Alveg dæmalaus frétt.

  Enda frá Ameríku, landi frelsis og lýðræðis, en ekki alltaf landi "skynsemi og hógværðar"LoL .  En ég gleðst innilega fyrir hönd CHUNG-hjónanna, að hafa unnið málið.  Ella hefðu þetta orðið dýrustu brækur, sem um getur í sögunni.  Eitthvað veltist enn fyrir mér sú "misvitra" ráðstöfun, að gera Pearson þennan að dómara í sjálfri Washingtonborg.  Virðist vera eitthvað bévítans hallæri á góðum mönnum í dómarastöður þarnaDevil .  Og svo eru launin líkast til þrælslega "léleg", fyrst að Pearson hefur ekki efni á að eiga eigin bifreið.  Þarf að "leigja" sér bíl bara til að komast með brækurnar sínar í hreinsun.  Ætli að hann fari ekki með strætó eða lest í vinnuna, ræfils dómarinn.  Og ekki er hann í góðum málum með brækurnar sínar, fyrst að vera án einna bróka, í "eina viku", setur allt í tjón og tjöru hjá honum.  Kannski átti hann bara þessar einu...Shocking .
mbl.is Fær ekki 3,4 milljarða í bætur fyrir horfnar buxur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband