Hláturinn lengir lífið?

  old-lady-smoking-cigarHér er tveir gamlir og góðir:

  Þegar ég var á leiðinni upp Ártúnsbrekkuna í morgun

  leit ég til hliðar og þar var kona á splunkunýjum BMW.

  Hún var á svona 120 kílómetra hraða með andlitið

  upp í baksýnisspeglinum og var á fullu að sminka sig

  með meik-up græjurnar í sitt hvorri hendinni með

  annan olnbogann á stýrinu.

  Ég leit fram á veginn eitt augnablik, og næst þegar

  ég leit á hana var bíllinn hennar á leiðinni fram fyrir

  mig í mína akrein, og samt hélt hún áfram að mála

  sig eins og ekkert væri sjálfsagðara.

  Mér brá svo mikið að ég missti rakvélina mína

  ofan á roastbeef-samlokuna, sem ég hélt á í vinstri

  hendi. 

  Í panikkinu við að afstýra árekstri við konuhelvítið

  og ná stjórn á bílnum sem ég stýrði með hnjánum,

  datt gemsinn minn úr hálsgrófinni á mér ofan í

  kaffibollann sem ég var með á milli fótanna.

  Það varð til þess brennheitt kaffið sullaðist á

  "besta vininn" og "tvíburana tvo".

  Ég rak upp öskur og missti við það sígarettuna

  úr kjaftinum og brenndi hún stórt gat á sparijakkann

  minn og ég missti af mikilvægu símtali.

  HVAÐ ER AÐ ÞESSUM HELV... KELLINGUM?Devil

 

  Hjón fóru á fæðingardeildina á Landspítalanum,

  konan að fæða fyrsta barn þeirra.

  Jónas læknir sagði þeim að alveg nýtt tæki

  hefði verið keypt inn á fæðingardeildina, sem

  færði hluta af fæðingarverkjum móðurinnar til

  föðursins.

  Þau hjón vildu ólm prófa tækið.

  Jónas læknir byrjaði á 10% verkjaflutningi til

  eiginmannsins, þar sem það væri líklega meiri verkur en

  en hann hefði nokkru sinni upplifað.

  En eiginmaðurinn bar sig bísna vel, og eftir því

  sem leið á fæðinguna sagði hann lækni að hækka

  í tækinu.

  Læknir hækkaði í 20% og síðan í 50%.

  Og enn var eiginmaður stálsleginn og sagði Jónasi

  að flytja alla verki hinnar fæðandi móður yfir á sig.

  Fæðingin gekk síðan brilliant vel og móðirin

  fann ekki nokkurn hlut fyrir neinum verkjum.

  Og sömuleiðis eiginmaðurinn, hann var hinn hressasti.

  Um kvöldið fengu hjónin að fara heim með frumburðinn,

  og þá fundu þau bréfberann steindauðan á tröppunum

  fyrir framan hús þeirra.Tounge

  Jamm, víst er gott að geta hlegið dátt, eða í það minnsta glott

  út í annað.

  Sjálf var húsfreyja á ferðinni í dag.

  Þurfti í Rúmfatalagerinn að ná sér í ódýra prjóna.

  Taldi happasælast að skreppa í Smáralindina, því þar rataði hún

  einna best um verslunina.

  Jamm.

  Auðvitað var búið að hafa endaskipti á versluninni, svo húsfreyja

  vissi ekki hvað sneri upp eða hvað sneri niður.Pinch

  En prjónana fann hún samt.

  Týndi svo ýmislegt smálegt með í körfu.

  Gáfaði ungi maðurinn með dökku spangargleraugun,

  var að ræða við sína heittelskuðu fyrir aftan húsfreyju

  þegar þau biðu afgreiðslu við kassaJoyful.

  Líklega rúmlega tvítug bæði tvö.

  Hans heittelskaða, einnig með dökk spangargleraugu

  horfði svolítið fljótandi augum á kærastan, enda ung og

  ástfangin.

  "Við verðum að kaupa okkur slatta af þessum hér, þegar

  við fáum íbúðina okkar afhenta" sá gáfaði sýndi kærustu eldhússvampa,

  10 saman í búnti.

  Kærasta kinkaði spekingslega kolli, og hristi ljósan hárlokk sem hafði

  fallið fram yfir dökku spangargleraugun.

  "Já, hélt sá ungi gáfaði áfram, "kannski get ég líka reddað

  500 grænum svona, frá kunningja mínum, fyrir lítinn pening,

  hann er með heildsölu".

  Kærastan tók upp eina lengju af eldhússvömpum,

  velti henni á milli handa sér.

  Spurði svo:  "Til hvers er ÞETTA eiginlega notað"Whistling?

  Húsfreyja skellihló inni sér á meðan hún greiddi fyrir prjónanaLoL.

  Hlustaði á unga herrann reyna að útskýra þrif á eldhúsi

  fyrir ungu dömunni sinni, sem áreiðanlega hafði aldrei þrifið

  eldhús, hvað þá heldur komið við klósettbursta á allri sinni

  stuttu æviHalo.

  Já, það fara margir að búa, ÁN ÞESS AÐ KUNNA AÐ BÚAPinch.

  En allt lærist það á endanum.

  Síðan var skroppið austur fyrir fjall í kaffi og kleinuhringi

  til múttu eftir hádegið.

  Mikið spjallað og PRJÓNAÐ.

  Svalan svo með til baka og ætlar að bíóast og fleira með Bárunni

  yfir helgina.

  En góðar stundir og góða og hláturmilda helgiWink.


mbl.is Hlegið að Íslendingum í Færeyjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristbjörn Árnason

þetta eru góðar sögur. En þessa kerlingu sá ég fyrir 5 árum í Havana

Kristbjörn Árnason, 11.3.2011 kl. 23:53

2 Smámynd: Sigríður Sigurðardóttir

Þakka þér, Kristbjörn.  Já hún er flott sú gamla, ætli að hún sé enn á lífi?

Sigríður Sigurðardóttir, 12.3.2011 kl. 01:50

3 Smámynd: Vendetta

Það tók ekki konuna mína nema 7 ár að læra að elda mat, svo að ég eftirlét henni eldamennskuna eftir það. Síðan hefur hún staðið bak við eldavélina og gert mikla lukku.

Vendetta, 15.3.2011 kl. 19:50

4 Smámynd: Sigríður Sigurðardóttir

...þetta er þjálfu...þetta er þjálfun, Vendetta!

Sigríður Sigurðardóttir, 16.3.2011 kl. 19:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband