Færsluflokkur: Spaugilegt

Gestrisni á Norður-Kóreskan máta.

pg-24-north-korea-g_178232s  Húsfreyja er alvarlega að hugsa um að bregða sér

  í eina herlega túristareisu til N-Kóreu í

  sumarfríinu sínu þetta árið.Whistling

  Aldeilis flott að fá tvo "prívat" leiðsögumenn, þá

  maður stígur fæti á N-Kóreska grund.Wink

  Leiðsögumenn sem spretta upp sem gorkúlur, um leið

  og húsfreyju hugnast að skreppa og skoða eina

  "Sung-styttu" af stærri sortinni...eða er það

  "Il-stytta" í dag?

  O, jæja húsfreyju er nokk sama, getur vel hugsað sér að skoða

  styttu af "Illanum", og það þó hún verði að bugta sig og beygja líkt

  og gráklæddir heimamenn gera í fjarska.Tounge

  Fínasta leikfimi að beygja sig og teygja.Devil

  Nú síðan væri aldeilis magnað að skreppa á "sína eigin prívat túristaströnd",

  fá sér sundsprett með öðrum leiðsögumanninum...auðvitað ekki

  auðvelt að "rata" í sjónum við N-Kóreska strendur,Grin

  og margfalt öryggi þar með að hafa góðan leiðsögumann

  sér við hlið.

  Væri hrikalegt ef húsfreyja ramvilltist í sjónum þar austur um,

  og tæki bara stefnuna út á Gula Haf....finndist máske seint og um síðir

  á kínverskri strönd hinu megin, örmagna, uppþornuð og saltkrumpuð eins

  og sveskja.Pinch

  Tæki 20 kíló af "botoxi" til að slétta úr henni aftur eftir svoleiðis svaðilför.Crying

  Nei, þá er öruggara að hafa fínan leiðsögumann svamlandi

  sér við hlið.....nú, ef húsfreyju dveldist eitthvað sundið,

  jafnvel með eitthvert krampavesen í fótum, þá myndi sá

  snarpi leiðsögumaður sjálfsagt vippa sér í hlutverk

  strandvarðar, og damla með húsfreyju á bakinu upp

  á sína prívat túristaströnd, og blása í hana lífi.

  Jamm, aldeilis snjallir menn N-Kóreumenn, þegar kemur

  að því að huga vel að túristum.

  Ekki væri síðan verra að skreppa á flotta "prívat túristapöbbinn"

  og skella í sig einum köldum, í góðum félagsskap leiðsögumannanna.Cool

  Húsfreyja myndi rápa á milli tómra drykkjabásanna,

  spá í arkitektúrinn, sætisáklæðin og tómatsósuflöskurnar á

  borðinu...eða nei!W00t

  Tómatsósa er víst "kapitalísk" uppfinning, svo líklega

  væri hana hvergi að sjá á pöbbnum.GetLost

  Vesen!

  Húsfreyja er alltaf svo hrifin af því hvernig "rauði litur"

  tómatsósuflaskanna rífur upp litasamsetningu pöbba

  í hinum vestræna heimi, og setur svolítið fútt í stílinn

  í innanhússarkitektúrnum.LoL

  Jamm, en kannski að húsfreyja gæti stungið því að

  leiðsögumönnunum, að ræða þörfina á tómatsósuflöskum

  á túristapöbbum, næst þeir mæta hjá Illanum í viðtal.

  Gætu bætt þessu svona í lokin á skýrslu sinni, um hversu

  oft húsfreyja bugtaði sig og beygði fyrir Illastyttunni,

  hversu oft hún lofaði og mærði fegurð og fjölbreytileika

  N-Kóreskar menningar og hversu dásamlegt henni finndist að hafa

  "tvo" prívat leiðsögumenn með í för.Halo

  Já, og er ekki "rauður" litur byltingarinnar, sem kennarar gala

  á háa séinu yfir hrifnum og uppnæmum nemendum sínum í skólum

  N-Kóreu...á meðan Illinn horfir ströngum en mildum augum

  niður á verðandi "túristaleiðsögumenn", hermenn og kokka í

  bekkjum, hangandi myndrænn á nagla fyrir ofan höfuð

  kennarans?Woundering

  Já, þær rauðu flöskur tómats myndu sóma sér vel

  við mannlaus borðin á pöbbum N-Kóreu.

  Og húsfreyja gæti líka hugsað sér, að stinga því að Illanum

  í leiðinni, að hafa barmmerkið sem allir íbúar næla í

  "grá" föt sín, og sýnir stranga en um leið milda ásjónu

  Illans, í öllum regnboganslitum.

  Setja smá lit í tilveruna hjá íbúum N-Kóreu...sem húsfreyja sæi

  að sjálfsögðu aðeins sem "gráar" þústir í fjarska, um leið

  og gráklæddir hermenn valhoppuðu "gæsagang" (GRÁgæsa að sjálfsögðu)

  framhjá henni á einhverju Illastyttu-prýddu  byltingartorginu.Devil

  Jepp, húsfreyju líst æ betur á sumarfrísferð til N-Kóreu...og nú ætla

  Kínverjar og Kanar að biðja Illann góðfúslega að sleppa því

  að hafa kjarnorkustríð á dagskrá sinni á næstu dögum,

  svo þarna verður brátt allt í friðsæld og myljandi "grárri" lukku.Halo

  Gleði!

  Plana sumarfrí næst.

  Góðar stundir, og gangi ykkur vel að skipuleggja sumarfríið.


mbl.is Súrrealísk ferð til Norður-Kóreu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Af Herjólfi, uppspúnum líffærum ofl.

IMG_2787  Aflminni Herjólfur, er boðorð dagsins.Woundering

  Gott og vel.

  En hvað með "siglingartímann" milli lands og Eyja? Shocking

  Nú er húsfreyja með sjóveikari konum sem uppi hafa verið á litla Fróni,

  og þó víðar væri leitað.Whistling

  Þriggja tíma martröðin milli Þorlákshafnar og Eyja er henni til að mynda

  algjörlega ofviða.Pinch

  Ælir sem Múkki og spýr tæpa tvo tíma af þeim þremur, sem tekur að

  berjast á milli þeirra hafna, þá hún neyðist til að taka Herjólf

  út í Eyjar að vetrarlagi.Crying

  Grátbiður áhafnarmeðlimi að FLEYGJA sér útbyrðis hið snarasta,

  og binda þannig enda á arma vesöld sína og mergjaða vanlíðan,

  heltekin af sjóveiki og angist, strax eftir rúma klukkutíma siglingu.Frown

  Það sem verra er, er að 12 ára djásnið er öllu sjóveikara, en

  æludruslan, móðirin, og byrjar að æla strax eftir 50 mínútur á sjó.

  Móðirin ekki í nokkru standi að stumra yfir náfölu djásninu,

  með fulla ælupoka, og salernishalup, liggur emjandi í

  koju, í sófa, úti á dekki  eða hvar sem örlögin hafa holað henni niður

  um borð í koppnum Herjólfi, þjáist og barmar sér.Sick

  "Hvernig í ósköpunum datt henni, ábyrgri móður og hjúkrunarfræðingi

  í ofanálag, að hætta svona illilega lífi og innri líffærum sínum og djásns,

  með SJÓFERÐ ferð til Vestmannaeyja í HEILA ÞRJÁ KLUKKUTÍMA um borð

  í Herjólfi"?Pinch

  Sjálfsásökunin og sektarkenndin er að sliga húsfreyju,

  og slær allhressilega í vanlíðanina og sjóveikina.

  "LIFE IS A BITCH, AND THEN YOU GET SEASICK"Angry, er slagorð

  sem húsfreyja samdi fyrir mörgum árum, eftir eina hroðalega

  sjóveikisferð til Eyja með Herjólfi.

  ( Spjó upp 3 vikna gallbirgðum, hálfri lifrinni,

  og einu lunga í þeirri viðbjóðsferðinni)Pinch.

  "Life is a bitch, and then you die...piff...bara húmbúkk!

  EKKERT slær út alvöru sjóveiki...dauðinn sjáldsagt aðeins kærkomin lausn,

  í samanburði við það helvíti.Errm

  Svo það er von að húsfreyja spyrji:  "Hvað um siglingarTÍMANN"?

  Mun "aflminni" ferja vera LENGUR í ferðum á milli lands og Eyja?

  Því þetta er spurning um mínútur...í alvöru, þegar kemur að

  djásni, húsfreyju og SJÓVEIKI.

  Djásn og húsfreyja fóru bísna oft með Herjólfi í Eyjar út í fyrrasumar,

  og 45-50 mínútna siglingin frá Landeyjahöfn þoldist svona svaðalega vel af báðum.Joyful

  Engin sjóveiki, engar ælur, engin örvænting.Wink

  Þær eins og nýslegnir túskildingar, er í land kom.

  Engin vesöld og lystarleysi né sjóriða í marga tíma á eftir sjóferð.

  Bara gleði og myljandi hamingja yfir því að hafa aftur fast land undir fótum.

  Jamm.

  Hvað verður nýr og AFLMINNI Herjólfur LENGI á siglingunni milli

  Landeyjahafnar og Eyja?

  Erum við að tala um siglingu upp á sama tíma og með gamla koppnum,

  eða er verið að LENGJA sjóferðina tímalega séð?

  Er verið að bjóða upp á rúman klukkutíma...jafnvel einn og hálfan

  þar á milli?

  Djásnið er heillum horfin með andlitið ofan í æludallinn, lengist

  ferðin svo mikið...húsfreyja tæpari en allt sem tæpt er.... og

  gæti farið svo að hún ældi upp "hinu lunganu" fari reisan mikið yfir

  klukkustund að tímalengd.PinchSick

  Vesen þar með upp á 11,2 á "vesen-skala frá 1-10", fyrir húsfreyju

  og 12 ára djásn að fara út í Eyjar með Herjólfi.Angry

  Og telur húsfreyja, að svo verði með alla sjóveika, sem af geðveikri

  bjartsýni kaupa sér ferð með Herjólfi til Eyja.

  Nema auðvitað að húsfreyja og djásn séu "einstök fyrirbæri í tilverunni",

  kannski af mergjaðri "sjóveikisætt" langt aftur í ættir,

  æluvesalingar, arga landkrabbar, guðsvolaðir aumingjar á sjó og

  sjóferða-afturkreistingar.GetLost

  Aldrei að vita.

  En húsfreyja vonar heitt og innilega að "aflminni" nýr Herjólfur

  verði jafnfljótur í ferðum og sá eldri...ef ekki fljótari.Tounge

  Góðar stundir og gleðilegar Eyjaferðir í sumar.

 


mbl.is Nýr Herjólfur verður aflminna skip
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Af hrísgrj...Landeyjahöfn, jarðgöngum ofl.

 cimg3027_1194521.jpg Í niðurskurði kreppu og hruns,

  hafa greiðar samgöngu um litla Frón vegið

  æ þyngra, þegar kemur að öryggi þeirra sem

  búa úti á landi.

  Skurðstofum sjúkrahúsa úti á landi verið lokað í sparnaðarskyni.

  Fæðingarþjónustu lokað eða haldið í lágmarki við fæðandi

  konur, sem fæða sín börn vandkvæðalaust....hinar fara á blikkandi

  ljósum í höfuðborgina eða á fjórðungssjúkrahús, sem hafa fengið

  að lafa með flókin inngrip í lífshótandi aðstæðum.

  Hvað þá með Eyjamenn?

  Enginn er vegurinn.

  Jú, það er flogið með bráðveika...ef flugfært er.

  Nú ef svartaþoka skellur á, eða stormur stendur upp á flugvöllinn,

  þá er lítið, ef þá eitthvað, flogið.Errm

  En síðan er það blessaður koppurinn, hann Herjólfur.

  Þrír tímar í Þorlákshöfn á vetrum, og þá er eftir að blússa

  "babú" Þrengslin til Reykjavíkur.Pinch

  Menn hafa steindrepist á mun skemmri tíma en rúmum þremur tímum,

  með hjartverk, heilablæðingu, sprunginn maga eða  sprunginn botnlanga,

  fyrir utan hörmungina að missa barn í móðurkviði "á leiðinni" í

  bráðakeisara á næsta sjúkrahús.

  Já, samgöngur hafa alltaf skipt máli, en aldrei sem nú.

  Og til að bæta nú verulega samgöngur við Eyjar hér um  árið, var skellt

  upp einni herlegri höfn við ósa eins af stórfljótum landsins, Markarfljóts,

  Landeyjasandsmegin,  með bullandi sterka sjávarstrauma

  rótandi aur og sandi tvist og bast um strendur Suðurlands.Pinch

  Eðal fín staðsetning.

  (Jú, kannski fyrir "hrísgrjónaakur", er mat húsfreyju.

  Mætti vel sía burt mestu sjávarseltuna, og rækta fínustu hrísgrjón

  í eðalfínum blautum aurnum.Devil)

  Altént er höfnin sú ágæta, að nýtast bísna vel þriðjung úr ári,

  þegar veður eru sem blíðust, og vindar þagna af og til stundarkorn

  við suðurströndina.Whistling

  Er það þar með stefna stjórnvalda, að senda Eyjamönnum

  á barnseignaaldri áskorun um að stíla barnsfæðingar allar

  upp á vor og sumur?W00t

  Jafnvel setja lög um "leyfilegan do-do-tíma" í Eyjum?Tounge

  Eingöngu "do-do" frá ágústlokum til loka desember ár hvert, leyfilegt,

  að viðlögðum sektum, gerist menn brotlegir og barn kemur undir á öðrum tíma?Devil

  Já, og ennfremur, munu  stjórnvöld senda eldheita áskorun til allra Eyjamanna,

  að vera ekki að vesenast með "alvarleg bráðaveikindi" um hávetur,

  í snarvitlausu veðri, þá flug liggur niðri og allt er hvort eð er í fári með

  Landeyjahöfn, og Herjólfur búinn að afboða ferðir í Þorlákshöfn!?GetLost

  Hljóta að sjá það sárlasnir Eyjamenn, að þetta er "sjálfsögð" tillitsemi

  við niðurskurðaróð stjórnvöld, að harka af sér í illviðri á veturnar,

  og mæta síðan, fárveikir, líkgráir og nánast með tærnar upp í loft, næst þegar viðrar

  í flug, eða í notalega "stutta" siglingu til Þorlákshafnar.Pinch

  Jamm, merkilegt þetta samgöngumál Eyjamanna.

  Húsfreyja er hægt og bítandi, af fenginni reynslu af "samgöngubótinni",

  Landeyjahöfn, að snúast á sveif með jarðgöngunum hans Johnsen.Wink

  Telur að altént ætti að skoða málið, og kanna hvort

  þetta sé raunhæfur möguleiki.

  Það búa 5000 manns í Vestmannaeyjum allt árið um kring.

  Og síðan er einhver ótölulegur fjöldi af ferðamönnum á

  ferðinni þangað út, og með mislanga viðveru allt árið um kring.

  Samgöngur við allan þennan mannfjölda mega ekki klikka, er mat húsfreyju.

  Skoðum göngin hans Johnsen.

  Eyjamenn gætu orðið heppnir, og annað Hvalfjarðargangnaberg fundist

  milli lands og Eyja....og þá er bara að spýta í lófana

  og byrja að moka og sprengja.Winkcimg3033_1194513.jpg

  Yrði rífandi vinna í þessu fyrir fjölda manns, í ofanálag.

  Og er ekki málið að byggja upp atvinnu og spyrna við kreppu og hruni.

  Góðar stundir, og vonandi verður bongóblíða í Eyjum, þar til samgöngur

  við þær, eru tryggar orðnar Cool.

 


mbl.is Jarðgöng til Eyja verði áfram skoðuð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sprengjum þetta áhlaup....

IMG_3203  ...af okkur Frónbúar, eins og allt annað.Wink

  Tólf ára djásnið fékk akstur í skólann í morgunn,

  gölluð upp og kappklædd.

  Bóndi stóð ábúðarmikill með símann í höndunum....

  "þú tekur ekkert bílinn út úr bílskúrnum í dag", beindi

  orðum sínum til nývaknaðrar húsfreyju, sem reyndi að

  "gá til veðurs" út um snjóuga stofuglugga sína.Pinch

  "'Ég var að tala við hann Jón vinnufélaga minn, hann býr fyrir austan fjall.

  Hann varð næstum því úti, þegar hann festist neðst í Kömbunum,

  og varð að snúa við í morgun".

  Húsfreyja græjaði djásnið...skólum ALDREI lokað vegna óveðurs

  í borginni við sundin bláu.Shocking

  Bóndi ók henni síðan í skólann.

  Læða breimaði ámátlega við fætur húsfreyju, sem var loksins

  nægilega vöknuð, til að kveikja á því að hún hafði ekki eignast

  nýjar hvítar blúndugardínur fyrir stofufluggann yfir nótt, heldur

  var glugginn hlaðinn snjó utan frá.Pinch

  Jamm.

  Húsfreyja mændi út í hvítan sortann....."hvítan sortann"...

  hvaða ekkisens endaleysa.....var til hvítur "sorti"?Shocking

  Mændi út í ..."hvortann"...???W00t

  "Nei, fjandakornið, þetta var bara bull", húsfreyja glotti með

  sjálfri sér og ákvað að hætta að reyna sjá eitthvað út um sína glugga.

 " Ekkisens óveður var þetta", Eyjamaðurinn í húsfreyju ekki vanur

  snjóbyljum..."en hinsvegar hefðu frændur mínir fyrir norðan á Húsavík

  hlegið að svona veðri og tekið það í nefið", hugsaði húsfreyja minnug

  þess, þegar hún hafði eitt sinn barist upp á líf og dauða við

  ekta norðlenskan snjóstorm á Húsavík, á leið sinni frá Borgarhól

  upp á sjúkrahúsið á Húsavík, vinnustað húsfreyju.

  Svei, ef húsfreyja var ekki farin að sjá "ljósið", hangandi helköld og

  hundblaut á ljósastaur 10 metra frá anddyri Húsavíkursjúkrahúss

  í það sinnið.Halo

  Svo blindur var snjóbylurinn, að sleppti húsfreyja krampakenndu

  taki sínu af ljósastaur þessum á Húsavík, og rétti út handlegginn,

  þá hvarf henni höndin sjónum frá úlnlið fram á fingur.

  Hékk húsfreyja því góðar 20 mínútur á staurnum góða.PinchIMG_3199

  Þó hún væri aðeins nokkur skref frá anddyri, hlýju og öryggi,

  hafði hún ekki hugmynd um það. 

  Vissi ekkert hvar hún var, í hvaða átt hún átti að fara og

  því síður vissi hún  HVAR sjúkrahúsið var statt

  í þessum sort.... blindandi snjóbyl.Crying

  Taldi næsta víst að spítali Húsvíkinga hefði fokið burt,

  alla leið út í Kelduhverfi jafnvel, með offorsinu, húsfreyja.Pinch

  Sá fyrir sér fyrirsagnir dagblaðanna:

  Sunnlenskur fáráður og hjúkrunarfræðingur

  varð úti, hangandi á ljósastaur.

  Rataði ekki á vinnustað sinn, sem var í 10 metra fjarlægð.

  Varði henni til lífs, að veðrið sló eitt augnablik af, svo

  sást grilla í sjúkrahúsið, ófokið og steinþegjandi.

  Sló heimsmet í hlaupi í "stuttri vegalengd", húsfreyja

  þann morguninn á Húsavík.Grin

  Þar norðan heiða var snjónum síðan svolítið rutt til hliðar,

  hann þjappaður niður, svo götur allar hækkuðu um 2 metra,

  og fólk hélt leiða sinnar til vinnu, skóla og ferða eins og áður.

  Hér í borginni við sundin bláu, er verið að moka "stoðleiðir",

  síðan "safnleiðir" (sem húsfreyja hefur ekki hugmynd um hvað er,

 nema ef vera skyldi að þetta væru göturnar sem lægju að

  "söfnum borgarinnar"Tounge) og að lokum götur í úthverfum.

  Og þeir eru heitir út í óþolinmóða Hafnfirðinga fasta hist og hér,

   mokstursmenn..."verður ekki byrjað að moka í úthverfum fyrr en

  búið er að moka allar "safnleiðir"!

  Jaso, þeim bráðliggur sjálfsagt á "söfnin" sín í óveðrinu.Devil

  En 12 ára djásnið er komið heilu og höldnu heim úr skóla,

  og sól farin að glotta á sólpall húsfreyju...en grillið bónda

  átti aldrei neinn sjens...er drukknað í snjó.

  Góðar stundir á snjóugum degi uppi á litla Fróni.IMG_3200


mbl.is „Það eru allir að leggjast á eitt“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þegar mánudagur kemur upp á þriðjudegi....að sitja í súpunni.

IMG_0564  Starfskona í eldhúsi var veik.Errm

  Forstöðukona félagsmála og allsherjarreddari staðarins

  bretti upp ermarnar og spýtti í lófana.

  Nú lá á að haska sér við verkin sín, svo hún gæti einnig

  annast eldhúsið, þvottahúsið og önnur verk eldhúskonu.

  Það var meira en nóg að gera, og stöðugt rennnerí af iðnaðarmönnum

  í ofanálag, sem báðu um ýmsar ráðleggingar og aðstoð.

  Forstöðukona náði samt að komast í eldhúsverkin, aðeins 10 mínútum

  of sein, að undirbúa hádegismatinn.

  Hitunarvagnar settir í samband, kveikt á kaffivél, lagt á borð

  fyrir 40 manns og já, ekki mátti gleyma að fylla vatnskönnurnar og setja

  á hvert borð.

  Forstöðukona setti í ofurgír, lét kalt vatn renna í vaskinn og fyllti

  fyrstu tvær vatnskönnurnar, skildi vatnið eftir rennandi í vaskinn,

  og fór með fullar könnur fram í innri salinn og setti á borðin sem voru fjærst

  eldhúsi.Halo

  Strax komin biðröð við dyrnar þar inn, og forstöðukona staldraði við og bað

  öldungana að hinkra í 10 mínútur, hún væri ekki alveg tilbúin með matinn.

  Snéri við fram í eldhúsið aftur.

  Hrikalegur vatnsflaumur tók á móti henni.Pinch

  Hún hafði rekið sig í kranann þegar hún fór með könnurnar,án þess að taka eftir því,

  svo nú flæddi ískalt vatnið fagnandi eftir löngu borðinu, niður skápana

  og yfir gólfið í áttina að matsalnum, líkt og tær og hjalandi fjallalækur.LoL

  Forstöðukona hljóp við fót og skrúfaði fyri kranann.

  Þrjátíu borðtuskum dúndraði hún á "stöðuvatnið" á borðinu,

  en síðan varð hún að galla sig upp í stígvél og vopnast

  moppu og fötu og þurrka upp bévítans "lækinn",

  því nánast var "ófært" inn í eldhúsið á blautu og hálu gólfinu.W00t

  Mitt í þessum hasar og hremmingum forstöðukonu rambaði bæjarstjórinn inn

  eldhúsið með frítt föruneyti, að skoða nýbygginguna.GetLost

  Hallelúja!

  Forstöðukonu lá við að sundla af álagi.

  Varð aldeilis um þessa óviðbúnu heimsókn, og fékk léttan taugatitring

  í kjölfarið upp á 3,4 á Richter.Tounge

  En bæjarstjóri glotti og hvarf brátt á braut með fylgdarlið sitt.

  Dálítið skjálfandi náði forstöðukona að klára að græja eldhúsgólfið,

  og fór í það að flytja þungan súpudallinn í hitavagninn.

  KRASH!

  BANG!

  Argvítans dallurinn rann úr höndum forstöðukonu, skall í gólfið

  og súpan rann glettin á braut, sömu leið og "lækurinn" áður.Angry

  Altént helmingurinn af henni.Pinch

  Forstöðukonu lá við örvinglun.

  Gólfið var aftur orðið kolófært, nú vegna súpuklísturs, og hún nýbúin að skúra.

  Ofursjúkraliðinn mætti sem frelsandi engill, og bauðst til að

  þurrka upp súpusullið, svo forstöðukona kæmist í það að opna

  fyrir öldungana inn í matsal og skammta matinn.Halo

  Gekk nú allt með ágætum í 10 mínútur, öldungar fengu mat, og

  ofursjúkraliði kláraði að þurrka upp súpu að mestu.

  Ofursjúkraliði deildi út lyfjum og fór síðan að færa þeim súpu

  sem vildu, í eftirrétt.

  KRASH!

  BANG!

  Full súpuskálinn virtist snúa sig úr höndum ofursjúkraliða, og skall

  í gólfið með látum.

  Súpa út um allt gólf.....aftur.W00t

  Ofursjúkraliði náði þegjandi í skúringagræjurnar.GetLost

  Húsfreyja fékk að heyra alla "flóðasöguna" er hún mætti í

  hádeginu, og veinaði af hlátri.LoL

  Forstöðukona og ofursjúkraliði hlógu með, ekki hægt annað.Grin

  Og svona til að halda áfram að létta andrúmsloftið,

  mættu rafmagns -og símamenn á svæðið, og rifu allar dyrabjöllur

  öldunga úr sambandi.

  Ættingjar að reyna að heimsækja sína öldnu foreldra, voru lítt hrifnir

  að standa 20 mínútur úti í 7 stiga frosti, við þögular dyrabjöllur,Angry

  og hengdu sig aftan í iðnaðarmenn á flandri út og inn, hvenær sem færi gafst.

  Mættu síðan ættingjar í lange baner og kvörtuðu...einn bauð húsfreyju að taka

  útidyrnar í aðalinnganginum af hjörunum.Whistling

  Forstöðukona stússaði í kringum ættingja og iðnaðarmenn...

  húsfreyja bauðst til að "vígja" fleiri gólf með appelsíni í þetta sinn.... nú eða

  að rífa eitthvað úr sambandi áður en hún færi í sáraskiptingu.Wink

  Uppskar hlátur og fliss.

  Eftir sárastúss og pappírsvesen og spjall við öldunga og ættingja, hvarf

  húsfreyja á braut.

  Skildi smá pistil eftir handa deildarstjóra um flóðamálið og fleira.

  Og endaði pistil með þessu: 

                                               Annars ríkir friður í þínum húsum,

                                               þar enginn lengur brynnir músum.

                                               Þar er allt með kyrrum kjörum

                                              og hurðar hanga enn á hjörum.

 

  Alltaf gaman í vinnunni hjá húsfreyju.

  Góðar stundir.


Að flytja fljót.

2853885085_be31002aa5_m  Verklagnir menn Frónbúar, og dugnaður þeirra og

  kraftur til verka mikill.

  Fara sjálfsagt létt með að redda hrísgrjónaakrinum...afsakið,Cool

  Landeyjahöfn, með því að flytja eitt af öflugustu fljótum landsins

  eitthvað til vesturs...nú og eða þá til austurs....nema hvortveggja sé.Pinch

  Lítið verk og löðurmannlegt, þegar snjallir menn hafa ákveðið,

  hvar best sé að hafa auruga og straumharða ósa Markarfljóts.

  Þarf aðeins að reikna út ólgandi strauma hafs við eina sendnustu

  strönd  litla Fróns, spá fyrir um ríkjandi veðurátt næstu öldina eða svo...

  austur og vestur, hver verður bestur,Tounge

  og síðan tryggja að  ekki verði nein teljandi truflun á ferðum

  Herjólsf í Landeyjahöfn vegna eldgosa í Eyjafjallajökli með mergjuði öskufalli.W00t

  Jamm, lítið mál.

  Eins enskir segja:  PIECE OF KAKE!LoL

  En svona til fróðleiks, þá á Markarfljót upptök sín

  í Mýrdalsjökli en einnig eitthvað frá Eyjafjallajökli,

  er 100 kílómetra langt og er stórfljót að vatnsmagni og

  straumhörku eftir að það skilar sér niður í byggð.

  Jamm, bara eitt svona "lítið og þægilegt" stórfljót uppi á litla Fróni,

  sem gaman er að vesenast með í flutningi til austurs...nú eða vesturs.Whistling

  Verður spennandi, telur húsfreyja, að fylgjast með "flutningi"

  Markarfljóts, verði sú lausn á samgöngumálum Eyjamanna valin.

  En það er farið að flökra að húsfreyju, að "jarðgöngin" hans Johnsen

  hérna um árið, hafi alls ekki verið svo algalin hugmynd.Halo

  Góðar stundir, og Guð blessi flugvöllinn í Eyjum.Grin


Er verið að auglýsa eftir ofurmenni eða...

images?q=tbn:ANd9GcRLSSCKC1NAhQDHXEeUbO5BpB64PmbdvD-036FGzs2Xz86im85-qM0vjB1d  ...kannski bara einhverjum "slatta af fólki"?Halo

  Þór Björnsson í "sterkasti maður heims-keppninni" væri

  þar með alveg tilvalinn í "húsgagnatilfærslurnar",Wink

  Óli Laufdal myndi brillera í hótelrekstrarmálunum,Cool

  frú Vigdís Finnbogadóttir fyrrum forseti ásamt Óla og frú

  á Bessastöðum, myndu rústa þessum kröfum um tungumál og þýðingar.."jú eint sín noðþing jet"Joyful...

  .....nema kannski rússneskunni...en það leysist seinna í málsgreininni,

  "niðurskornir, fyrrum rafvirkjar og húsverðir" á öldrunarheimilunum tækju

  viðgerðir og viðhald í nefið, á meðan "ofurræstitæknir" með rússnesku sem

  aðaltungumál, en eigi að síður búandi á litla Fróni síðustu 10 ár, færi létt

  með þrif og rússneskar þýðingar.Tounge

  Það er bara þetta með "ferðaþjónustuna" sem er höfuðverkur.Pinch

  Þyrfti eiginlega að vera "bóndi" sem tæki það málið að sér....Woundering

  (eitursnjöllustu ferðaþjónustumenn litla Fróns, bændur),

  en þá klúðrast alveg búsetan á hótelinu, því bóndi verður

  alltaf að vera mættur í fjósið að sinna beljunum í býtið á morgni hverjum....Whistling

  nema auðvitað að hótelfrúin samþykki að láta eina svítuna undir

  beljugreyin.Devil

  Þá væri auðvitað málið leyst.

  BINGÓ!

  Hótelfrúin þar með búin að redda sínu hóteli um alla ókomna tíð,

  með haug af flottu fólki í vinnu...gott ef hún gæti ekki skroppið

  sumarlangt í siglingu um Miðjarðarhafið ár hvert, með súperfína

  samvisku.Halo

  Ekki aðeins væri hún með hótel sitt í góðum málum, heldur væri hún að stuðla

  að minnkandi atvinnuleysi á litla Fróni, ásamt rosalegum

  frumlegheitum í hótelrekstri....eða hvaða hótel annað væri

  með baulandi kýr og jórtrandi í flauelssófa inn á forsetasvítu?Tounge

  Aldeilis kostuleg atvinnuauglýsing þetta.

  Góðar stundir.funny_cow


mbl.is Leitað að ofurmenni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vikunni 14-18 janúar....

images-funny-doctor-3  ..er húsfreyja, að hugsa um að fresta af

  völdum hrikalegs "brotamáls" hennar og vegna mergjaðs "flensufárs"

  sem herjar grimmt á bónda og húsfreyju sjálfa.Sick

  Húsfreyja hefur þrisvar skellt á sjálfa sig, símleiðis, þá hún

  ætlar að bjalla í múttu sína til skrafs og ráðagerða, enda

  húsfreyja löngu hætt að þekkja sína "eigin" rödd,

  þá hún reynir að spjalla.Pinch

  Nú hljómar húsfreyja glettilega líkt og "Darth Vader" Stjörnustríðanna,

  og hræðir líftóruna úr sjálfri sér, í hvert sinn sem hún mælir orð af munni.W00t

  "Luke, I'm your father".

  Úúúú......Crying

  Í ofanálag er húsfreyja síðan hrikalegur "brotamaður",

  vafin í níðþungt gifsdrasl á hægri hendi, og hringlar um

  íbúð sína, með hægri hnefann steyttan á lofti, um leið

  og ræfils vinstri höndin reynir að vinda hor úr nefi húsfreyju

  með bréfssnifsi.

  Jamm, ekki er það gæfulegt.

  Svo húsfreyja er að hugsa alvarlega um að fresta

  þessari viku framundan um óákveðinn tíma.... altént fram

  til 21. janúar.

  Enda ekkert heilsufar á heimilinu til að mæta 12 ára afmæli

  djásnsins...í tvíriti.

  Bóndi fer ætíð í "drasl" í flensum...nánast grær fastur við

  rúm sitt...fær sem betur fer arfaslæmar hóstakviður af og til,

  svo hann hóstast, hristist og skekst fram á baðherbergið

  í brýnustu málin, og fram í eldhús að næra sig.....og síðan inn

  rúm aftur.Halo

  Húsfreyja er þrjóskari og rúmfælnari, og dólar sér fram,

  á meðan hún hvorki líður útaf í mergjuðu hitamóki eða

  slengist af krafti utan í veggi í fáránlegum hóstakviðum.GetLost

  Eldar meðan stætt er og grætur fögrum flensutárum ofan

  í potta sína og pönnur.

  Ellefu ára djásnið skal fá sinn mat og engar refjar.

  Hóstar sér síðan í húsfreyjustólinn, og grætur sárt yfir

  Avatar, James Bond og Expendables, húsfreyja.Errm

  Sú vinstri hefur ekki við að snýta og þerra tár.

  Hlakkar í hægri hendinni hins vegar....."meiri ræflarnir, konan og vinstri,

  eiga hvor aðra skilið"!Devil

  Húsfreyja grætur öllu meira yfir fréttunum, en langmest

  yfir veðrinu......andsk.... flensan að ná hámarki.Angry

  Húsfreyja er alveg búin á þessu flensufári, og er farin inn

  í bólið sitt....og það þó hún þurfi að sitja upp við dogg, til að

  ná smá blundi.

  Vikunni er FRESTAÐ!

 Góðar stundir og hóst..hóst....megi flensan missa ykkur.Whistling


HRIKALEGA ÞUNG BORÐTUSKAN...

funny-kitten-cat-broom-quidditchbroom,funny,happy,humor,monsters,women-94cb62a966e442d522c2f406b91a6e9a_h  ...á heimili húsfreyju, datt með skell í gólfið.

  Húsfreyja svitnaði og fékk tár í augun af sársauka.

  Hafði orðið það á að grípa argvítans borðtuskuna

  með "hægri hendi" til að þurrka upp skömmina

  eftir "vinstrihellingu" af kaffi í bolla.

  "EKKI AÐ RÆÐA ÞAÐ, KONA" gargaði hægri úlnliður húsfreyju,

  bálvondur og gifsaður.Angry

  Húsfreyja sár:  "En þetta er bara vesæl borðtuska!  Á ég þá bara

  að hafa kaffislettur upp um allt og út um allt", reyndi að tjónka við

  hægri úlnlið sinn.

  "HÆTTU AÐ DREKKA ANDSK.... KAFFIÐ, EF ÞÚ GETUR EKKI HELLT ÞVÍ

  SKAMMLAUST Í BOLLA", orgaði sá gifsaði sótillur.Angry

  Húsfreyja sá að sér, og var kaffilaus næstu tvo daga, eftir

  örlagaríku "úlniðsbrotaferðina" í kirkjugarðinn korteri fyrir áramót

  "í fyrra".

  Þorði í fyrsta sinn í dag, að hella sér aftur í kaffibolla.... og svei henni

  ef sá vinstri heili úlnliður, er ekki að verða bísna flinkur við að

  hella kaffi í bolla, og síðan koma því rétta leið ofan í húsfreyju.Wink

  "VINSTRI SINNAÐI VÆSKILL OG HRÁKA HÆKJA", sá hægri er eitthvað

  ekki að gúddera það að vinstri sé að reyna taka störf hans yfir.Pinch

  "Já, vertu bara í fýlu, góði" húsfreyja, ánægð með sína "vinstri framför og

  sjálfsbjargargetu".

  Það hnussaði í þeim hægri við húsfreyju....."snarvitlaus kona að ÆÐA

  um í kirkjugarði í MYRKRI og HÁLKU, og BRJÓTA "mikilvægasta"

  útlim sinn!  SVEI"!Angry

  Húsfreyja hefur sosum "vissan skilning" á máli þess hægri, og reynir

  nú að lyfta engu þyngra en einni "A-4 pappírsörk" með honum.....Halo

  fataleppur og viskustykki eru honum til dæmis alveg OFVIÐA.

  Borðtuskur og þvottapokar eru út.

  Handklæði!  Gleymið því!

  Renna upp rennilásum!  GLÆTAN!

  Lyftingar á leirtaui eða hnífapörum- EKKI AÐ RÆÐA ÞAÐ!

  Nýfarinn að ná því að klóra nef húsfreyju með þumlinum!

  Jamm, ekki laust við að húsfreyja sakni hægri handleggs síns

  töluvert MIKIÐ...en hefur svona frekar lágt um það,

  því það er ekkert vit að vera að ÆSA þann útliminn frekar upp, með

  þeirri vitneskju.Whistling

  ARFAVITLAUS í skapinu sá hægri, og gjörsamlega óþolandi "sjúklingur"!Pinch

  Húsfreyja reyndar orðin bísna flink að sópa gólfið með vinstri...

  hefur endann á skaftinu undir vanga vinstra megin og þá gengu það glatt.

  Þó það líti reyndar út , sem húsfreyja hafi orðið hrikalega "ástfangin"

  af sóp sínum, og "vangi grimmt við hann" daglega.Tounge

  Einnig er sá vinstri orðinn hrikalega snjall að KLÆÐA húsfreyju

  í leppa, án þass að blanda þeim hægra hið minnsta í málið.

  Aðfarirnar minna að vísu á "gamla svarthvíta kvikmynd" af HoudiniLoL

  að brjótast úr spennitreyju, en með 11 ára djásnið í kasti af hlátri,

  sem eina vitnið, er það bara aukaatriði.

  Jamm, og á morgum er sá hægri á leið á Endurkomudeild í

  eftirlit og skoðun.

  Skipt um gifs sjálfsagt, og skoðað hvort brotin grói ekki rétt.

  (Hér dæsti sá hægri af sannri réttlætiskennd).

  Húsfreyja er með tengdó sín í vísiteringu, þar sem tengdamútta á einnig

  læknisrannsókn á morgun.

  Bóndi sér um matseld og allt sem þarf að GERA....nema auðvitað

  "vangar" húsfreyja um með sópinn.

  Munar um minna LoL.

  Góðar stundir og gætið ykkar í hálum kirkjugörðum


Þýskir harðlífis-bílstjórar í miklum skattavanda.

 funny_toilets_Funzug_org_10 Tarna er ljótt.

  Þýsk skattayfirvöld sækja nú "hart" að flutningabílstjórum sínum,

  enda ekki hægt að vera að greiða "full laun með skattaívilnunum",

  þá menn sitja á salerninu daglangt að "tefla við páfann".W00t

  Hafi menn jafnvel málgögnin þýsku með sér á "skiteríið",

  sem jafnan eru töluvert þykkari lesning en Mogginn og Fréttablaðið

  hér uppi á litla Fróni, og lesi grimmt og vendilega á meðan

  athöfninni stendur.... og þrýtur heldur aldrei skeinipappír þá menn hafa

  þennan háttinn á.Devil

  En tímafrek getur salernisferðin orðið, sér í lagi þá helgarblöðin eru með

  í för og séu menn flutninga í ofanálag að berjast við mergjað

  "harðlífi", þá eru mínúturnar fljótar að tikka og verða að klukkustundum.Pinch

  Og allt á bullandi launum og jafnvel undanþágu frá skatti einnig.Shocking

  Flutningabílstjórum þýskra hreinlega greitt stórfé fyrir að "skíta"!Pinch

  Tarna er ljóta óáranin, og ekki nema von að þýskum skattayfirvöldum blöskri.

  Aðrir þegnar hins mikla þýska ríkis, geta nefnileg lent í því að

  þurfa að "greiða fyrir" að láta dúndra í almenningssalerni......

  og þá jafnvel borga "vaskinn" líka?W00t

  Og er það réttlæti?

  Neipp.

  Þýskir nákvæmir og réttlátir menn, og eftirleiðis verða "harðlífismenn"

   flutningabílstjóra að kukka "launalaust, blaðalaust og skattaívilnanalaust"...

  sem og aðrir "mjúk-hægða" flutningabílstjórar þeirra.

  Og allra best væri, að þeir þýsku bílstjórar dunduðu við slíkt

 "skítlegt" athæfi "í FRÍI, HEIMA hjá sér...

  og þegar restin af fjölskyldunni er í andakt með sunnudagsmessuna

  Í BOTNI í þýska sjónvarpinu".Tounge

  Orgelleikur alveg eðalfínn "undirleikur" þá mikið gengur á, og sá "stóri"

  loks rennur niður.LoL

  Gerir "dramatíska" stund "ENN DRAMATÍSKARI"!

  Tónlistin í "Star Wars-mynd" gerir einnig sama gagn....skiptir

  engu hver af þeim ágætu kvikmyndum verður fyrir valinu.Devil

  Nei, þetta bara svona hugmyndir sem húsfreyja vill læða að þýskum

  skattayfirvöldum.

  En gott að þýskir eru að taka "skattamál"sín föstum tökum, enda

  engin "skítmenni" þar að störfum, hvorki með "skítlegt eðli" eða

  "skítkast" yfir "skítavinnu"!Grin

  Góðar stundir og megi þið öll eiga góða "losun" yfir hátíðar.Halo

 


mbl.is Skrái lengd og fjölda klósettferða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband