Tarna var auma....

japanese-skis...fréttin.  Og ekki síður skrítinFootinMouth.

  Ef húsfreyja skilur rétt, er það japanskur

  velunnari Sinfóníuhljómsveitarinnar, sem

  býður, en eigi að síður er hljómsveitinni

  "ekki treyst" fjárhagslegaShocking.

  Hvað þá með velunnarann?

  Er honum ekki treystandi heldur

  fjárhagslega?

  Ætluðu japanir kannski að græða

  grimmt á kaupglöðum, hljóðfæraspilandi

  Frónbúum?

  Selja þeim "tonn" af súvenírs, og japönsku

  sushi?

  Skítt með tónlistina, bara að þeir versli nógu mikið.

  Má sosum leyfa þeim að glamra einhverja

  vestræna tónlist svona af og til, en svo er það

  beint í "Japönsku Korpuna", "Tokyolind" og "Japanssnúðinn"

  með þá, að kaupa, kaupa og kaupa!

  En nú þegar fyrirsjáanlegt er, að snjallir hljóðfæraleikarar

  litla Fróns, dragi heldur í land í kaupum á

  gjaldeyri og minjagripum, þá vill sá japanski

  ekkert með þá hafa lengur.

  Eða hvað?

  Nei, húsfreyja veltir þessu bara svona fyrir sér.


mbl.is Vilja ekki íslensku sinfóníuna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Einar Sveinn Ragnarsson

Ég held að "í boði japansks velunnara" þýði bara að hanni hafi óskað eftir þeim til Japan.  Ekki það að hann hafi ætlað að borga allt heila klabbið fyrir 85 manns.    En svo veit maður náttúrulega ekki...

Einar Sveinn Ragnarsson, 14.10.2008 kl. 17:37

2 Smámynd: Sigríður Sigurðardóttir

Já, þú meinar Einar Sveinn!  Hélt að boðið gyllti fyrir ferð og gistingu, fyrst hljómsveitin var ekkert farin að greiða sjálf upp í ferðina.  Hmmm... það breytir málinu nokkuð, en eigi að síður nokkuð skrítið mál.

  Þakka kærlega innlitið.

Sigríður Sigurðardóttir, 14.10.2008 kl. 17:52

3 identicon

Til að svara vangaveltum hér að ofan þá hef ég það eftir áreiðanlegum heimildum að "í boði japansk velunnara" þýddi að það var verið að greiða allt (flug, gisting og fleira) nema dagpeninga. Mjög einkennilegt að hætta við þetta þó, og með svona stuttum fyrirvara...

Stefán (IP-tala skráð) 14.10.2008 kl. 19:12

4 Smámynd: Sigríður Sigurðardóttir

Já, takk fyrir þetta Stefán, þannig skildi ég fréttina í upphafi, og finnst þetta vægast sagt stórskrítið mál.  Ef allt var greitt að mestu í topp af velunnaranum, því varð hljómsveitin allt í einu fjárhagslega ótraust?  Er "Brúnn" farinn að nota sambönd sín í Japan, eða er hljómsveitin fræg að endemum fyrir óráðsíu í fjármálum um víða veröld??  Síðast er ég vissi, voru  "útrásarmenn"  ekki búnir að ráða sig í massavís í Synfóníuhljómsveit litla Fróns!

  Kærar þakkir fyrir innlitið.

Sigríður Sigurðardóttir, 14.10.2008 kl. 19:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband