Skór af himnum ofan?

old-sneakers  Bush má gera að því "skóna",

  að til séu vinsælli þjóðhöfðingjar

  þessa heims, en hann í ÍrakGrin.

  Og betra er fyrir hann að binda

  ekki lengi "skóna" þar um slóðir, svo

  Írakar haldi ekki áfram að níða "skóinn"

  niður af honumDevil.

  Og vaði jafnvel ofan í aumingja Bush

  á skítugum "skónum" æ ofan í æ.

  Er þá hætt við að Bush karlinn verði

  fljótt bundinn í báða "skó", og gott

  ef öll ferðin til Íraks "missir ekki marks", og

  karl forseti Ameríku, hefði þá betur setið heima og

   pissað í "skóinn" sinn þar, innan um vini

  og vandamennDevil.

  Jamm, aumingja karlinn hann Bush.

  Það er ekki heiglum hent að reyna að

  heilla Íraka upp úr "skónum".....LoL.

 


mbl.is Bush varð fyrir skóárás
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband