var alsælt, og ekki versnaði líðanin þegar foreldrarnir

  röltu með djánsinu eftir kvöldmatinn inn að Þjófafossi og upp gilið og hún fékk að

  vaða enn og aftur.

  Hvað með það þó þau villtust aðeins inni í gilinu, og yrðu að klífa snarbratta

  birkivaxna hlíð upp úr því....komust við illan leik upp á göngustíg aftur,

  og húsfreyjka hundblaut í fæturWhistling.

  Bara stuð.

  Fundu gamlar bæjarrústir og ellefu ára djásnið tapaði sér

  í dularfullum grasivöxnum, djúpum holum og gróðri.

  Var ljúft ferðalag hjá húsfreyju og hennar litlu fjölskyldu.

  Djásn og bóndi fóru bak við Seljalandsfoss í fyrsta sinn

  á leiðinni austur og alla leið upp að Svartafossi í fyrsta sinn,

  í Skaftafelli.

  Húsfreyja var nú meira upptekin af því að reyna að koma auga á

  gullkistu Þrasa í Skógarfossi á austurleiðinni....Tounge, enda búin

  að fara bak við Seljalandsfoss margoft, og tvisvar upp að

  Svartafossi áður.

  Suðurlandið í bongóblíðu uppi á litla Fróni er bara með fallegustu stöðum á jarðríki

  var einróma álit litlu fjölskyldunnarWink...."og alveg ROSALEGA gaman að

  VAÐAGrin"!

  En í sjónvarpinu er einhver búin að "kasta sér upp í bronz-sætið"Tounge,

  svo húsfreyja ætlar að kíkja á Ólympíuleikana næst.IMG_2779

  Góðar og sólríkar sumarfrísstundir.

 


Allt er best á Íslandi!

 a.aaa-funny-dog-pray-unique Hin íðilfagra og ljúfa fyrirsæta, Elettra Wiedermann

  er ánægð með litla Frón, og getur jafnvel hugsað sér að

  setjast hér að...þó ekki nái hún því að

  klífa Snæfellsjökul og gifta sig þar, eða smella sér í

  Dómkirkjuna við Austurvöll og láta frónverskan prest pússa

  þau hjónaleysin saman.Whistling

  Neipp, þá er Nýja Jórvík Kananna vænlegri giftingarstaður.

  En hér gæti hið undurfagra fljóð vel hugsað sér að mæta

  í brúðkaupsferð með hundinum Happy...og já og auðvitað

  brúðgumanum (..eða hann hlýtur að eiga að vera með í för, haldið þið þa'kki?)Tounge

  Og síðan vill hið eðla fljóð jafnvel flytja sig úr sinni heimasveit

  alla leið upp á litla Frón með bónda sinn, Happy hund og allt sitt hafurtask.

  Enda allt með eindæmum gott á Íslandi.W00t

  Maturinn frábær (dýr, en frábær), fólkið það fallegasta í heimi (altént það sem er ekki

  ekki flutt af landi brott til Noregs, eða er við það að flytja af landi brott til

  Noregs, eða er að HUGSA um að flytja af landi brott til NoregsPinch),

  landið rosalega flott ( allavega þar sem ekki er verið að virkja,

   og sökkva náttúruperlum, eða þar sem menn eru búnir að rússa um á

  grófdekkjuðum farartækjum þvers og kruss um viðkvæmar óbyggðirGetLost),

  og jafnvel KREPPAN er best á litla Fróni.

 TÓKUM HANA DÝPST OG KRAPPASTAngry ALLRA ÞJÓÐA.

  Jamm húsfreyja skilur vel að hin svaðalega sæta Elettra vilji

  flytja hingað upp á litla Frón.

  Hér drýpur smjörið af hverju strái sumarlangt...nema auðvitað hjá

  bóndanum í Selvogi, þar eru túinin eyðimörk eftir þurrkatíð mikla.Woundering

  Skjaldborg heimilanna svona asskoti fín og flott, bráðum, næstum því

   alveg að verða fokheld, bankar allir upprisnir og bankamenn aftur farnir að

  fá ARÐ, og útgerðin, já útgerðin!

  Þar er reyndar allt í tjóni og tjöru hjá þeim örmu og vesölu

  útgerðarmönnum.Errm 

  Þeir hafa ORÐIÐ að eyða nokkrum milljónum af sínum ARÐI í rándýrar

  sjónvarpsauglýsingar, þar sem þeir fá samúðarfulla Frónbúa til

  að gráta fyrir þá og vorkenna þeim ægilega.Pinch

  Aumingja útgerðarkarlanir!

  Þeir eiga víst að fara að skila "kvótanum", sem ríkið GAF þeim hérna um árið.

  Kvótinn á sem sagt að verða þjóðareign aftur, og arði af honum skal skipt

  niður á mun fleiri hendur , en hingað til hefur tíðkast.

  Ææææ, það verður hart í ári hjá útgerðarmönnum um ókomna tíð,

  og næsta víst  að þeir verði að selja húsin sín úti á Spáni,

  svo þeir eigi fyrir salti í grautinn sinn.Whistling

  Jamm, en þessu þurfum við ekkert að vera velta hinni íðilfögru drós,

  Elettru upp úr.

  Hún er hjartanlega velkomin upp á litla Frón með hund og ektamaka.

  Og langi hana í útivistarferðir upp á fjöll og firnindi með hundinn Happy...og

  já bónda sinn, og týnist illilega, eins og virðist nokkuð

  vinsælt hjá ferðamönnum á Fróni nú til dags,Halo

  þá er lítið mál að redda því.

  Við erum jú með hrikalega duglegt björgunar-og leitarfólk

  í "sjálfboðastörfum", sem leggur nótt við nýtan dag og leitar

  villuráfandi ferðamanna á hálendinu sumarlangt.

  Notar þyrlu og allt.Wink

  Gott mál.

  Gaman að þessu.

  Góðar stundir á hlýjum sumardögum.


mbl.is Fyrirsæta lofar Ísland í hástert
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Heyrðu vinur, þú ert að drukkna við...

  lifeguard-advice-5...KOLRANGT strandsvæðiPinch!

  Það þýðir ekkert fyrir þig að garga á hjálp

  þarna hægra megin við baujuna....geturðu ekki reynt að

  svamla þér hérna yfir á MINN strandhluta, og drukkna þar?Whistling

  Ég skal sko svoleiðis redda þér í einum hvínandi hvelli bara ef

  þú fleytir þér eins og 10 metra til suðurs, ha?Cool

  ......   .... .... .....KOMA SVO!

  Með krampa og að fara í fjórða sinn á bólakaf.....déskoti er  heyra þetta,Errm

  og þú algjörlega svaðalega VITLAUST STAÐSETTUR Í SJÓNUM, VÆNI MINN.W00t

  Reyndu nú bara að láta strauminn bera þig hingað yfir á mitt svæði, félagi...

 ég drösla þér síðan í land og málið er dautt!Halo

  Í alvöru!?  Í ALVÖRU!?Pinch

  Ætlarðu að láta mig MISSA VINNUNA, vinur?....vinur.....VINUR"!!!?Shocking

  HANG ON!  I'M COMING"!W00t

  Hehehehe stóðst ekki mátið, húsfreyja.

  Hefur aldrei áður heyrt, að maður í lífsháska á hafi úti við sólarströnd,

  geti verið svo "illilega vitlaust staðsettur" í sjónum, að ástæða sé til

  að reka björgunarfólk úr starfi, komi það honum til hjálpar!Pinch

  Alveg með ólíkindum, eða er til einhverjir aðrir kostir í stöðunni en

  þessir tveir?

  Í fyrsta lagi, koma manninum til hjálpar og bjarga honum,Halo eða

  þá öðrum kosti hreinlega láta hann DRUKKNA, rangstæðan og

  villusvamlandi?Shocking

  Neipp!

  Frétt þessi sannar enn og aftur fyrir húsfreyju, að orðtakið góða:

  "Kaninn er Klikk" á töluvert mikinn rétt á sér.Devil

  Góðar stundir, og í guðanna bænum reynið að verða ekki "rangstæð"

  í sjónum við strendur Florida, liggi leið ykkar þangað í frí.

 


mbl.is Bjargaði mannslífi en var rekinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rasandi hissa....

Justin_Bieber  ...húsfreyjaW00t, á því stórfurðulega undri

  að Harpan sé að orðin fjárhagslegur

  HRAKFALLABÁLKUR hér niður við sundin bláu

  höfuðborgarinnar.Frown

  Undur og stórmerki!W00t

  Hvernig má þetta vera?

  Með alla þessa" moldríku" frónversku listamenn

  búandi í landinu, sem allir eiga sæg af seðlum og

  fengu ekki einu sinni bankahrunsverk í litlu tána,Halo

  þarna um árið sem Geir bað Guð fyrir alla muni að

  blessa Ísland, og sem hafa ALLIR sem einn "efni" á því að

  "leigja út sal" í Hörpunni undir sjálfa sig og list sína. Whistling

  Já og með alla "enn ríkari" Frónbúana, sem sækja

  tónleika og aðra listræna viðburði grimmt..helst

  þrisvar á það sem er í boð í Hörpunnii.Devil

  Já, vellauðugu Frónbúana sem tóku hrunið í nefið og finnst orðið sjálfsagt

  að snýta heldur blóði, en að spara við sig í tónleikaferðum,

  málverkaglápi og listaverkakaupum.GetLost

  Kunna að forgangsraða "rétt"!

  Neipp, húsfreyja er rasandi forviða og undrandi á, að

  Harpan þurfi jafnvel frekari framlög frá skattgreiðendum...og

  er það ekki algjörlega ÝKT klikkað að rekstraráætlanir hennar séu

  á veikum grunni reistar?Shocking

  Hvað með það þó einn ágætasti lagasmiður og trúbador Frónbúa,

  Bubbi Morthens telji fráleitt að greiða SMÁPRÍS fyrir

  tónleikahald í Hörpunni....var hann ekki bara að fara að

  halda fermingarveislu, brúðkaupsveislu og jarðaför allt á sama

  tíma, svo lausafjárstaða hans hefur verið örlítið erfið.Wink

  Ekki fór hann illa út úr hruninu og kreppuæði fremur en nokkur

  annar listamaður uppi á litla Fróni.......

  eða hvað?

  Hehehe... húsfreyja stóðst ekki mátið.Tounge

  Hún hefur tvisvar komið í Hörpuna síðan þar var opnað.

  Í fyrra skiptið í fría skoðunarferð, í seinna skiptið á

  frían fyrirlestur um Parkinson- og Alzheimerslyf.

  Þokkalega huggulegt hús, það vantar ei, en ekki er

  húsfreyja á leiðinni þangað á nokkurn þann listrænan viðburð

  sem þarf að greiða fyrir.

  Hefur hana þó langað á þá nokkra tónleikana þar, t.d. Mugison.

  Fjárhagur hennar leyfir ekki slíkan lúxus.Errm

  Hennar helsti framtíðaruggur varðandi Hörpuna er,

  að þangað komi ungur maður að nafni Justin Bieber með

  tónleika....og þá er húsfreyja í djúpum!Pinch

  Ellefu ára djásnið lifir og andar Justin Bieber og tónlist hans.Joyful

  Fyrirgæfi móður sinni ekki einu sinni á grafarbakkanum,

  fengi hún ekki að mæta á tónleika hans.

  Jæja, húsfreyja gæti kannski tekið út annað veð í íbúð sinni,

  mæti Bieberinn í Hörpuna, svo djásnið fengi að berja goð sitt augum.LoL

  En hvíla lúin bein næst.

  Góðar "listrænar" stundir í sumar.Wink

 


mbl.is Hrakspár vegna Hörpu að rætast
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband