Skelfing!

  Mikil skelfing er mannskepnan orðin spillt og rotin, þegar hún rænir  ungum börnum og selur þau í ánauð.  Hvar er mannúðin?  Þörfin fyrir að vernda minni máttar og hjálpa þeim?  Börnin eru framtíð okkar og móður jarðar.  Að þeim þarf að hlúa í kærleik og af sannri umhyggju.  Kenna þeim virðingu fyrir öllu lífi, að umgangast hvort annað í vináttu og kenna þeim að meta sanna leikgleði.  Fegurðin kemur að innan, og það erum við fullorðna fólkið sem ræktum hana í börnum okkar.  Að verða fyrir því að barni manns sé rænt, eða það sem verra er, að foreldri selur barn sitt í ánauð, er óhugsandi martröð fyrir mig sem móður.  Og "sálarmorð" á þeim börnum sem í lenda.
mbl.is 40 börn fundust í vörubíl í Mósambík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Heiður Helgadóttir

Því miður er þetta nokkuð algeingt, skíturinn í heiminum er svo mikill að það er ótrúlegt. Þetta fólk hefur enga samvisku, en mundu trúlega ekki selja sín eigin börn.

Heiður Helgadóttir, 29.1.2008 kl. 23:26

2 Smámynd: Solla Guðjóns

Þvílíkur viðbjóður...........tek undir þetta hjá þér Sigga.

Solla Guðjóns, 29.1.2008 kl. 23:51

3 Smámynd: halkatla

ég tek undir með ykkur

halkatla, 30.1.2008 kl. 09:48

4 Smámynd: Sigrún Óskars

Ég er sammála ykkur algjör viðbjóður.

Sigrún Óskars, 30.1.2008 kl. 13:43

5 Smámynd: Sigríður Sigurðardóttir

  Já, vondir dagar á móður jörð, þegar við lifum í stöðugum ótta við barnaníðinga.  En gott þegar þessi skítmenni, eru gripin glóðvolg við iðju sína!  Þá er von um betri tíð, með blóm í haga......!

Sigríður Sigurðardóttir, 30.1.2008 kl. 18:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband