Köttur á ţremur.

funny  Kattarrófa húsfreyju mjálmar ámátlega ţar sem hún stendur sármóđguđ úti á sólpalli.  Hreyfir sig eins og hún sé orđin spastísk, aldrei nema 3 fćtur í einu, sem snerta blautan sólpallinn.  Hefur ţađ ađ lokum ađ "stólpanum sínum" og teygir sig upp eftir honum...skraaaaats, klór og svo "mjavvr"!

  Gjóar upp í himininn, grćnum augum.  Neipp!  Engin sól í dag.  "Mjáskotinn"Angry.

  Sest á botninn, hryllir sig ţegar hann snertir blautan pallinn, og breiđir skott sitt vel yfir tćrnar á framţófunum.  "Hana, ţar er einn fluguskítur međ dauđaósk ađ sveima í blautu grasinu"!  Kattarrófan hniprar sig saman niđur á magann....og svo stökk!  "Kjams"..."mjavvvr" og sleikt vel út um.  "Sei, sei ţarna er önnur í "sjálfsmorđshugleiđingum"......henni einnig komiđ fyrir "kattarnef"Pinch.

  Kötturinn gjóar grćnum glyrnunum  á húsfreyju, sem stendur á náttfötunum og horfir á "flugnabanann ógurlega".  "Eru ţćr góđar"? spyr húsfreyja kött sinn.  "Mjáááá"! svarar kattarrófa ađ bragđi, hremmir 3 í viđbót af svörtu flugnakyni, og tiplar um í grasinu eins og tískudrós á pinnahćlum. 

  Svartur krummi flýgur yfir, og krunkar glađhlakkalega.  Kattarrófan gleymir blautu grasinu, skellir sér niđur á óćđri endann, og glápir á krumma á listflugi sínu.  "Ţarna er ţó ein stór og svört FLUGA, sem hún vildi komast í tćri viđ".  Hún sleikir út um.  "Nah", segir húsfreyja, "ţennan er betra ađ láta eiga sig, kisulóra".  Köttur lítur á húsfreyju međ fyrirlitningarsvip..."tvífćtta skinnlausa pakk, hvađ veit ţađ í sinn haus"GetLost.  Hún veifar skottinu "veiđilega" og fylgist međ krumma ţar til hann hverfur augsýn. 

  Man eftir blauta grasinu, stendur upp og tiplar upp á sólpall.  Nuggar sér í fćtur húsfreyju..."Mjáááárr".  "Betra ađ koma sér vel viđ tvífćtta skinnlausa pakkiđ, ţó ţađ stigi ekki í vitiđ"!  "Ţađ sér um ađ fylla matardallinn reglulega...og allt frítt"Halo.  Hún lítur lymskufull á húsfreyju...."skyldi hún luma á harđfisksbita"?  "Neipp, konan ekki ţessleg, enda enn í ţessum furđulegu fötum, sem hún kallar náttföt".  Kattarrófan dćsir mćđulega, röltir "spastísk" inn á stofugólf, og sest niđur.  Horfir á húsfreyju međ spurn...."ertu ađ koma greyiđ, ţađ er kominn MATARTÍMI"!  Og húsfreyja gegnir, fer inn, grípur málgagniđ, hendir lúku af kattarmat í kattardall og fer inn í rúmGrin.


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guđrún Jóhannesdóttir

Guđrún Jóhannesdóttir, 7.5.2008 kl. 12:20

2 Smámynd: halkatla

kisur eru bestar! takk fyrir sćta sögu

halkatla, 7.5.2008 kl. 12:30

3 Smámynd: Sigrún Óskars

Góđ saga - ţú setur ţetta svo myndrćnt fram ađ mađur sér ţetta allt fyrir sér.

Sigrún Óskars, 7.5.2008 kl. 13:18

4 Smámynd: Sigríđur Sigurđardóttir

  Kisurófur eru frábćr dýr, og "segja" heilu setningarnar međ hreyfingum og einu augnartilliti.  Mín telur "mig" vera sína "einkaeign", og verđur ađ fá jafnmikla athygli og prinsessan á bćnum.

  Ţakka ykkur ljúfastar, fyrir innlitiđ.

Sigríđur Sigurđardóttir, 7.5.2008 kl. 16:57

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband