Hallinn mikli.

Hillclimb  Frá því húsfreyja hóf störf

  sem heilbrigðisstarfsmaður,

  hefur verið bullandi halli á

  rekstri heilbrigðiskerfisins.

  Spara, spara, spara!

  Skera niður, skera niður, skera niður...

  svo hægt sé að skera upp af og tilHalo.

  Þetta er söngurinn sem sínkt og heilagt hefur hljómað

  í eyrum húsfreyju, sem annarra heilbrigðisstarfsmanna.

  Allt í myljandi rekstrarhalla árum saman,

  rekstrarörðuleikum, deildarlokunum, meiri niðurskurði,

  minni fjárveitingum, niðursveiflu...allt niður og á ská!

  En hvernig sem sparað er og sparað, skorið niður og NEÐAR,

  þá hreinlega verður mannfólkið "veikt", og þarf á

  hjálp og þjónustu heilbrigðiskerfisins að halda.

  Og sá sem hefur lent í þeirri stöðu, að senda foreldra

  heim með ungling eftir sjálsvígstilraun, veit hve

  ömurleg heilbrigðisþjónusta skapast af stöðugum

  niðurskurði vegna rekstrarhalla.

  Rífur og tætir í hjartað, að þurfa að segja: "Því miður, drengurinn

  ykkar kemst ekki inn á unglingageðdeild, en kannski

  hægt að athuga með göngudeild".

  Eða þurfa að segja hjartasjúklingi, að hann sé

   á margra mánaða biðlista eftir hjartaaðgerð,

  sem getur mikið bætt gæði lífs, svo

  ekki sé talað um "lengt" líf að miklum mun.

  En málið er, að "gróðinn" af góðu heilbrigðiskerfi er ekki mældur

  í fjármagni, heldur í mannauði sem skilar sínu svo

  aftur til þjóðarinnar með vinnu sinni.

  Svo heilbrigðisstofnanir geta aldrei sýnt fram á

  neinn "fjármagnsgróða", aðeins skilað  einstaklingum

  heilbrigðum út í þjóðfélagið aftur, eða létt vinnandi

  fólki lífið með því að annast þeirra öldruðu og sjúku.

  Er þá einhver hissa á "eilífum rekstrarhalla" ef heilbrigðiskerfið

  er sífellt í fjársvelti, og nær ekki að anna þörf

  og eftirspurn?

  Ja, húsfreyja er ekki hissa.

  En þá er það málið: Því er þessu svona farið,

  þegar stjórnvöld hafa lýst yfir vilja sínum,

  að hafa hér velferðarkerfi með öruggu og sterku

  heilbrigðiskerfi?

  Etthvað stangast þetta illilega á finnst húsfreyju.

  En hún er nú "bara" heilbrigðisstarfsmaður,

  og hefur ekki vit á stjórnmálum og skarpvitrum

  ákvörðunum stjórnvalda.

  Góðar stundir.


mbl.is Halli hjá heilbrigðisstofnunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Solla Guðjóns

Já er þetta ekki andstyggilegt......annars hélt ég að þarna væru góðar fréttir á fer og Halli væri byrjaður að vinna hjá heilbrygðisstofnun

Solla Guðjóns, 16.12.2008 kl. 07:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband