Mjavrrskotinn!....

angry-cat-in-pink-rabbit-costume-1...."í grængoluðu kattarhelvíti", mjálmaði

  læða húsfreyju, um leið og hún velti sér

  á hrygginn og nuddaði óæðri endanum í gólfið.

  Hvessti svo ásakandi grænum glyrnum á

  húsfreyju..."MJAAVRRRR"Angry!

  "Fyrirgefðu fröken Branda", húsfreyja var

  í öngum sínum..."FYRIRGEFÐU"!

  Læða húsfreyju er búin að vera í mergjuðum

  ham síðan í gær, og kvartar grimmt og stöðugt.

  Svo illa hefur nefnilega lukkast til, á síðustu og

  verstu tímum hér á heimili húsfreyju, að "pilla"

  kattarrófu hefur alveg gleymst...mjavvvrrrrPinch.

  Fyrst húsfreyja með heiladoða á meðal háu stigi

  vegna vanvirks skjaldkirtils, og síðan búin að kreista

  niður eina 3-4 nýrnasteina, með tilheyrandi

  neyðarlögnum á spítala, bráðarannsóknum og

  verkjalyfjadópi beint í æðW00t.

  Síðustu 3-4 vikur verið "þoka", lágskýjað, þrumur og eldingar

  með stöku bjartviðri inn á milli, í heilabúi húsfreyju.

  Kattarpilluminningar virðast allar hafa lent á

  "þurru eyðurmerkursvæði" í heilabúi húsfreyju, þangað sem

  annars er ekkert að sækja, nema einstaka hugsun

  um að þurrka af og straujaDevil.

  Það svæði í höfði húsfreyju hefur reyndar aðeins

  reynst virkt rétt fyrir jól og páskaTounge.

  Og nú er sem sagt kisa arfaill, og "breimandi", með

  óþolandi kláða í óæðri endanum, og "mjaarrrvar"

  æst á húsfreyjuFrown.

  Bóndi húsfreyju skellti pillu í læðu í gær, en það tekur

  a.m.k. sólarhring að virka, pilludótið.....svo kisa er

  þreifandi, bál-, öskuvond, pirruð og ómöguleg.

  Dundaði sér við það alla síðustu nótt að henda

  smálegu dóti niður á gólf frammi í stofu, kisa,

  svona til að láta vita að svona vitleysisgangur,

  hrikaleg vanræksla og vítavert kæruleysi yrði

  ekki þolað í framtíð....og hefndaraðgerðir myndu

  stigmagnast af hennar hálfu, tæki húsfreyja ekki

  við sérNinja og lagaði málin.......mjaaaavvrrrr og hana

  nú!

  Húsfreyja er búin að týna upp smádótið og lofa

  bót og betrun, og biðjast margfaldlega afsökunar.

  Kisa er með málið inni á borði hjá sér, og tekur það

  fyrir í kvöld hvort hún fyrirgefur húsfreyju.

  Niðurstöðu að vænta með morgninum.....mjavvrrrr!Devil

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband