Flutt til Spánar!

funny%2BFBI  Ekki seinna en í gær, húsfreyja!

  Verði síðdegisdúrinn "alfriðaður"

  og settur á skrá dýraverndunarsamtaka

  sem "verndað listform" hjá hinum tígulega spánska

  kóngi, þá er sko húsfreyja FARIN! 

  Hættir þá húsfreyja að þræla sveitt hjá hinu "alauma" opinbera,

  fyrir smáaura sem vart duga fyrir saltinn á grautinn,

  og smá bensínaslatta á bílræfilinn upp í Spöng.....

  er að "spara" skósólana á skóm sínum...og fer nú

  ALLT á bílnum..ussss...er alveg splunkunýtt, leynilegt

  kreppuráðWhistling.

  Jamm, ekki spurning...húsfreyja flytur búferlum

  til Spánar og gerist "listamaður af guðs náð"LoL.

  "Picassó eftirmiddagslúrsins"!

  "Da Vinci 15 mínúta dúrsins"!

  Húsfreyja sér fyrir sér, að hún gæti

  "lifað á listinni" einni saman í hinu sólríka

  veldi Spánarkonungs árum saman.

  Tæki fúslega að sér að lúra og dúra

  á beddum, bekkjum, "almenningsrúmum",

  almenningsgörðum, grasblettum og í húsaskotum

  tvist og bast um hið "svefnvæna" ríki

  spánskraLoL.

  Leggði jafnvel til með sér sæng sína og kodda,

  svo spánska ríkið þyrftii eigi að spandera á

  hana herlegum "pakkakössum" í yfirstærð,

  sem "síestu-menn og konur" virtust halla sér

  mjög "að og á" utandyra, þá húsfreyja vísteraði

  senjora og senjorur í Barcelona á Spáni ekki alls fyrir löngu.

  Tæki húsfreyja hóglegt gjald fyrir hvern 15 mínúta

  blund, en yrði að fara fram á lágmark 100 evrur fyrir

  lengri svefnToungeSleeping.

  Hrotur yrði hún að rukka fyrir "aukalega"LoL!

  Að sjálfsögðu færi hún svo fram á "listamannaloft"

  á besta stað á austurströnd Spánar, yrði að hafa

  bíl til umráða þyrfti hún að ferðast vegna

  "listar" sinnar og dagpeningar væru að sjálfsögðu

  "möst"Devil.

  Jamm.

  Dúndur frétt þetta frá hinu suðræna ríki spánskra.

  Húsfreyja er að hugsa um að skella sér inn í rúm

  og fleygja sér....ágætt að vera í "formi" og æfingu

  ef allt færi á besta veg þar syðraToungeCool.

  Góðar stundir og njótið síðdegislúrsins....z.z.z.z.z.z.z


mbl.is Vilja friða síðdegisblundinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigrún Óskars

góð að vanda

Sigrún Óskars, 18.3.2010 kl. 11:25

2 Smámynd: Sigríður Sigurðardóttir

  Æ, þakka þér kollega!

Sigríður Sigurðardóttir, 21.3.2010 kl. 12:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband